blaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 40
FÚR BEINT
ÁTOPPINN
í USA
smrtffffVB/ó
hSÍSlábíó
TTEBOURFEULnMAJllM IM.6.8oQlOT<RAFr
RUSHHOUR3
SIMPSON íslenskt tal jkl.6
BOURNE ULTIMATUM
itFEBOURNEULnMAIUM M. 5.40,8,102OP0WER 14
RUSH H0UR3 M.3.45,6,8og10
RATATOUILLEisl.a ' rkl. 3.45 L
TRANSFORMERS 1(1. 7 og 10 10
SIMPSON feJensktí W.4 L
SICKO W. 530 oq 8 7
DIE FALSCHER M. 8 14
FUCK kl. 530 7
DEATH OF A PRESIDENT M.1030
GOYA'S GHOST M. 5.30
FOR YOUR CONSIDERATION M.8 7
COCAIN COWBOYS W.8 14
GOODBYE BAFANA kl.530 7
SHORTBUS W.10S0 18
GOING TO PIECES W. 10.30 16
AWAY FROM HER W.10S0 7
ÁLFABAKKA m
astrópíá W. 6:15-8-10:10
astrópíá kl. 8-10:10 VIP
RATATOUILLEtNSKUTAL W. 5:30*8-10:30 L
RATATOUILLE LTAL k). 4-5:30 DIGIttl l
TRANSF0RMERS W. 5-8-10:40 10
TRANSF0RMERS W.5
NANCY DREW W.6 7
GE0RGIA RULES W.8 7
HARRY P0TTER5 W.8:15 10
SHREK3M/ÍSLTAL W.4
OCEAN'S 13 kl. 10:10 7
siú&ð. b. KRINGLUNNI
i ASTRÓPÍÁ kl. 6-8-10:10
B0URNE ULTIMATUM W. 5:40-8-10:20 14
RATATOUILLE 7-ÍSLTAL kl. 5:30 DtöHAl L
RATAT0UILLE W. 8 l
TRANSF0RMERS kl. 10:20 10
QBBI ASTRÓPÍA m AKUREYRI kl.6-8-10 1
RATAT0UILLE W. 6
RATAT0UILLE W. 8 L
TRANSF0RMERS kl. 10:15 10
ÉSŒFUVÍK
ASTRÓPÍA kl.8-10
B0URNE ULTIMATUM W. 8-10:30
ASTRÓPÍÁ m SFLFOSSI s. 412 3007 kf-7-9 TD
RUSH H0UR3 W.7-9 12
ASTROPIA W. 6,8og10 L
THE BOURNE UUIMATIJM kl. 530,8 0^1030 14
RUSH H0UR 3 W. 6,8og10
BECOMING JANE W. 530,8 og 1030 L
THEBOURNEULHMATUM W.530,8og1030 14
THE BOURNE Ú. LUXUS W.530,8og1030 14
RUSH HOUR 3 W. 3.45,550,8 og 10.10
SIMPSON enskttal kl. 4,6,8 og 10 L
SIMPS0N Islenskt tal kl. 4 og 6 L
DEATH PROOF kl. 10.45 16
DIEHARD4.0 W.8 14
LAUGARDAGUR 25. ÁGUST 2007
blaóiö
ORÐLAUSLÍFIÐ
ordlaus@bladid.net
Ef þeir gefa grænt ijós þá
fer hann [kælirinn] upp.
Ég reikna með því að þeir
hafi samband fljótlega
Stuttmyndakeppni á MySpace
Myndir alls
Nú stendur yfir stuttmyndakeppni á vefnum
MySpace.com í tilefni af Alþjóðlegri kvikmynda-
hátíð sem fer fram dagana 27. september til 7. okt-
óber en kvikmyndagerðarmönnum hvaðanæva
úr heiminum gefst tækifæri til að vinna ferð til
Reykjavíkur þar sem myndin þeirra verður sýnd
á sérstakri sýningu þann 30. september.
„Það eru nokkuð margir búnir að senda inn
myndir," segir Atli Bollason, einn af skipuleggj-
endum hátíðarinnar. „Þetta hefur farið frekar
hratt af stað, en það er skilafrestur til föstu-
dagsins 31. ágúst. Þetta eru allskonar myndir
sem við höfum verið að fá sendar frá fólki alls
staðar að úr heiminum. Við munum svo sía
úr þeim myndum sem berast og síðan verður
kosið á milli þeirra mynda sem þykja bera af og
sigurvegurunum verður boðið til íslands. Þetta
staðar að
lítur vel út en dómnefnd tekur ákvörðun um
það hvaða myndir fara í kosningu þegar þar að
kemur.“
Að sögn Atla stendur keppnin einna helsl
erlendum kvikmyndagerðarmönnum til boða en
íslenskum kvikmyndagerðarmönnum er einnig
frjálst að taka þátt. „Verðlaunin miðast aðallega
við erlenda kvikmyndagerðarmenn en þeim
verður boðið hingað til lands á hátíðina ásamt
því að mynd þeirra verður sýnd, þannig að
önnur verðlaun en sýning myndarinnar standa
íslenskum þátttakendum ekki til boða, en það
er kannski næg viðurkenning í sjálfu sér. Því
miður getum við ekki sent íslendingana eitthvað
út í heim í staðinn,“ segir Atli og hlær. Upplýs-
ingar má fá á www.myspace.com/goldenpuffin
hilda@bladld.net
Atli Bollason Segir fjölda stuttmynda hafa borist í
keppnina
Óvissa ríkir í stóra bjór- og vínkælismálinu
Ennþá volgt vín
í Austurstræti
Verslunarstjórinn í
Austurstræti bendir á
aðstoðarforstjóra ÁTVR
í stóra bjór- og vínkælis-
málinu. Aðstoðarforstjóri
ÁTVR bendir á borgar-
stjóra. Borgarstjóri svarar
ekki í símann.
Eftir Atla Fannar Bjarkason
atli@bladid.net
„Ég hef ekkert heyrt í minum yfir-
mönnum, ég var nú bara að mæta
í vinnuna og þeir hafa ekkert talað
við mig ennþá,“ segir Einar Jónat-
ansson, verslunarstjóri Vínbúðar í
Austurstræti, aðspurður hvort bjór-
og vínkælirinn verði aftur settur
upp í kjölfar ummæla Vilhjálms Þ.
Vilhjálmssonar borgarstjóra á mbl.
is á fimmtudag.
Vilhjálmur sagði í viðtali við mbl.
is að sín vegna mætti setja kælinn
aftur upp. Yfirmenn Vínbúðar
höfðu ekki haft samband við Einar
þegar Blaðið hafði samband. „Ef
þeir gefa grænt ljós þá fer hann upp.
Eg reikna með því að þeir hafi sam-
band fljótlega,“ segir hann.
Engin ákvörðun tekin
Sigrún Ósk Sigurðardóttir, að-
stoðarforstjóri ÁTVR, segir enga
ákvörðun hafa verið tekna um
hvort kælirinn verði settur upp
Undir þrýstingi Öll spjot beinast aö
borgarstjóra í stór bjór- og vínkælamálinu.
Bjór- og vínkælirinn í Vín-
búðinni Austurstræti var
settur upp í fyrra.
► Hann var tekinn niður að
beiðni borgarstjóra fyrr í
þessari viku.
aftur. „Það hefur ekkert verið rætt.
Við fengum formlegt erindi frá
borgarstjóra, sem við svöruðum
formlega. Það hefur engin önnur
ákvörðun verið tekin. Svoleiðis
stendur málið.“
Sigrún segir ákvörðunina vera
í höndum borgarstjóra. „Ef það
verður tekin ákvörðun um að setja
upp kæli í Austurstræti, þá verður
það ekki í beinni. Við erum með
kæla í öðrum búðum. Það er ekki
seld kæld vara í Austurstræti og
það hefur ekki verið tekin önnur
ákvörðun um það. Borgarstjóri
verður bara að senda erindi."
Valinn bjór í skápnum
ÁTVR varð ekki við beiðni borg-
arstjóra um að hætta sölu á bjór í
stykkjatali í Vínbúðinni Austur-
stræti á grundvelli jafnræðisreglu
sem gildir um birgja. Kælirinn sem
var fjarlægður var staðsettur baka
til i búðinni úr augsýn viðskipta-
vina Vínbúðarinnar.
„Við settum hann upp í fyrra og
þjónustan hefur mælst mjög vel
fyrir,“ segir Einar Jónatansson. „En
við pössuðum okkur á því að hafa
ekki þessa bjóra í
mennirnir úti á
götu eru að
drekka. Við
höfðum
þá ekki í
skápnum.“
Ekki
náðist í borg-
arstjóra við
vinnslu fréttar
innar.
UMDEILDUR KÆLIR
Fjölnir Þorgeirs
er á lausu
í Blaðinu í gær var sagt að hjarta-
knúsarinn Fjölnir Þorgeirsson
væri búinn að krækja í núverandi
ungfrú Suðurland, Rebekku Páls-
dóttur. Þetta er rangt. Fjölnir á
enga kærustu í dag og nýtur nú
lífsins í sveitinni ásamt tveggja
ára syni sínum og fyrrverandi
eiginkonu. Fjölnir er beðinn af-
sökunar á mistökunum.
afb
Crowe leikur
í Batman
Leikarinn Russell Crowe mun
taka að sér hlutverk í nýjustu
Batman-myndinni, samkvæmt
leikaranum Christian Bale, en
Bale greindi frá þessu í viðtali við
tímaritið iF þar sem hann kynnti
myndina 3:10 To Yuma en bæði
Crowe og Bale fara með hlutverk
í þeirri mynd. Til stóð að halda
því leyndu að Crowe hefði tekið
að sér hlutverk í Batman en Bale
varð fyrstur til þess að segja
opinberlega frá því. „Það kom
mér mjög á óvart þegar Russel
sagðist hafa ákveðið að leika
í Batman, en ég hlakka til að
leika aftur á móti honum.“ Bale
neitaði hins vegar að segja frá því
hvaða hlutverk Crowe kemur til
með að leika en einhverjir telja að
hann muni leika skúrkinn Dark
Knight.
Raddpróf og skráning
% í gospelkór fyrir ungtfólká
aldrinum 16-25 ára
þriðjudaginn 28 ágúst kl:19:30
í Vídalínskirkju í Garðabæ
þáttaka er ókeypis og
metiðtil eininga í FG
nánari upplýsingar jonahronn@gardasokn.is
Slapp eftir nokkrar mínútur
Nicole Richie átti að hefja fjög-
urra daga afplánun í gær. Richie
hlaut dóm fyrir að hafa ekið undir
áhrifum vímuefna. Þetta var ekki í
fyrsta skipti, en hún var kærð fyrir
ölvunarakstur árið 2003. Richie
þurfti þó ekki að dvelja lengi í tukt-
húsinu að þessu sinni þar sem hún
var látin laus eftir aðeins 82 mín-
útur en ekki reyndist pláss fyrir
hana í yfirfullu fangelsinu. Richie
var látin laus eftir að fingraför
höfðu verið tekin af henni og hún
færð til bókunar en lög kveða á um
að þeir sem hafa verið dæmdir til
minna en 30 daga fangavistar skuli
fara frjálsir ferða sinna reynist ekki
pláss fyrir þá á bak við lás og slá.