blaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 30
30
LAUGARDAGUR 25.ÁGÚST2007
blaðiö
MENNING
menning@bladid.net
7Ég hef ekki í hyggju að standa yfir fólki
og ritskoða það sem það gerir, enda
verður fólki frjálst að bæta sínu framlagi
við hvenær sem er.
Ál í Grindavík
Málverkasýning Helgu Jens-
dóttur verður opnuð í Listasal
Saltfiskseturs íslands í Grinda-
vík á morgun. Helga er flug-
umferðarstjóri að mennt en
vinnur nú alfarið að myndlist og
hefur undanfarna mánuði haft
vinnustofu i Kópavogi ásamt
tíu öðrum myndlistarkonum
og kallar hópurinn sig ARTn.
Helga vinnur með valsaðar ál-
plötur og styðst ekki síst við kort
úr fluggeiranum og frá íslenska
flugstjórnarsvæðinu. Sýningin
í Saltfisksetrinu stendur til ío.
september.
Ný fiðla vígð
Síðustu stofutónleikar Gljúfra-
steins í sumar verða haldnir
á morgun klukkan 16, en á
þessum lokatónleikum munu
þau Guðný Guðmundsdóttir
fiðluleikari og Gerritt Schuil
píanóleikari flytja verk eftir
Ludwig van Beethoven og tón-
skáldið Fritz Kreisler.
Á þessum tónleikum vígir
Guðný nýja fiðlu sem smíðuð er
á íslandi af fiðlusmiðnum Hans
Jóhannssyni.
Fjölbreytt Akureyrarvaka
Fjölbreytileg menningardagskrá verður á Akureyrarvöku í allan
dag. Til dæmis verður málverkasýning Lilju Guðmundsdóttur í
Amaró-húsinu opnuð í dag klukkan ío, Steinn Kristjánsson setur
upp VeggVerk við Strandgötu 17 á hádegi og Akureyrarkirkja verður
með opið hús milli klukkan 1$ og 18 og milli klukkan 20 og 22. Þá
verður sýningin Sjónlist 2007 opnuð í Listasafni Akureyrar klukkan
15, en það er samsýning þeirra listamanna sem tilnefndir eru til verð-
launanna í ár og
Ópera Skaga-
fjarðar og Sin-
fóníuhljómsveit
Norðurlands
flytja óperuna La
Traviata í íþrótta-
miðstöð Glerár-
skóla klukkan
16. Dagskrána i
heild sinni má
sjá á vefsíðu
Akureyrarbæjar,
akureyri.is.
Er hafmeyja í
höfninni?
Anna Richardsdóttir og félagar
hennar bjóða upp á fljótandi
gjörning við Pollinn á Akureyri
klukkan 11.30 í dag. Selir koma þar
við sögu ásamt sjósundkappanum
Benedikt Lafleur og í Ijós kemur
hvort hafmeyja er í höfninni eður
ei. Tónlistarmaðurinn Kristján Edel-
stein hefur samið tónlist við atriðið
og búningar og leikmunir eru eftir
Beate Stormo og Helga Þórsson.
Óvenjulegt spreyverk á Akureyri
Bannaö að spreyja!
Hlynur Hallsson ætlar
að speyja orðin Bannað
að spreyja stórum stöf-
um á vegg í Pennanum
Eymundsson á Akureyri
í dag milli klukkan 13 og
14 og hvetur fólk í kjölfar-
ið til að spreyja, teikna og
skrifa á sama vegg...
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@bladid.net
Listamaðurinn Hlynur Hallsson
ætlar að spreyja á vegg í Pennanum
Eymundsson við Hafnarstræti á
Akureyri í dag milli klukkan 13 og
14. Gestum og gangandi er boðið
að taka þátt í listsköpuninni með
þvi að teikna, lita og skrifa sjálfir
á sama vegg. „Þeir hjá Pennanum
Eymundsson höfðu samband við
mig og spurðu hvort ég væri til í að
gera veggverk hjá sér og ég ákvað
að hafa þetta í svipaðri mynd og
ég gerði á Kjarvalsstöðum fyrir sjö
árum, en þá spreyjaði ég á langa
vegginn sem er á milli salanna
og öllum var frjálst að bæta við
sínum eigin teikningum og texta,“
segir Hlynur. „Að þessu sinni ætla
ég að skrifa setninguna „Bannað
að spreyja" stórum stöfum ofar-
lega á vegginn, svona í tilefni af
graffiti-umræðunum undanfarið,
en svo má fólk gera hvað sem það
vill fyrir neðan. Það er náttúrlega
ákveðin pólitík í því.“
Ætla ekki að ritskoða
Hlynur segir að fólki á öllum
aldri sé frjálst að taka þátt í verk-
inu. „Reynsla mín frá Kjarvals-
stöðum þarna fyrir sjö árum var
sú að það voru aðallega krakkar
og fólk í yngra kantinum sem
tóku þátt þá, og við sjáum bara til
hvernig það verður núna,“ segir
hann.
Aðspurður segist hann ekki ætla
að reyna að stjórna því hvað fólk
skrifar og teiknar á vegginn. „Ég
hef ekki í hyggju að standa yfir
fólki og ritskoða það sem það gerir,
enda verður fólki frjálst að bæta
sínu framlagi við hvenær sem er,
hvort sem það er i bókabúðinni að
skoða bækur eða að fá sér kaffi i
Te og kaffi. En þótt ég ætli ekki að
ritskoða neitt vona ég samt að fólk
MM
Hlynur Hallsson Tekur þátt
í Akureyrarvöku í dag.
fari ekki yfir nein velsæmismörk í
sínum skrifum eða teikningum."
Vantar fleiri spreyveggi
Ekki eru til margir veggir á
þéttbýlisstöðum landsins þar sem
leyfilegt er að spreyja eða teikna.
„Reyndar veit ég að hér i Listagil-
inu á Akureyri, á bak við Friðrik
V, er kominn staður þar sem má
spreyja og þar eru komin mjög
flott verk. Ég þekki ekki alveg
hvernig þetta er í Reykjavík en ég
held að þar þyrfti að koma upp
stað eða stöðum þar sem spreyjar-
arnir geta fengið útrás fyrir sína
listsköpun í stað þess að þeir séu
að spreyja þar sem það er bannað.
Svo eru margir mjög flinkir og oft
er hægt að gera ljóta veggi flotta
með því einu að leyfa færum
HLYNUR
►
►
►
Er í fullu starfi sem lista-
maður.
Tók þátt í samsýningu í Pól-
landi nýlega.
Er með vinnustofu heima
hjá sér á Akureyri og einnig
í Berlín.
W Heimasíða hans er
^ hallsson.de
spreyjurum að gera á þeim flottar
myndir,“ segir Hlynur.
Spreyverkið er liður í Akureyrar-
vöku sem fram fer þessa helgi en
verkið mun standa í nokkra mán-
uði og allan tímann má almenn-
ingur leggja sitt af mörkum.
Síðastci sýningarhelgi
Kristján Davíðsson
Halldór Pétursson
• • •
Kristján Davíðsson
Tvær sýningar í Galleríi Fold
Opið á Rauöarárslíg
laugardag kl. 11-16
sunnudag kl. 14-16
RauSarárstígur 14, sími 551 0400 • Kringlan, sími 568 0400 ■ www.myndlist.is
Haraldur Bilson
Málverkasýning
í Galleríi Fold
Gallerí Fold • RauSarárstíg og Kringlunni