blaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 37
blaóió
LAUGARDAGUR 25.ÁGÚST2007
37
Mannskapur liðsins er sem fyrr fyrsta flokks en ósköp
eru menn orðnir aldraðir. Cafu, Maldini, Favalli, Serg-
inho og Inzaghi eru enn byrjunarliðsmenn hátt á fer-
tugsaldri og hafa vart þol lengur til að labba út í sjoppu.
Inter rúllar upp ítölsku deildinni aftur
Ef frá er talið platónskt ástarsamband Silvio Berlusconi, eiganda AC Milan, við Ronaldinho hinn brasil-
íska hjá Barcelona hefur farið lítið fyrir ítalska boltanum og fáar alvöru sprengjur fallið. Víst er talsvert
um leikmannaskipti en þar eru meðalplebbar í aðalhlutverkum og segir sitt að stærstu aðkeyptu nöfnin
hingað til eru þeir Cicinho og Giuly sem báðir leika listir í Róm þessa leiktíðina. Hvorugur var fasta-
maður í liði sínum vestar við Miðjarðarhafið. Blaðið spáir sömu lokastöðu næsta vor frá því sem var.
1.SÆTI
Mancini og
hans menn tóku \ /
ítölsku dcildina
mcð annarri hendi
á síðustu leiktíð og hefðu
strangt til tekið getað farið
í sumarfrí snemma í mars
án þess að eiga á hættu að
missa titilinn. Gleðiefni fyrir
aðdáendur en sorglegt fyrir
deildina að eitt lið skari svo
mjög frain úr og kann að
skýra dvínandi vinsældir.
Það útskýrir hins vegar ekki
hvers vegna önnur stórlið
landsins halda að mestu að
sér höndum. Inter er eitt
af örfáum liðum sem bætir
sig verulega með kaupum á
varnarjaxlinum Chivu frá
Roma og markainaskinunni
Suazo frá Cagliari og var þó
bekkurinn vel skipaður fyrir.
Inter cndurtekur leikinn
frá síðustu leiktíð og það
nokkuð auðveldlega.
4. SÆTI
Hversu mikla
virðingu er hægt
að bera fyrir Fior-
entina sem fyrirör-
fáum árurn var dæmt niður
í þriðju deild vegna svika
eigenda þess, hefur tvívegis
orðið gjaldþrota síðan um
aldamót en er engu að síður
að taka þátt í Evrópukeppni
félagsliða þelta árið eftir
gott gengi síðasta vetur. Mjög
mikla, vægast sagt. Andinn í
herbúðum þess er einstakur
á ítalska vísu og þar herðast
menn við mótlæti ólíkt því
sem jafnan er raunin hjá t.d.
Lazio eða Sampdoria. Það
sem meira er; ekki er búist
við miklu af þeim vegna
brottfarar Luca Toni og
endurkomu gamalla stórliða
eins og Juve og Napoli í efslu
deild. Þeir koma á óvart og
standa sig enn betur nú.
Allt er þá þrennt er
segir máltækið sem
er kolrangt í tilfelli
Roma. Síðustu sex ár
hefur liðið fjórum sinnum
endað í öðru sæti á Ítalíu sem
er reyndar frábært miðað við
þær hræringar og vandamál
sem upp hafa komið á þeim
tíma. Siðasta ár var engin
undantekning og þetta verður
það ekki heldur. Vissulega
hefur Roma styrkt sig með
Cicinho og Giuly en mest er
þó um vert að bráðefnilegar
framtiðarstjörnur liðsins, þeir
De Rossi og Aquilani, auk ann-
arra fengu dýrmæta reynslu á
liðinni leiktið. Ekki sist á Old
Trafford í Manchester þar sem
stórliðið ítalska hlaut kistu-
lagningu og jarðarför á 90
mínútum. Totti verður áfram
þungavigtarmaður liðsins en
það þarf að hvíla karl reglu-
lega ef liðið ætlar sér eitthvað
meira en annað sæti.
Það var sannarlega
húrrandi sigling á vjj
ACMilan á síðustu
Iciktíð en hálfu ári
of seint. Hörmuleg byrjun
kom í veg fyrir að liðið ætti
nokkurn tíma möguleika
á titli og það gerist ekki
aftur. Hins vegar ógnar AC
fjenduin sínum í Inter ekki
mikið og endar langt á eftir
í öðru sæti. F.ngin markverð
kaup hafa verið gerð enda
Berlusconi að spara fyrir
Ronaldinho en líkurnar á
að hann komi nú eru engar.
Mannskapur liðsins er sem
fyrr fyrsta flokks en ósköp
eru menn orðnir aldraðir.
Cafu, Maldini, Favalli, Serg-
inho og Inzaghi eru enn
byrjunarliðsmenn hátt á
fertugsaldri og hafa vart þol
lengur til að labba út í sjoppu
hvað þá í stanslausa tíu mán-
aða baráttu í seríu A.
/lUJfENTUsy
Gamla kerlingin
mætt aftur á sinn
stað og sem fyrr með
forríka eigendur. Þeir
munu opna veski sín um leið
og vart verður við hiksta í
vél hinnar gömlu. En það er
ekki líklegt. Hópurinn er enn
feiknasterkur og Juve rúllaði
seríu B jafn auðveldlega upp
og Inter seríu A. Del Piero og
Nedved eru enn fyrsta flokks
og Claudio Ranieri þjálfari veit
sínu viti. Líkast til verður um
frekari kaup á leikmönnum að
ræða fyrir mánaðamót enda
verður dýpt lykilatriði þegar
líður á. Buffon er ennþá mark-
vörður númer eitt á Italíu og
ekki að ástæðulausu. Kaupin
á Tiago og Andrade voru fín,
báðir góðir til brúks og auka
breiddina. Eina spurning-
armerkið varðar Trezeguet.
Hann gæti farið og þá vantar
sárlega bona fide skorara til að
nýta færin.
6.SÆTI
Þriðja sætið á t-.jý'1,
síðustu leiktíð n.
var betri árangur
en nokkuð þorði að
vona í I.azio. Liðið er eitt
hinna stóru í landinu en
hefur verið í tjóni nú um
nokkurra ára skeið. Nú loks
sér fyrir endann á fjárhags-
vandræðum sem plagað hafa
liðið síðan uin aldamót þegar
I.azio eyddi liða mest í heim-
inunt í leikmenn án nokkurs
árangurs. Hér er nokkuð vel
skipað í allar stöður ef frá er
talinn aðalinarkvörður liðs-
ins, hinn 43 ára gamli Marco
Ballotta, sem því miður fyrir
Lazio er enginn Dino Zoff.
Sóknarlína liðsins er ein sú
skemmtilegasta ineð Pandev
og Rocchi sem sanian settu
27 stykki síðasta vetur. Þá er
vandfundnir betri leikmenn
en Massimo Oddo og Valon
Behrami sem þykir með
þeim cfnilegustu í álfunni.
Fimmfaldur
pottur stefnir i
milljónlr
Náðu þér í lottómiða
á næsta sðlustað
eðaálotto.is