blaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 31

blaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 31
blaöió LAUGARDAGUR25.ÁGÚST2007 31 MENNING menning@bladid.net Þetta hentar reyndar svo vel til lifandi flutnings að við vorum að velta því fyrir okkur hvort það myndi yfirhöfuð virka á diski. Þegar við flytjum þetta færum við okkur um salinn og erum með leikræna til- burði. Svo kom þetta bara vel út í upptöku og virkar alveg prýðilega. Sigurður Flosason gefur út tvo diska með viku millibili Mörg járn í eldinum Sigurður Flosason gaf út tvo gerólíka hljómdiska á dögunum og heldur útgáfutónleika annars þeirra í næstu viku. Þar mun hann einnig frum- flytja glæný sönglög sem Ragnheiður Gröndal og Egill Ólafsson syngja. Eftir Einar Örn Jónsson einar.jonsson@bladid.net Tónlistarmaðurinn Sigurður Flosason situr svo sannarlega ekki auðum höndum þessa dagana. Hann gaf út tvo ólíka hljómdiska með um viku millibili auk þess sem hann hefur æft nýtt og óút- gefið efni með söngvurunum Ragn- heiði Gröndal og Agli Ólafssyni. Fyrri diskurinn heitir Dívan og jazzmaðurinn en á honum flytur hann þekkt íslensk sönglög ásamt Sólrúnu Bragadóttur sópr- ansöngkonu. Þó að sönglögin séu hefðbundin verður ekki það sama sagt um útsetningarnar enda ekki algengt að saxófónleikari og sópr- ansöngkona leiði saman hesta sína. Sigurður segir að saxófónninn bregði sér í ýmis hlutverk, meðal annars hlutverk píanósins. Leikrænir tilburðir „Stundum er ég hreinlega að spila píanóraddir eins og tón- skáldið skrifaði. Stundum er ég að impróvísera eitthvert allt annað undirspil og stundum spinnum við bæði. Megnið af plötunni eru þessi þekktu sönglög í meðförum okkar en svo eru líka inn á milli algerlega frjálsir spunar hjá okkur báðum til að brjóta þetta upp,“ segir Sigurður og bætir við að tónlistin henti mjög vel til lifandi flutnings. „Þetta hentar reyndar svo vel til lifandi flutnings að við vorum að velta því fyrir okkur hvort það myndi yfirhöfuð virka á diski. Þegar við flytjum þetta færum við okkur um salinn og erum með leik- ræna tilburði. Svo kom þetta bara vel út í upptöku og virkar alveg prýðilegasegir hann. Frumflytja glæný sönglög Glæný sönglög eftir Sigurð Flosason við Ijóð Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar verða frumflutt á tónleikum í Iðnó í næstu viku. Söngvarar eru Ragnheið- ur Gröndal og Egill Ólafsson. Blúsuð djasstónlist Tónlistin á Dívunni og jazzmann- inum var frumflutt á Listahátíð í Reykjavík í fyrravor en einnig hefur hún verið flutt í Svíþjóð og í Dan- mörku. Þessa dagana eru þau á ferð um landið og eru tónleikar fram- undan á Akureyri, í Stykkishólmi og á Höfn í Hornafirði. Fleiri tónleikar eru merktir í dag- SIGURÐUR FLOSASON ► ► Sigurður er fæddur árið 1964. Hann lauk einleikaraprófi á saxófón frá Tónlistarskóian um í Reykjavík árið 1983. ► Hann stundaði framhalds- nám í klassískum saxófón- leik og djassfræðum við Indiana ► University í Bandaríkjunum og lauk þaðan BA-prófi árið 1986 og mastersprófi árið 1988. bók Sigurðar því næsta föstudag frumflytur hann efni af öðrum ný- útgefnum geisladiski í Iðnó. Diskur- inn sá heitir Bláir skuggar og eins og nafnið bendir til er hann á blú- suðum nótum. „Við getum sagt að þetta sé töluvert blúsuð djasstónlist,“ segir Sigurður. „Hún er annars vegar inspíreruð af eldri djass- og blússamruna frá sjötta og sjöunda áratugnum og hins vegar af þeim sem spila á plöt- unni en það eru þjóðsagnapersónur í íslenskum músíkheimi, menn sem má segja að séu eiginlega orðnir elsta kynslóð starfandi íslenskra djassmúsíkanta," segir Sigurður. Mennirnir sem um ræðir eru þeir Jón Páll Bjarnason gítarleikari, Pétur Östlund trommuleikari og Þórir Baldursson hljómborðsleikari. „Þetta eru menn sem hafa allir búið og starfað lengi erlendis þó að tveir þeirra séu fluttir heim í dag og þessi tónlist er að miklu leyti samin og skrifuð fyrir þá,“ segir hann. ► Hann var ráðinn aðstoðar- skólastjóri og yfirmaður djassdeildar FÍH árið 1989. Innblásin af Ijóðum Áður en Sigurður og félagar frum- flytja tónlistina af Bláum skuggum stígur hann á svið með annarri sveit og flytur efni sem er svo nýtt að það hefur ekki enn verið hljóð- ritað. Með honum í þeirri sveit eru Kjartan Valdemarsson píanóleikari, Matthías Hemstock slagverksleik- ari og Egill Ólafsson og Ragnheiður Gröndal sem syngja hvort um sig nokkur lög. „Ég skal ekki útiloka að þetta eigi eftir að þróast út í að þau syngi eitthvað saman en við erum bara í æfingaferlinu núna,“ segir Sigurður sem útilokar ekki heldur að tónlistin verði gefin út i fyllingu tímans. Tónlistin er samin við ljóð eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson en þeir Sigurður hafa starfað töluvert saman í gegnum tíðina. „Tónlistin er lagræn, ljóðræn og draumkennd en samt dálítið fjölbreytt," segir Sig- urður og bætir við að innblásturinn komi úr ljóðum Aðalsteins. „Þegar ég sem tónlist við texta er textinn mjög sterkur útgangs- punktur hjá mér. Ég velti honum mjög mikið fyrir mér og nánast hverjum hljómi og hverri nótu í tengslum við hvert orð,“ segir Sig- urður Flosason að lokum. Gabor nýju haustvörurnar komnar. Skór og töskur. fashion xena GLÆSIBÆ S: 553 7060 Litskrúðug sviðsmynd Ólafs Elíassonar í Berlínaróperunni Ahorfendur sjálfir í aðalhlutverki fslensk/danski hönnuðurinn Ól- afur Elíasson gerir það gott í heima- borg sinni, Berlín. Hann hefur verið fenginn til þess að hanna sviðsmynd fyrir uppfærslu á óperunni Pha- edra eftir Hans Werner Henze sem verður frumflutt þann 6. september næstkomandi í óperuhúsinu við Unter den Linden í Berlínarborg. Þetta kemur fram í viðtali við ólaf á vef þýska dagblaðsins Tagesspiegel. Fram kemur að Ólafur segist ekki vera mikill óperuunnandi, enda finn- ist honum óperan að mörgu leyti hrokafullt listform. „fóperuhúsinueröllumskynfærum beint að sama miðpunktinum: Svið- inu sjálfu. Eina hreyfingin sem áhorf- endur fá er þegar þeir ganga inn og út úr salnum,“ segir hann. Því fer hann nýjar og ótroðnar slóðir við hönnun sviðsmyndar- innar, og einn liður í því er að færa hljómsveitina aftur fyrir áhorfend- urna, og skilja þannig á milli sjónar og heyrnar áhorfendanna. Á sviðinu fyrir framan hefur hann komið fyrir stórri speglakviksjá, en á hana er lýst með bláum, bleikum og gulum Ijós- kösturum. Þannig hafa áhorfendur tónlistina sjálfa í dimmunni fyrir aftan sig, en á sviðinu sjálfu sjá þeir sjálfa sig sem hálfgerða leikendur í marglitum óperusirkus. Kviksjá með speglum og Ijósum Hér geta áhorfendur séð sjálta sig í nýju Ijósi. www.meistari.is p Oabor

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.