blaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 33

blaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 33
blaöið LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2007 33 þver og á stundum erfitt með að bakka en geri það þegar ég sé að það er skynsamlegasta leiðin.“ Skrifa fyrir skúffuna Afi þinn, Sigurður Nordal, var merkur íslenskufrœðingur og rit- höfundur. Manstu eftir honum? „Ég hef lesið töluvert eftir hann, byrjaði að lesa Líf og dauða og Fornar ástir, en hef ekki lesið ítar- lega fræðiskrif hans. Ég var átta ára þegar hann dó. Ég man eftir honum. Pabbi fór mikið til hans og ég fór stundum með. Þá rétti afi mér blað og sagði: Skrifaðu nú eitthvað, og ég settist inn í borðstofu og skrifaði nafnið mitt eða einhver önnur orð á blað meðan þeir töluðu saman og hlógu mikið. Stundum fór afi með gamlar vísur sem ég skildi ekki alveg en fannst gaman að hlusta á. 1 minn- ingunni finnst mér hann hafa verið mjög gefandi á þann hátt að hann Þegar ég byrj- aði í lögfræði- námitókég kúrs í guðfræðinni en ég hefði orðið hörmulegur prestur. Nú fer ég ekki lengur í kirkju en það er í mér einhver trúarleg taug og ég finn visst haldreipi í henni. vildi upplýsa og fræða og var mikið að velta fyrir sér hlutunum. Ég held að hann hafi ekki haft gaman af barnatali og hefði frekar viljað tala við mann þegar maður væri eldri og hefði meira vit í kollinum. Hann var sterkur persónuleiki og amma mín sömuleiðis, en ég man ekki jafn vel eftir henni því hún dó þegar ég var sex ára.“ Afi þinn var gríðarlega góður stilisti. Getur þú skrifað? „Mér finnst gaman að skrifa og ég skrifa sögur fyrir skúffuna. Það er hluti af forvitni minni. Ég hef gaman af tungumálinu og nota þessar sögur sem tæki. Það er svo gott að skrifa texta til að móta hugsun sína. Það hef ég gert síðan ég man eftir mér.“ Um hvað eru þessar sögur? „Þær eru bara einhver vitleysa. Tengjast hlutum sem hafa gerst og ég er að velta fyrir mér.“ Hefurðu hugsað þér að birta þessar sögur? „Nei. Einhvern tíma datt mér það í hug en þær áætlanir voru bara bernskubrek." Trúarleg taug Þú býrð á Egilsstöðum. Sérðu að stóriðjustefnan þar hafi skilað árangri? „Það er fáránlegt að halda öðru fram. Það hafa orðið gríðarlegar og ótrúlegar breytingar fyrir austan ' á fimm árum. Ég get alveg skilið að einhverjir hafi verið á móti svo miklum virkjanaframkvæmdum en þær voru samþykktar og urðu að raunveruleika og menn verða að sætta sig við að því verður ekki breytt. Auðvitað á fólk á rétt á þvi að mótmæla en þegar menn eru komnir út í skemmdarverkastarf- semi þá er erfitt að hafa samúð með þeim. Ég velti því fyrir mér T hvort það fólk sem mótmælti þver- móðskulega fyrir austan og á höfuð- borgarsvæðinu í sumar hafi hrein- lega vitað hvað það var að tala um. Stundum efaðist ég um það. Ég held að það væri nær að ræða næstu verkefni, hvort menn vilji fara í frekari virkjanaframkvæmdir og þá hvar. Þess vegna er ég hjartan- lega sammála Þórunni Sveinbjarn- Frábœr útsölutilboð á völáum vörum ÚTSALAH SG 791 UTSALA V Karoli Svefnsofi UTSALA SG 45 tóll 30.6*° UTSALA Suprima 90x200cm 33.280,- áður 41. 120x200cm 42.400,- áður 53.UGC,- 140x200cm 49 360,- áður 61.7C0 UTSALA , 76-'2-00 Mevö i Stóll. SG www. toscana. is Rafmagnsrúm veró áöu r 1U1.600 jpöi Opið virka daga 10 til 18 ““í laugadaga 11 til 16 HÚSGAGNAVERSLUN TOSCANA SMIÐJUVEGI 2, KOP S:587 6090 HÚSGÖGNIN FAST EINNIG i HÚSGAGNAVAU, HOFN S: 478 2535 Pólitískur metnaður „Ég vil fá verkefni til að glíma við, það er ekkert gaman að vera I vinnu ef maður er ekki nýttur.“

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.