blaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 34
LAUGARDAGUR 25. AGUST 2007
blaðió
ardóttur umhverfisráðherra um að
þörf sé á rammaáætlun. Við eigum
að ræða hvað við viljum gera og
komast að niðurstöðu."
Þú ert lögfrœðingur. Af hverju
ákvaðstu að lcera lögfrceði?
„Ætli ég hafi ekki bara ætlað að
vera praktísk. Samt er ég ekki jarð-
bundin. Reyndar íhugaði ég um
tíma að fara í guðfræði. Þegar ég var
í menntaskóla fylltist ég mikilli þörf
til að fara í kirkju. Fjölskylda mín
hafði ekki til siðs að fara í kirkju
en ég fór í kirkju á hverjum einasta
sunnudegi í tvö til þrjú ár og tók
miklu ástfóstri við Árna Berg Sigur-
björnsson, prest í Áskirkju. Þegar ég
byrjaði í lögfræðinámi tók ég kúrs
í guðfræðinni en ég hefði orðið
hörmulegur prestur. Nú fer ég ekki
lengur í kirkju en það er í mér ein-
hver trúarleg taug og ég finn visst
haldreipi í henni.“
Gott að vera fslendingur
Hver eru helstu áherslumál þín
í pólitík?
„Grundvallaratriðið er að tryggja
góð kjör fólks á íslandi. Það er ekk-
ert sjálfgefið að við búum í þessu
landi en ég vil að fólkið haldist
hér. Ég er mikill íslendingur í mér.
Mér finnst beinlínis gott að vera ís-
lendingur. Við erum fámenn þjóð
og dálítið skrýtið fólk. Á einhvern
einkennilegan hátt finnst mér
það vera forréttindi að fá að vera
hérna í kulda og trekki. Og þegar
ég komst að því hversu yndislegt
er að búa úti á landi þá finnst mér
að við eigum að búa á öllu landinu.
Það er ekki gott ef allir vilja búa á
höfuðborgarsvæðinu.“
7Ég velti því fyrir
mér hvort það
fólksem mót-
mælti þvermóðsku-
lega fyrir austan og á
höfuðborgarsvæðinu
í sumar hafi hreinlega
vitað hvað það var að tala
um. Stundum efaðist ég
um það.
Vhr ekkert erfitt að flytja frá
Reykjavík til Egilsstaða?
„Ég vissi ekkert hvað ég var að
gera. Fólk sagði við mig: „Olöf mín,
þú getur ekki búið þarna af því þá
muntu ekki hafa aðgang að svo
mörgu sem þú hefur í Reykjavík".
Það var ekkert vandamál. Það sem
var hins vegar erfiðast var að ég var
að fara frá fólkinu mínu. Því fylgir
alltaf ákveðið tilfinningarót og það
tekur tíma að byggja upp nýja vin-
áttu. Ég kann alveg sérstaklega vel
við mig á Egilsstöðum. Nú tekur við
flókinn tímiþví vegna vinnu minnar
sem alþingismaður verða heimilin
tvö, á Egilsstöðum og i Reykjavík.
Maðurinn minn vinnur fyrir austan
og þar verða börnin fyrir utan elsta
soninn sem er að fara í Menntaskól-
ann í Reykjavík. Ég mun þeytast
á milli þessara tveggja staða. Það
er auðvitað ekkert gaman að vera
fjölskylda sitt í hvoru lagi og því á
eftir að fylgja söknuður en ég er viss
um að við leysum þetta á farsælan
hátt. Alþingismenn vinna mikið en
fá líka góð frí á milli og slíkt fyrir-
komulag hentar mér vel. Það á ekki
við mig að vera í 9 - 5 vinnu."
Mesta einkaframtakið
Allir vita af fundafarganinu
á Alþingi. Finnst þér gaman á
fundum?
„Ég hef setið marga fundi um æv-
ina og mín skoðun er sú að ef ekki er
komin niðurstaða eftir hálftíma þá
eigi að slíta fundinum. Ég geri mér
grein fyrir að ég get ekki staðið fast
á þessari skoðun minni á Alþingi.
Ég sat við hliðina á Steingrími J. Sig-
fússyni í einni umræðu á þingi og
málflutningur þingmanna var kom-
inn út í móa. Ég sagði við Steingrím:
,Málið snýst um allt aðra hluti en
verið er að tala um“. Hann svaraði:
,Á þinginu geta menn auðveldlega
farið í skógarferð í hverri einustu
umræðu". Svo nefndi hann í ræðu
sem hann flutti skömmu seinna að
nýi þingmaðurinn hefði verið að
undra sig á málþófinu.
Nú skil ég betur af hverju menn
sitja ekki í þingsalnum öllum
stundum. Þingmenn verða að nýta
tíma sinn til að koma verkum
í framkvæmd og það gera þeir
stundum fremur á skrifstofu sinni
en í þingsal."
Oft sér maður nýtt fólk setjast
á þing og á skömmum tíma er
búið aðprógrammera þaðþannig
að það hefur eiginlega engan kar-
akter lengur. Heldurðu að svona
fari fyrirþér?
„Fólk verður að halda sinni rödd.
Að vissu leyti er erfiðara að koma ný
inn og vera í stjórnarliði heldur en
í stjórnarandstöðu þar sem menn
hafa meira frelsi. Það er ákaflega mik-
ilvægt að glata ekki karakter sínum
og láta ekki steypa sig í ákveðið mót.
Ég vil ekki að það hendi mig og sé
ekki að það muni gerast. Að fara í
pólitík er mesta einkaframtak sem
ég hef staðið fyrir á ævinni.
Mér finnst skipta mjög miklu
máli að fólk hafi karakter og mér
leiðist linkind. Mér finnst mjög
gaman að vinna með greindu fólki
sem er á annarri skoðun en ég.
Því fylgir ögrun sem kveikir nýjar
hugsanir. Jafn einkennilega og það
kann að hljóma þá er ég til dæmis
hrifin af Vinstri grænum. Þeir eru
skemmtilegir og ég er oft sammála
þeim.“
Hefurðu mikinn metnað í
pólitík?
„Nú hef ég tekið að mér þing-
mennsku og mun reyna að starfa af
miklum þunga. Ég vil fá verkefni til
að glíma við, það er ekkert gaman
að vera í vinnu ef maður er ekki
nýttur. Ég vil standa mig og vanda
mig.“
Mér finnst mjög
gaman að vinna
með greindu
fólki sem er á ann-
arri skoðun en ég. Því
fylgir ögrun sem kveikir
nýjar hugsanir. Jafn ein-
kennilega og það kann að
hljóma þá er ég til dæmis
hrifin af Vinstri grænum.
Þeir eru skemmtilegir og
ég er oft sammála þeim.
eftir uppeldisreglunni: You
. - have to be cruel to be
kind. Viö erum ströng."
Börnin: Sigurður,
Herdís, Jóhannes og
Dóra „Við hjónin förum
'W'
-