blaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 10
í haust - í beinu flugi
Barcelona:
í haust og vor
Margar brottfarir uppseldar
Frá kr. 19.990
Flugsæti með sköttum, m.v. brottfarir sunnu-
eða mándaga. Netverð á mann.
Prag
í allt haust
-Margar brottfarir uppseldar
Frá kr. 19.990
Flugsæti meö sköttum, m.v. 2 fyrir 1
tilboð, brottfarir sunnu- eða mánudága.
Netverð á mann.
Montrea!
28. sept. - UPPSELT
2. okt.
5. okt. - örfá sæti
8. okt.
20. okt.
Frá kr. 29.990
Flugsæti með sköttum. Fargjald A.
Netverð á mann.
Kraká
25. okt. -UPPSELT
28. okt.
1. nóv. - UPPSELT
5. nóv.
8. nóv. - örfá sæti
Frá kr. 23.990
Flugsæti með sköttum. Fargjald A.
Netverð á mann.
Ljubljana
9. nóv. - UPPSELT
Búdapest
12. okt. - UPPSELT
18. okt. - AUKAFLUG
19. okt. - AUKAFLUG
Frá kr. 49.790
Flug, skattar og gisting í 3 nætur með
morgunverði. Netverð á mann.
Vilnius
10. okt.
14. okt.
19. okt. - UPPSELT
22. okt.
Frá kr. 23.990
Flugsæti með sköttum. Fargjald A.
Netverð á mann.
Riga
26. okt. -örfá sæti
Frá kr. 49.990
Flug, skattar og gisting í 3 nætur með
morgunverði. Netverð á mann.
Stuttgart-
Heidelberg
29. nóv. - örfá sæti
Frá kr. 59.990
Flug, skattar og gisting í 3 nætur með
morgunverði. Netverð á mann.
Edinborg
6. des.
Frá kr. 49.990
Flug, skattar og gisting með morgun-
verði í 3 nætur. Netverð á mann.
Róm
5. okt - örfá sæti,
12. okt - örfá sæti
Frá kr. 49.990
Flug, skattar og gisting með morgun-
verði í 3 nætur. Netverð á mann.
Flórens
30. sept. - örfá sæti
Frá kr. 79.990
Flug, skattar, gisting í 5 nætur m/
morgunverði, 3 kvöldverðir og akstur
frá Flórens til Rómar. Netverð á mann.
Flug með Primera Air
Það er íslenska flugfélagið JetX
sem annast allt leiguflug Primera
Air fyrir Heimsferðir á íslandi og
fyrir önnur dótturfyrirtæki Primera
Travel Group í Skandinavíu.
Þjónusta um borð er fyrsta flokks
og að sjálfsögðu á íslensku.
Mundu
MasterCard
feröaávísunína! ^
Heimsferðir
Skógarhln 18 • 1 05 Reykjavík • S ími 595 1000 • F ax 595 1001
Akureyri sími: 461 1099 • H afnarfjörður sími: 510 9500
10
FRETTIR
LAUGARDAGUR25.AGUST2007
blaðið
Grikkland
Skógareldar
geisa
Sex manns létust í skógareldum í
Grikklandi í gær. Fjórir fundust
látnir nærri hót-
eli í Aeropolis,
suður af Aþenu,
auk þess sem
tveir slökkvi-
liðsmenn létust
í sömu borg.
Þúsundir hekt-
ara af skóg-
lendi hafa nú
orðið eldi að bráð á Pelópsskaga,
en tugir elda brutust út víðs vegar
um landið þegar vindar tóku að
blása eftir þrjá daga í röð þar sem
hitinn fór yfir fjörutíu gráður. aí
Afganistan
Þrír breskir
hermenn létust
Þrír breskir hermenn létust og
tveir særðust þegar bandarískar
herflugvélar skutu sprengju að
þeim fyrir slysni í Helmand-hér-
aði í Afganistan á fimmtudags-
kvöld. Atvikið átti sér stað eftir
að kallað hafði verið eftir aðstoð
úr Iofti, en uppreisnarmenn úr
röðum talibana höfðu gert árás á
bresku hermennina sem voru við
eftirlitsstörf. aí
STUTT
• Leigubílar Samtök leigu-
bílstjóra í New York hvetja
félagsmenn til að fara í verkfall
dagana 5. til 6. september til að
mótmæla nýrri reglugerð sem
kveður á um að staðsetningar-
tæki verði í leigubílum.
• Vopnasala Mannréttindasam-
tökin Amnesty International
hafa sakað stjórnvöld í Súdan
um að selja vopn til Darfúr-hér-
aðs og þverbrjóta þannig bann
Sameinuðu þjóðanna.
• Leikföng Framkvæmdastjórn
ESB tilkynnti í gær að til greina
kæmi að grípa til ráðstafana til
að koma í veg fyrir innflutning
á leikföngum sem mögulega eru
hættuleg heilsu barna.
Brown í herferð
gegn ofbeldinu
■ Lögreglan handtók ungling í tengslum við morðið á drengnum
Rhys Jones ■ Forsætisráðherran boðar herferð gegn klíkum
Eftir Atla ísleifsson
atlli@bladld.net
Gordon Brown, forsætisráðherra
Bretlands, hefur boðað herferð
breskra stjórnvalda gegn klíku-
ofbeldi í kjölfar morðsins á Rhys
Jones.
Hinn ellefu ára'Rhys var skotinn
til bana á leið heim úr fótbolta í borg-
inni Liverpool á miðvikudagskvöld.
Brown hefur lýst morðinu sem sví-
virðilegum glæp og heitið því að
þeir sem ábyrgð bera á morðinu
verði fundnir, handteknir og þeim
refsað.
„Þar sem þörf er á nýrri löggjöf
munum við ná henni í gegn, og
þar sem þörf er á hertari löggæslu
munum við sjá til þess að hún verði
að veruleika," segir Brown, en morð
á breskum börnum og unglingum
hafa verið óvenjulega mörg það sem
af er ári.
Morðinginn gefi sig fram
Lögreglan í Liverpool handtók
síðdegis í gær unglingsdreng í
tengslum við morð Rhys. Fjórtán og
átján ára strákar voru handteknir
skömmu eftir morðið, en þeim var
sleppt eftir yfirheyrslu á fimmtudags-
kvöld. Patricia Gallen, talsmaður lög-
reglunnar í Liverpool, segir að hún
MORÐ Á BÖRNUM
► Að minnsta kosti sautján
börn hafa verið myrt í Bret-
landi það sem af er ári, eftir
að hafa hlotið annað hvort
skot- eða stungusár.
►
Flest morðin hafa átt sér
stað í höfuðborginni Lund-
únum.
►
Lögregia hefur lýst yfir mikl-
um áhyggjum af uppgangi
þeirrar kiíku- og skotvopna-
menningar sem hefur verið
að ryðja sér til rúms meðal
ungmenna að undanförnu.
hafi orðið fyrir vonbrigðum með
hve fáar ábendingar hafi borist frá
almenningi vegna málsins og hvatti
hún morðingjann til að gefa sig fram.
„Við þurfum að ná þessum morð-
ingja af götunni. Innan samfélags-
ins eru einstaklingar sem vita hver
ber ábyrgð á glæpnum. Gefið ykkur
fram svo að hægt sé að lina þjáningar
móður og föður Rhys.“
Lögregla telur að morðinginn sé
mjósleginn, rúmlega 1,70 metrar á
hæð og á aldrinum þrettán til fimm-
tán ára. Hann klæddist dökkum
fatnaði, hettupeysu og var í hvítum
strigaskóm þegar hann ók á BMX-
hjóli framhjá Rhys og tveimuf fé-
lögum hans og skaut hann í hálsinn.
Móðir Rhys var hjá syni sínum síð-
ustu stundirnar í lífi hans á meðan
læknar reyndu að bjarga honum, en
án árangurs.
Klíku- og skotvopnamenning
Innanríkisráðherrann Jacqui
Smith segist nú vera að íhuga að
leggja fram lagafrumvarp sem
skyldi alla sjónarvotta skotárása til
að gefa sig fram og gefa skýrslu. Átta
börn hafa verið skotin til bana í Bret-
landi það sem af er ári. I höfuðborg-
inni Lundúnum hafa að minnsta
kosti sautján börn verið skotin eða
stungin til bana. Þegar á heildina er
litið hefur tíðni morða í Bretlandi
þar sem skotvopni er beitt lækkað
síðustu árin, en lögregla hefur hins
vegar lýst yfir miklum áhyggjum
af þeirri klíku- og skotvopnamenn-
ingu sem virðist vera að ryðja sér til
rúms meðal unglinga í landinu.
Einnar mínútu þögn til minn-
ingar um Rhys verður fyrir leik Ever-
ton og Blackburn í ensku úrvalsdeild-
inni í knattspyrnu í dag. Hann var
stuðningsmaður Everton-liðsins.
HVAÐ VANTAR UPP Á?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net