blaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 39
blaöió
LAUGARDAGUR 25.ÁGÚST2007
39
ORÐLAUSLAUGARDAGUR
ordlaus@bladid.net
tQgas Þrír okkar eiga til
dæmis börn og flestir
eru með einhvers konar
konur upp á arminn.
Lohan fær
dag í fangelsi
Lindsay Lohan fékk þriggja
ára skilorðsbundinn dóm og
sólarhring í fangelsi fyrir um-
ferðarlaga- og fíkniefnabrot sem
áttu sér stað í lok síðasta árs og
snemma á þessu ári. Lohan mun
einnig þurfa að sækja meðferð í
18 mánuði og skila af sér tíu daga
samfélagsþjónustu. Lohan gaf frá
sér yfirlýsingu í kjölfar dómsins
og sagði það vera greinilegt að
hún hefði misst tökin á lífi sínu
og að það væri áfengi og eitur-
lyfjum að kenna. „Eg skammast
mín fyrir allt það sem ég hef gert,
bæði sjálfri mér og fjölskyldunni.
Ég braut lögin og mun taka fulla
ábyrgð á gjörðum mínum.“
Hljómsveitin Reykjavík! tryllir lýðinn á erlendri grund
Njóta fulls trausts
tollvarðanna í Leifsstöð
Þúsundir skráðu sig á Fóstbræðraundirskriftalista Katrínar.is
Fóstbræður gleymast ekki
„Þetta er ótrúlegt," segir Katrín Atladóttir, Katrín.is,
um fyrirhugaða DVD-útgáfu sjónvarpsþáttanna Fóst-
bræðra. Fram kom í Blaðinu í gær að stefnt sé að því að
gefa alla þættina út um jólin.
„Ég ætla að stela mér krediti fyrir þetta,“ segir Katrín,
en hún er með undirskriftalista á bloggsíðu sinniþar
sem hún hvetur til þess að Fóstbræður verði gefnir út
á DVD. Þúsundir hafa skráð sig á listann, sem hefur
verið á Netinu síðan 27. maí 2004. „Það eru geðveik-
islega margir búnir að skrá sig og listinn er ennþá að
poppa upp á bloggsíðum.“
Langbestu íslensku þættirnir
Katrín segir Fóstbræður langbestu íslensku sjón-
varpsþætti allra tíma. „Þættirnir verða fyndnari og
fyndnari. Það er alveg ótrúlegt, því þetta er ekki svona
samtímagrín, þetta er ekki Spaugstofan. Fólk er ennþá
að kvóta Fóstbræður. Þetta gleymist ekkert.“
Jón Gnarr er uppáhalds „fóstbróðir“ Katrínar, en hún
á margar uppáhaldspersónur. „Ógeðslega leiðinlegi
afinn var góður,“ segir hún. „Svo finnst mér konan sem
kunni bara að elda bjúgu góð.“
atli@bladid.net
Spila í gömlu fangelsi í Eistlandi Hljómsveitin Reykjavík! spilaði á íslenskum menn-
ingarviðburði I Finnlandi í gær en hélt svo með ferju til Tallinn í Eistlandi til þess að spila
í gömlu og vígalegu fangelsi.
Hljómsveitin Reykjavik!
er á ferðalagi um Evrópu
og hyggst meðal annars
spila í vígalegu fangelsi í
Eistlandi.
Eftir Halldóru Þorsteinsdóttur
halldora@bladid.net
„Núna erum við staddir í Helsinki
í Finnlandi og í þessum töluðum
orðum fer fram Menningarnótt
þeirra Finna. Við erum að spila
á íslenskum menningarviðburði
á vegum íslenska sendiráðsins
þar sem meðal annars Hugleikur
Dagsson kemur fram og myndlistar-
konan Hulda Leifs,“ sagði Haukur
Magnússon, meðlimur hljómsveit-
arinnar Reykjavík! þegar Blaðið
náði af honum tali í gær.
Hljómsveitin var í þeim töluðum
orðum að setja sig í stellingar fyrir
aðra tónleika sem haldnir verða í
Tallinn í kvöld.
„Við erum að fara að spila í
einhverju rosalegu húsi í Tallinn.
Þetta er gamalt fangelsi og alveg
hrikalega stórt og vígalegt í útliti.
Við leikum þarna á tónleikum til
styrktar baráttunni gegn eyðni
ásamt fjórum öðrum hljómsveitum
frá öllum Norðurlöndunum. Við
tökum einhverja brjálaða partíferju
yfir til Tallinn, en mér skilst að
eldri borgarar fjölmenni í ferjuna
til þess að drekka og dansa gömlu
dansana. Þau fara víst til Eistlands
til þess að kaupa sér brennivín og
svo til baka morguninn eftir.“
Ekkert salt í grautinn
Hljómsveitin hefur verið með
annan fótinn á erlendri grund
síðustu misserin og ekkert lát er á
ferðunum næstu mánuðina. 1 okt-
óber halda strákarnir til Montreal
og Parísar, auk þess sem tónleikar
í New York eru einnig fyrirhugaðir
núna í haust.
„Við erum búnir að vera rosa
mikið úti að spila og á þessu ári
höfum við farið að meðaltali einu
sinni í mánuði. Tollverðirnir í Leifs-
stöð eru farnir að kalla okkur með
nafni svo að við gætum auðveldlega
farið að smygla inn eiturlyfjum þar
sem þeir treysta okkur orðið svo
vel. Svo eru gellurnar á barnum
alltaf að bjóða okkur fimmu og við
erum búnir að borða soðnu skink-
una í flugvélinni í morgunmat
þrjátíu sinnurn," bætir Haukur við
og tekur fram að hljómsveitarmeð-
limir eigi vart fyrir salti í grautinn
eftir allt útstáelsið.
„Núna eigum við ekki einu sinni
fyrir grautnum! Þetta kostar náttúr-
lega vinnu og peninga auk þess sem
þetta reynir á þolinmæði fólksins
í kringum okkur. Þrír okkar eiga
til dæmis börn og flestir eru með
einhvers konar konur upp á arm-
inn. En við erum með skilningsríka
atvinnuveitendur og fjölskyldur
svo að þetta gengur allt upp.“
fslensk tónlist trekkir að
Haukur segist þess fullviss að
mikil gróska í íslensku tónlistarlífi
hafi áhrif á útrás íslenskra tónlist-
armanna og vill hann meina að
sviðsljósið sé um þessar mundir á
Islandi hvað tónlistina varðar.
„Island hefur mjög gott orð á
sér fyrir tónlist og þeir sem fara
niður í miðbæ vita að þriðjungur
ferðamanna kemur hingað til lands
vegna áhrifa frá Björk, Sigur Rós
og íslenskri tónlist. Músíklífið á
íslandi er mjög heilbrigt og rosa
mikið af fólki að gera góða hluti.
Svo held ég að við eigum að mörgu
leyti auðveldara með að komast út
með okkar tónlist en mörg önnur
lönd og við virðumst fá tækifærin
alveg grimmt. Þetta getum við auð-
vitað þakkað þeim íslensku tónlist-
armönnum sem gert hafa það gott
úti og svo hefur tónlistarhátíðin
Airwaves mikið að segja,“ segir
Haukur, sem vill meina að ísland
hafi gott orð á sér fyrir áhugaverða,
skemmtilega og fjölbreytta tónlist í
háum gæðaflokki.
„Eins og fiskurinn er þekktur
fyrir að vera ferskur og lambakjötið
gott, þá er músíkin fyrst og fremst
þekkt fyrir að vera fersk og góð!“
Biggi í Maus ritstýrir Monitor
Engum kæli
stungið í samband?
Sigrún Ósk Sigurðardóttir, að-
stoðarforstjóri ÁTVR, segir enga
ákvörðun hafa verið tekna um
hvort kælirinn verði settur upp
aftur í Vínbúðinni í »» g*
Austurstrætinu.
Ovænt
samstarf
Davíð Smári og
Maggi Kjartans
taka upp lag
„Við erum að tala um eitt lag sem
Maggi samdi,“ segir Davíð Smári
Harðarson, sem gerði garðinn
frægan í íslenska Idolinu. Magnús
Kjartansson vinnur nú með honum
að lagi sem fer í spilun á næstunni.
„Við erum í upptökum þessa dagana.
Við erum sem sagt að spá og spek
úlera og erum búnir að taka upp
heilan helling, en samt alltaf að laga
og leika okkur.
Aðspurður um nafn lagsins fyllist
rödd Davíðs dulúð. „Það fæst ekki
uppgefið strax, þú verður bara að
fylgjast með þegar að því kemur. En
lagið er svona popprokk-skástrik-
ballöðu-eitthvað. Þetta gæti farið
allt frá Fm957 yfir í Rás 1. Þetta fer
inn á öll svið, skemmtilegt nokk.“
Stórfyrirtækin
vilja stjörnurnar
Stjörnurnar eru eftirsóttar í auglýs-
ingaherferðir stórfyrirtækja enda
vekja þær alltaf athygli. Það er
því ekki furða að stjörnurnar séu
fengnartilþess aðvera
andlit tiskumerkjanna.
Nýja götublaðið Monitor mun
líta dagsins ljós í september
næstkomandi. Um er að ræða
mánaðarlegt blað sem dreift er í
skóla, verslanir og á aðra fjölfarna
staði hérna á Klakanum og hafa
aðstandendur blaðsins lýst því yfir
að um svipaða hugmynd og gamla
götublaðið Undirtóna sé að ræða.
Aðaláherslan verður lögð á íslenska
poppmenningu og tónlist almennt
auk þess sem kvikmyndum og
tísku verður gefinn gaumur.
Birgir Örn Steinarsson, betur
þekktur sem Biggi í Maus, hefur
verið fenginn til þess að ritstýra
nýja blaðinu, en hann segir tak-
markið vera að gefa út uppbyggj-
andi miðil fyrir poppmenningu
landsins.
„Markmið okkar er að fylgjast
með þeirri nýju poppkynslóð sem
er loksins að rísa upp á yfirborðið,
halda utan um hana og láta aðra
vita hvað er að gerast hjá þeim.
Svipað og Undirtónar gerðu á
sínum tíma fyrir mína kynslóð.
Þetta á við hvort heldur tónlist,
hönnun, kvikmyndir eða bækur,“
sagði Birgir í fréttatilkynningu sem
Blaðinu barst í gær.
halldora@bladid.net
Ritstýrir nýju götublaði
fyrir ungt fólk Birgir Örn
Steinarsson er ritstjóri
götublaðsins Monitor sem
kemur út næstkomandi
september.
Ótrúlegur maður
Þessi maður er rétt rúmlega ótrú-
Iegur,“ segir Davíð um Magnús Kjart-
ansson og bætir við að þeir nái mjög
vel saman í hljóðverinu. „Hann er
svo fyndinn og skemmtilegur að
maður er alveg kominn með harð-
sperrur í kviðvöðvana eftir kvöldið.
Hann er alveg þrælskemmtilegur."
Davíð hefur verið upptekinn við
spilamennsku í sumar, en útilokar
ekki nýja breiðskífu á komandi
misserum. „ Aldrei að vita, spurning
hvort maður hafi tíma,“ segir hann.
„Maður lokar ekki fyrir neitt.“
atli@bladid.net