blaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 18

blaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 2007 blaöiö FÉOGFRAMI vidskipti@bladid.net Ég er sannfærður um að það verði ekkert álver hér í Ölfusi og að sveitarfélagið verði grænt. Málþing um þorskeldi r,Þetta hlýtur að vera í vatninu" ■ Fyrsta skóflustungan hefur verið tekin að nýrri átöppunarverk- smiðju í Þorlákshöfn ■ Samningur um sölu í Japan á lokastigi Ráðstefna um framtíð þorskeldis á Norðurlöndum verður haldin á Hótel Nordica í Reykjavík dagana 6. til 8. september næstkomandi. Sjávarútvegsráðuneytið skipuleggur ráðstefnuna og er markmiðið með henni að fá betri yfirsýn yfir þorskeldi og tengda rannsóknarstarfsemi á Norðurlöndum. Bill Hobson, formaður Sambands fiskheildsala í Grimsby í Bretlandi, segir í samtali við fishupdate.com að niðurskurður íslenska þorskafl- ans muni hafa mikil áhrif á framboð og verð á næstu mánuðum og að þorskeldi sé ein leiðin til að minnka áhrif niðurskurðar fiskafla þegar til lengri tíma er litið. aí Hagnaðist um 2,8 milljarða Hagnaður íbúðalánasjóðs nam 2.816 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við 2.692 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. Eigið fé sjóðsins nam 20.477 milljónum króna í lok júní. Eiginfjárhlutfall íbúða- lánasjóðs er 7,5%. Hlutfallið er reiknað með sama hætti og eigin- fjárhlutfall fjármálafyrirtækja. Langtímamarkmið sjóðsins er að hlutfallið sé yfir 5,0%. mbi.is Nýir sendiherrar Hu Jintao, forseti Kína, hefur skipað Zhang Keyuan í stöðu sendiherra Kína á íslandi. Zhang tekur við stöðunni af Wang Xinshi, sem tók við stöðunni hér á landi snemma árs 200;. Zhang lét af stöðu sendiherra Kína í Afríkuríkinu Gana fyrr á árinu. Þá tilkynnti svissneska utanrík- isráðuneytið í gær að Denis Feld- meyer yrði nýr sendiherra Sviss í Noregi og á fslandi, með aðsetur í Ósló. aí HB Grandi græð- ir 527 milljónir Hagnaður HB Granda nam 527 milljónum króna á öðrum ársfjórð- ungi en á sama tímabili í fyrra nam tap félagsins 1.221 milljón króna vegna mikillar hækkunar á lánum félagsins í kjölfar veikingar íslensku krónunnar. mbi.is Ragnar verður forstjóri Norðuráls Gerðar hafa verið skipulagsbreytingar á Norðuráli ehf., dótturfélagi Century Aluminum. Samkvæmt því verður Norðurál móðurfyrirtæki dótturfélag- anna Norðuráls Grundartanga ehf. og Norðuráls Helguvíkur sf. Ragnar Guðmundsson er forstjóri Norðuráls og heyrir beint undir Logan Kruger, að- alforstjóra Century Aluminum. f tilkynningu kemur fram, að hlutverk Norðuráls ehf. verði að hafa yfirumsjón með hagsmunum Norðuráls og Century Aluminum á fslandi, þar með talið viðskipta- þróun og tengsl við hluthafa á fslandi og Kauphöll OMX á íslandi þar sem Century Aluminum er skráð. the Eftir Magnús Geir Eyjólfsson magnus@bladid.net „Það er mjög ánægjulegt að sjá gröf- urnar byrja að grafa fyrir verksmiðj- unni. Þetta er stór áfangi,“ segir Jón Ólafsson, stjórnarformaður Ice- landic Water Holdings ehf. Hann tók í gær fyrstu skóflustunguna að nýrri átöppunarverksmiðju fyrirtækisins rétt utan Þorlákshafnar, þar sem framleiðsla á Iceland Glacier-lúxus- vatninu mun fara fram. Til stendur að framleiðslan verði komin á fullt í ágúst á næsta ári. Á markað í Japan Á þessu ári hefur Icelandic Water Holdings þegar samið um dreifingu á Iceland Glacial í Bandaríkjunum og Kanada. Jón segir að stefnan sé að koma vatninu á markað í öllum þeim löndum í heiminum sem hafa efni á að kaupa það. Fleiri samn- ingar eru í bígerð og til að mynda er samningur við japanskan dreif- ingaraðila á lokastigi. Viðræður um þann samning hafa að sögn Jóns staðið yfir í um það bil eitt ár og er fimm manna sendinefnd vænt- anleg til landsins frá Japan í næsta mánuði. Jón telur að næstu fimm árin fari í uppbyggingarstarf og markaðs- setningu á Iceland Glacier-vatninu. Mikið er lagt upp úr þeirri ímynd að afurðin sé sprottin upp úr hreinni og ósnortinni náttúru íslands. „Ég held því fram að þetta sé besta vatn í heimi. Svo bendi ég líka á að við eigum mikið af fallegu og sterku fólki og hér lifir fólk lengur. Þetta hlýtur því að vera í vatninu,“ segir Jón. Engar áhyggjur af álveri Forsvarsmenn Icelandic Water Holdings lýstu í sumar yfir áhyggjum sínum af fyrirhugaðri byggingu álvers og áltæknigarðs í nágrenni við verksmiðjuna. Sendi- nefnd frá Alcan kom hingað til lands í sumar til að skoða svæðið og aukþess hefur verið sótt um heimild til losunar koldíoxíðs til ársins 2012. Fyrsta skóflustungan Jón Ólafsson og sonur hans, Kristján, voru ánasgðir með afrakstur gærdagsins. jyiyn'd/Jón H. Sigmundsson ÁTÖPPUNARVERKSMIÐJA ► Afkastageta verksmiðjunn- ar verður 100 milljónir lítra á ári, en möguleiki er á að framleiða 200 milljónir lítra árlega. W Húsnæðið verður 6600 fer- ^ metrar að flatarmáli. ► 30 til 40 störf skapast með tilkomu verksmiðjunnar. Álverið, ef af byggingu þess verður, yrði staðsett einungis í 7 kílómetra fjarlægð frá vatnsverksmiðjunni. Þóttþaðkunni að skaða imynd Ice- landic Glacier að hafa álver í túnfæt- inum, segist Jón litlar áhyggjur hafa af málinu. „Ég er sannfærður um að það verði ekkert álver hér í Ölfusi og að sveitarfélagið verði grænt. Mér heyrist líka á ráðamönnum þjóð- arinnar að þeir séu ekki í neinum álvershugleiðingum.“ Fyrirhugað álver er þó ekki eina vandamálið sem Icelandic Glacier Holdings hefur þurft að kljást við í sumar. Tímaritið Businessweek fjallaði um gagnrýni náttúruvernd- arsinna á vatnsframleiðendur sem héldu því fram að mikill koltvísýr- ingur færi út í andrúmsloftið við framleiðslu afurðarinnar. Þar var Icelandic Glacier nefnt á nafn og mynd birt af umbúðunum. Jón segir neikvætt umtal betra en ekkert og greinin sýni einfaldlega hversu vel hefur gengið í markaðssetningu á vatninu. „Af öllum í heiminum erum við einir nefndir sem sýnir að við erum komnir á kortið. Það er mjög ánægjulegt að þegar verið er að fjalla um iðnaðinn í heild sinni, þá erum við nefndir fremstir meðal jafningja. Við erum það hins vegar ekki því við erum rétt að byrja. Nöfn eins og Evian og Fiji hafa verið þarna í áratugi. Fyrir þremur árum var þessi hugmynd ekki einu sinni komin á blað.“ ÞEKKIRÞÚ TIL? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á bladid@bladid.net r HjÆ oteteur tr iM,ífeíð ún/aL af bfl riA/fl\/Ö0 IA/UCPVt MARKAÐURINNÍGÆR Hlutabréfaviðskipti með skráð bréf hjá OMX á íslandi, 24. ágúst 2007 Viðskipti í krónum Heildar- ATH. = Athugunarlisti Viöskipta- Hlutfallsl. Dagsetning Fjöldi viöskipti Tilboð 1 lok dags: Félög í úrvalsvísitölu verð breytlng viösk.verðs viðskipta dagsins Kaup Sala a Atorka Group hf. 9,40 0,53% 24.8.2007 14 49.756.530 9,39 9,41 ♦ Bakkavör Group hf. 67,70 0,00% 24.8.2007 11 293.074.584 67,50 67,70 A Existahf. 34,00 0,29% 24.8.2007 83 835.836.246 33,95 34,00 ▼ FLGrouphf. 26,20 ■0,76% 24.8.2007 12 80.350.500 26,05 26,20 ▼ Glitnir banki hf. 28,30 -0,88% 24.8.2007 58 637.483.880 28,25 28,30 ♦ Hf. Eimskipafélag Islands 40,50 0,00% 23.8.2007 - . 40,20 40,60 ♦ lcelandair Group hf. 26,90 0,00% 23.8.2007 - . 26,90 26,95 ▼ Kaupþing banki hf. 1170,00 ■1,27% 24.8.2007 146 3.025.830.349 1170,00 1174,00 ▼ Landsbanki (slands hf. 40,45 ■0,49% 24.8.2007 63 1.533.384.723 40,30 40,35 Mosaic Fashions hf. 17,50 - 17.8.2007 - . . . ▼ Straumur-Burðarás Fjárf.b. hf. 20,60 ■0,96% 24.8.2007 51 752.285.171 20,55 20,70 a Teymihf. 5,81 4,31% 24.8.2007 34 329.562.406 5,78 5,83 a össurhf. 107,00 1,90% 24.8.2007 2 10.846.956 105,50 107,00 Önnur bréf á Aðallista 365 hf. 2,83 - 24.8.2007 2 68.570.897 2,80 2,84 Actavis Group hf. . 20.7.2007 - - - . ♦ Alfesca hf. 5,87 0,00% 24.8.2007 1 57.825.270 5,83 5,92 ▼ Atlantic Petroleum P/F 1107,00 ■1,25% 24.8.2007 14 5.773.810 1110,00 1116,00 ▼ EikBanki 696,00 ■0,57% 24.8.2007 3 479.612 692,00 695,00 Flaga Group hf. 1,62 0,00% 24.8.2007 1 124.000 1,61 1,63 a Foroya Bank 233,00 1,30% 24.8.2007 5 2.759.481 233,00 238,00 lcelandic Group hf. 5,95 22.8.2007 - 5,90 5,98 a Marelhf. 92,00 0,33% 24.8.2007 2 3.205.000 91,50 92,00 Nýherji hf. 21,50 21.8.2007 - - 21,20 21,90 ▼ Tryggingamiðstöðin hf. 39,05 ■1,14% 24.8.2007 2 9.775.000 38,90 39,80 Vinnslustöðin hf. 8,50 22.8.2007 - - First North ð Islandi ▼ Century Aluminium Co. 3044,00 ■0,52% 24.8.2007 2 18.264.000 2999,00 3044,00 HBGrandihf. 11,00 18.7.2007 . . - 11,00 Hampiðjan hf. 6,50 20.6.2007 - . - 6,65 • Mest vfðskipti í Kauphöll 0MX í gær voru með bréf Kaupþings, fyrir um 3,0 milljarða króna. Næstmest viðskipti voru með bréf Landsbank- ans, fyrir 1,5 milljarða. • Mesta haekkunin var á bréfum Teymis, eða 4,31%. Bréf Össurar hækkuðu um 1,90% og Foroya Banka um 1,30%. • Mesta lækkunin var á bréfum Kaupþings, eða 1,27%. Bréf Atlantic Petroleum lækkuðu um 1,25%. • Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,79% í gær og stóð í 8.283 stigum í lok dags. • ísienska krónan styrktist um 0,86% í gær. • Samnorræna OMX40-vísitalan hækkaði um 0,94% í gær. Þýska DAX-vísitalan lækkaði um 0,1%, en breska FTSE-vísitalan hækk- aði um 0,4%.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.