blaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 8

blaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 8
8 FRETTIR LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2007 blaóiö Tyrkland Gul fékk ekki næg atkvæði Abdullah Giil, utanríkisráð- herra Tyrklands, fékk ekki næg atkvæði i annarri umferð forsetakjörsins í tyrkneska þinginu til að tryggja sér forsetaembætti landsins í gær. Gul þurfti tvo þriðju hluta atkvæða til að ná kosningu. Fastlega er búist við því að hann verði kjörinn í þriðju umferð kosninganna í næstu viku þegar frambjóðandi þarf einungis einfaldan meirihluta. Átök um framboð Giils til for- seta síðasta vor urðu til þess að boðað var til þingkosninga. í þeim jók stjórnarflokkurinn AK fylgi sitt enn frekar. aí Minningarkort Minningar- og styrktarsjóðs hjartaskjúklinga HjartaHeill sfmi 552 5744 Gíró- og kreditkortþjónusta Svört skýrsla um leiðtoga Iraka ■ Efast um að leiðtogum íraka takist að draga úr átökum trúarhópa ■ Skyndileg heimköllun Bandaríkjahers frá írak myndi skapa algera ringulreið Eftir Atla ísleifsson atlii@bladid.net Ný skýrsla bandarískra leyniþjón- ustustofnana dregur upp svarta mynd af leiðtogum íraka. Þar segir að lömuð ríkisstjórn íraks sé ekki í stakk búin að nýta sér þær örygg- isumbætur sem aukningin í banda- ríska herliðinu hefur skilað á þessu ári. Lýst er yfir efasemdum um stefnu stjórnar George Bush Banda- ríkjaforseta í málefnum íraks og að íröskum stjórnmálamönnum tak- ist að draga úr átökum múslímskra trúarhópa fyrir næsta vor, þegar hugsanlega stendur til að fækka í liði Bandaríkjahers í írak. Hugmyndir bandarískra demó- krata, þar á meðal nokkurra þeirra sem sækjast eftir að verða forsetaefni þeirra á næsta ári, um að draga allt herliðið heim fyrir árslok eru einnig gagnrýndar í skýrslunni. I frétt New York Times segir að höfundar skýrslunnar vari við hugmyndum um meiri- háttar stefnubreytingu varðandi það hvernig berjast skuli gegn hryðjuverkamönnum. Breytingar frá því að sækja hart gegn uppreisn- armönnum í að leggja mun meiri áherslu á eflingu íraskra öryggis- íraski forsætisráðherrann í skýrslunni segir að ríkisstjórn Iraks sé ekki í stakk búin að nýta sér þær öryggisumbætur sem aukn- ingin í liði Bandaríkjahers hefur skilað. sveita geti dregið úr þeim árangri sem þegar hefur náðst. Ójafn árangur Skýrsluhöfundar segja banda- rísk stjórnvöld standa frammi fyrir vandamáli. Núverandi stefna þeirra hefur skilað mælanlegum en ójöfnum árangri í öryggislegu tilliti, en hefur hins vegar litlu skilað í að draga úr sundrungu milli trúarhópa í landinu. Þá er sagt að ástand mála í írak myndi að öllum Hkindum versna til muna, yrði tekin ákvörðun um að kalla herliðið heim. Talsmenn Hvíta hússins segja SKÝRSLAN ► Skýrsluhöfundar segja að ekki megi búast við að stjórnmálaleiðtogar íraka geti náð marktækum ár- angri í öryggismálum íraka fyrir næsta vor. ► Frá birtingu skýrslunnar hef- ur Bush látið orð falla sem benda tii þess að hann fjar- lægist stjórn Nuri al-Maliki, forsætisráðherra íraks. Tals- maður Bush segir Maliki þó enn njóta stuðnings Bush. ► Sextán bandarískar leyni- þjónustustofnanir standa að skýrslunni. skýrsluna sýna að stefnt sé í rétta átt með núverandi stefnu bandarískra stjórnvalda. Fjölgun í herliði Banda- ríkjamanna hafi leitt af sér færri of- beldisverk, árangur sé mögulegur og skyndileg heimköllun hersins frá Irak myndi skapa algera ringulreið í landinu. HVAÐ VANTAR UPP Á? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á biadid@bladid.net J/ BÚÐ AÐ KAUPA VIN ER EKKERT GRÍN Hafðu skilríkin meðferðis. Takk fyrir að sýna okkur skitríki að eígin frumkvæðí þegar þú kemur í Vínbúðina. Þannig leggjumst við á eitt um að takmarka aðgengi unglinga að áfengi. Schengen-svæðið stækkað um næstu áramót Herða eftirlit á landamærum Evrópusambandið ver nú miklum fjárhæðum í að efla eftirlit á landa- mærum Slóvakíu og Úkraínu, en tíu ný ríki munu gerast aðilar að Schengen-samstarfinu í lok þessa árs. Yfirvöld í Slóvakíu vinna að uppsetningu myndavéla með hita- skynjurum á stólpum meðfram landamærunum til að fylgjast með óheimilum mannaferðum. Á jörðu niðri verða svo landamæraverðir á farartækjum sem geta ferðast utan vega og tollverðir með sérstakan búnað til að finna ólöglega innflytj- endur í felum í lestum sem fara yfir landamærin. Aðstoðarinnanríkisráðherra Sló- vakíu, Jan Bucek, segir eftirlit á landamærum Slóvakíu og Úkraínu vera sérstaklega þýðingarmikið. „Evrópusambandið óttast að ólög- legir innflytjendur og hryðjuverka- menn muni einmitt komast inn á þessum landamærum. Við verðum hins vegar reiðubúin að stöðva þá.“ Níu þeirra tíu ríkja sem gengu í Evrópusambandið árið 2004, auk Sviss, gerast aðilar að Schengen- samstarfinu í lok ársins, sem veitir borgurum leyfi til að ferðast innan svæðisins án þess að sýna vegabréf á landamærum. Á vef Kiev Post segir að embættismenn í fjölda þeirra ríkja hafi líkt mikilvægi aðildar við fall járntjaldsins árið 1989. atlii@bladid.net

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.