blaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 42
LAUGARDAGUR25.ÁGÚST2007
blaóiö
ORÐLAUSTÍSKA
tiska@bladid.net
Breska leikkonan Keira Knightley
gerði nýlega samning við Chanel
en leikkonan leikur í auglýsingu
fyrir nýjan ilm frá fyrirtækinu.
Ný lína frá
Chanel komin
á markað
Nýja haust- og vetrarlinan frá
snyrtivörumerkinu Chanel
hefur nú litið dagsins ljós og er
fáanleg í verslunum hér á landi.
Línan samanstendur af flottum
augnskuggum, kinnalitum og
glossum í mjúkum jarðarlitum
og eru brúnn, rauður, gylltur,
grænn, bleikur og brons helstu
litir línunnar.
Á meðfylgjandi myndum getur að
líta brot af vörum línunnar.
Lévres scintillantes núm-
er 96 Fölbleikt gloss með
góðum glans og flottri áferð.
Liturinn sómir sér vel með
hefðbundinni dagförðun auk
þess sem hann tónar vel með
dökkum og
áberandi
augum.
Irréelle blush-kinnalitur Kinnaliturinn,
sem heitir 26 Neroli Rose, er Ijósbleikur
og gefur andlitinu náttúrulegan og frísk-
legan blæ. Liturinn er flottur einn og sér
á kinnunum eða ásamt flottu sólarpúðri.
Les 4 Ombres í nýju línunni koma
nokkur augnskuggabox með fjórum litum
innanborðs. Á myndinni sést boxið 86
Garden-Party, en það samanstendur af
grænum, rauðum og gylltum tónum. Lit-
irnir koma allir mjög vel út einir auk þess
sem þeir geta saman myndað flottar
skyggingar.
Gamli góði „minimizerinn" nýkominn
aftur I D,DD,E,F,FF,G skálum á
kr. 3.990,-
Mjög flottur, glænýr litur f
D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 4.990,-
Létt fylltur fyrir „brjóstgóðar" [
D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 5.990,-
Frægar leikkonur gerast fyrirsætur
Fá milljónir í sinn hlut
Stjörnurnar eru eftir-
sóttar í auglýsingaher-
ferðir stórfyrirtækja
erlendis enda vekur það
gjarnan athygli þegar
þekktur einstaklingur ger-
ist andlit ákveðins merkis.
Eftir Hildu H. Cortez
hilda@bladid.net
Fræga fólkið vekur alltaf og alls
staðar athygli og er því ekki furða
að stjörnurnar séu fengnar til þess
að vera andlit þekktra tískumerkja
á borð við Chanel, Louis Vuitton og
Cavalli. Ástæðan fyrir því að stjörn-
urnar eru svo eftirsóttar er sú að
fræga fólkið dregur mikla athygli
að þeim vörum eða málefnum sem
verið er að auglýsa.
Ungar auglýsa stóru merkin
Ungar leikkonur höfða einna
mest til þess hóps sem er hvað
líklegastur til þess að festa kaup á
vörum sem tískumerkin auglýsa
og þess vegna hafa stærstu merkin
skartað þekktum leikkonum
í auglýsingaherferðum sínum
undanfarin ár. Leikkonan Scarlett
Johansson er andlit Louis Vuitton
en hún fetar í fótspor þeirra Umu
Thurman og Christinu Ricci sem
áður auglýstu merkið. Leikkonan
Drew Barrymore er andlit Gucci en
hún hefur auglýst nýja skartgripa-
línu fyrir fyrirtækið.
Breska leikkonan Keira
Knightley gerði nýlega samning
við Chanel en leikkonan leikur i
auglýsingu fyrir nýjan ilm frá fyrir-
tækinu. Áður hefur Nicole Kidman
auglýst ilmvatnið Chanel N0.5.
Söngkonan Beyoncé Knowles
gerði samning við Empori Armani
en hún auglýsir Diamond sem er
nýr ilmur frá Armani en forsvars-
menn fyrirtækisins sögðu enga
aðra stjörnu hafa komið til greina
fyrir herferðina.
Skartgripamerkið Pilgrim sem
hefur meðal annars vakið athygli
hérlendis skartar leikkonunni Liv
Tyler í auglýsingum sínum en hún
tók við því hlutverki af vinkonu
sinni Helenu Christensen.
Leikkonan Angelina Jolie tekur
ekki að sér hvaða verkefni sem er,
þrátt fyrir að miklir peningar séu í
boði, en Jolie gerði nýlega samning
við bandaríska fyrirtækið St. John
og er nú bæði andlit og talsmaður
fyrirtækisins sem starfrækir einnig
góðgerðasamtök sem styðja við mál-
efni barna víðs vegar um beiminn.
Vekja athygli á verslanakeðjum
Stórar verslanakeðjur hafa einnig
leitað til stjarnanna en þeirra
á meðal eru spænska verslunar-
keðjan Mango og sænska keðjan
H&M.
Forsvarsmenn Mango gerðu
samning við spænsku þokkadísina
Penelope Cruz en leikkonan var
einnig fengin til þess að hanna föt
fyrir merkið og hið sama má segja
um Madonnu sem hannaði fatalínu
fyrir H&M.
Breska leikkonan Sienna Miller
hefur landað nokkrum samn-
ingum en hún auglýsir nú galla-
buxur fyrir Pepe Jeans og leður-
vörur fyrir tískumerkið Tod.
DÆMI UM LEIKARA SEM VERÐA MÓDEL
Stjörnurnar fá flestar mikla peninga í sinn hlut taki
þær að sér að auglýsa ákveðnar vörur. Þessar hafa gert
stærstu samningana samkvæmt tímaritinu Adweek.
Catherine Zeta-Jones Leikkonan þén-
ar meira á auglýsingum en nokkur önnur
stjarna en hún hefur auglýst farsíma fyrir
fyrirtækið T Mobile í tvö ár og fær 1,3
milljarða á ári fyrir.
Gwyneth Paltrow Leikkonan gerði nokk-
urra ára samning við snyrtivörurisann
Estée Lauder og fær 180 milljónir á ári.
Charlize Theron Auglýsti úr fyrir Raym-
ond Weil og ilmvatn fyrir Dior en Theron
gerði þriggja ára samning við Dior og fær
samtals 390 milljónir en samningurinn við
Weil hljóðar upp á 160 milljónir.
Scarlett Johansson Fær 180 milljónir
á ári frá L'Oreal. Leikkonan gerði tveggja
ára samning við fyrirtækið.
Angelina Jolie Samkvæmt tímaritinu
Adweek fær leikkonan Angelina Jolie 780
milljónir fyrir að auglýsa tískumerkið St.
John og auk þess ákveðna þrósentu af
veltu fyrirtækisins.
Keira Knightley Fetar í fótspor Nicole Kidman Angelina Jolie Er andlit og tals-
og auglýsir ilm fyrir Chanel. kona tískumerkisins St. John.
Flottir reimaðir leðurskór í
stœrðum 41-46 á
kr. 6.300,-
Mjúkir og yndislegir skór
með frönskum rennilás í
stœrðum 41-46 á kr. 6.585,-
Misty, Laugavegi 178
Sími 551 2070
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf
Snyrtibudda vikunnar
Spennandi vörur í snyrtiveskið
Northern Light-kinnalitur frá
MAC Northern Light-kinnaliturinn
er úr einni af nýjustu línum MAC,
Flashtronic. Liturinn, sem saman-
stendur af mörgum rauðbrúnum
tónum, kemur einstaklega vel út á
kinnum og á andliti auk þess sem
hægt er að nota hann í allskyns
skyggingar.
Hárautt naglalakk frá O.P.I
Nagalalökkin frá O.P.I standa
alltaf fyrir sínu og toila vel á
nöglunum. Hárauða lakkið kemur
sérstaklega vel út auk þess sem
rauðar og áberandi neglur krydda
heildarútlitið verulega mikið. Lakk-
ið heitir l'm not really a waitress
og er númer NL H08.
Armani Code Eau De Toilette Klassiskur ilm-
ur frá Giorgio Armani þar sem appelsínublómið
nýtur sín til fulls. Amber-viðartónar gera ilminn
þokkafullan og áhrif appelsínublómsins gefa
mikinn ferskleika og hressandi angan.
Précision-andlitsvatn frá
Chanel Hjá Chanel má fá
Activateur Jeunesse-and-
litsvatn sem hentar eldri
húðgerðum einstaklega
vel. Andlitsvatnið, sem gott
er að nota eftir hreinsun
húðarinnar, nærir húðina og
mýkir.
PRÉCISION