blaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 36

blaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 36
Fimmfaldur pottur stefnir I milljónir Náðu þér í lottómiða á næsta sölustaö eða á lotto.is LAUGARDAGUR 25.ÁGÚST2007 blaðiö ÍÞRÓTTIR ithrottir@bladid.net Nú er loks í framlínu liðsins leiðtogi sem > kominn er með leiða á sætum stelpum, flottum bílum og partíum og hann mun hafa vit fyrir öðrum sóknarmönnum liðsins. Að mestu copy-paste á Spáni frá síðustu leiktíð Þótt boltahjartað íslenska slái eflaust örar hjá flestum yfir enska boltanum eru fáir sem mótmæla því að spænski boltinn sé skemmtilegri fyrir augað. Fyrstu leikirnir fara fram í dag og þrátt fyrir mikil umskipti liða á millum spáir Blaðið nánast óbreyttri stöðu þar á bæ. Sömu félög berjast í efstu sætum en Barcelona mun standa uppi með titilinn í stað Real Madrid næstkomandi maí. Real Zaragoza og Atletico Madrid berjast um sjötta sætið. 1.SÆTI JML Stórskáldið William Shake- speare hefði ekki gelað ímyndað sér dramatíkina á síðustu nietrunum á Spáni þar sem hið bráðskemnUilega lið Barcelona bókstaflega henti frá sér spænska titlinum enda leikmenn þess byrjaöir að skipu- leggja veisluhöldin strax í febrúar og með hugann annars staðar eftir það. Nú er loks í framlínu liðsins leiðtogi sem kom- inn er með leiða á sætum stelpum, flottum bílum og partíum, Thierry Henry, og hann mun hafa vit fyrir öðrum sóknarmönnuni Iiðsinsþegarlíðurá. Aðrar stjörnur liðsins, Valdes, Xavi, Messi og Ini- esta eru enn að þroskasl og Rijkaard veit upp á hár hvað hann er að gera. 4. SÆTI ^ Zaragoza 1 slefaði inn í Evrópukeppni á ' a betri markatölu en Atletico síðustu leiktíð og var að Barcelona frátöldu skemmtilegasta liðið á að horfa. Snarpur bolti og stutl spil og því verður fram haldið. Einn allra besti leikstjórnandi fótboltans, Pablo Aimar, gekk í endurnýjun lífdaga þar ásamt öðrum argent- ínskum hæfileikamanni, D'AIessandro. Með þriðja snillinginn í frcmstu línu, Diego Milito, ásamt Oliveira sem þeir fengu frá AC Milan verður marka- skorun ekki vandamál. Það eina sem kemur í veg fyrir fínt gengi er þunnur bekkuren forráðamenn cru að tækla það og er liðið orðað við fleiri leik- menn fyrir ágústlok. 2. SÆTI Bernd Schuster í stjóra- stól og leikmannakaup fyrir tíu milljarða króna. Schuster er vel af guði gerður á þjálfaravísu en að forráðamenn Real sjái fyrir sér skemmtilegri bolta undir hans stjórn en hjá Capello þýðir aðeins að þeir þurfa ný gleraugu. Schuster hefur gert ótrúlega hluti með smærri lið en aðeins með því að leggja höfuðáherslu á vörn og aftur vörn að ógleymdri vörn. Æf- ingaleikir liðsins undanfarið hafa staðfest það; sá bolti minnir meira á leðjubolta en sambabolta og langsótt að takist að leiðrétta það fimm mínútum fyrir fyrsta leik. Á tímabili leit út fyrir að ekki ætti að kaupa kantmenn í stað David Beckham en úr því hefur verið bætt á síðustu metrunum. Hjá Real er líka alltaf hægt að kaupa fleiri leikmenn þegar illa gengur og liðið mun ná öðru sæti þegar upp verður staðið næsta vor. Sévilla hefur um áraraðir verið Middles- brough þeirra Spánverja. Alltaf með og alltaf sæmi- legir og sangría og snittur á borg- arbúa í hvert sinn sem liðið endaði fyrir ofan miðju. Allir frekar sáttir ef undan er skilinn Juande Ramos sem tók við þjálfun liðsins fyrir þremur árum. Ramos hafði fram að því sjálfur verið farandverkamaður hjá hinum og þessum félögum án mikils árangurs en árangur hans síðan er vægast sagt stórkostlegur. Endurbyggja þurfti titlaálmu liðs- ins á hans fyrstu leiktíð og kaup hans á leikmönnum hafa öll hitt í mark. Nema nú er komið að skulda- skilum. Órói er í mannskapnum. Stórstjarnan Alves vill burt og fleiri sjá grænna gras annars staðar. Munar aldeilis um minna hjá ekki stærri klúbbi. Brottför Alves, ef hann fer, mun sérstaklega hafa áhrif enda á hann stoðsendingar nánast í hverjum leik. Sevilla endar neðar en síðast. 3. SÆTI Otrulega hlytur ■ ■ g g ■ að vera leiðinlegt að vera alla tíð stóra lilla liðið á Spáni. Stórlið á evrópskan mælikvarða en í hvert sinn sem félagið ætlar sér kjarakaup þá koma Real og Barca ríðandi og stela öllu steini léttara. Tvö að- altakmörk Valencia fyrir leiktíðina spila í treyjum Real í vetur og í staðinn verður liðið sem fyrr cnda- stöð fyrir eldri stjörnur á borð við Ivan Helguera og Timo Hildebrand. Engu að síður hangir liðið á aðalstjörnum sínum Villa, Silva, (oaquin og Caniz- ares og keypti Dragan Zigic frá Santander en sá kappi reyndist hvað flott- astur fyrir framan mörkin á síðustu leiktið. Minnir á Berbatov og gæti gerl rósir. 6. SÆTI inii Lengi hafa for- i ráðamenn hins , I ókonunglega liðs verkamanna í Madrid horft öfundar- augum á nágranna sína á Bernabeau ofar í borginni og sama hvað reynt er; alltaf skal Real hafa betur. Það mega þeir þó eiga hjá Atlelico að ekki hætta þeir að reyna. Stórstjarnan Torres farinn og seðla- búntin fyrir hann notuð upp til agna. Reyes, Simao, Luis García og Forlán nýir inn auk eins efnilegasta miðjumanns landsins, Raúl García. Munu velgja öllum sinum andstæð- ingum undir uggum og hver veit nema það vinni eins ogeinu sinni einn lcik gegn hinum djöful- legu hvítklæddu andstæð- ingum sínum i Real. Ná langþráðu Evrópusæti.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.