blaðið - 25.08.2007, Blaðsíða 46
46
LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 2007
blaöiö
FÓLK
folk@bladid.net
Nei, enda hlýtur að vera
nóg að einn forseti aki
um á svo virðulegri og
verðmætri bifreið.
Langar þig ekki í forsetabílinn?
Hanna Bima Kristjánsdóttir er forseti borgarstjómar,
en nú liggur á lager bílaumboðsins Öskju glænýr
forsetabíll af gerðinni Bens S500 sem var ætlaður
forseta Islands, Ólafl Ragnari Grimssyni, sem kaus
þó tvinnbíl af Lexusgerð fremur en þýska stálið.
HEYRST HEFUR
Vinsældir Vilhjálms Þ. Vil-
hjálmssonar sem borgarstjóra
hafa vafalaust farið dvínandi
hjá bjóráhugamönnum, en sem
kunnugt er hefur borgarstjór-
inn sagt að sér þætti enginn
missir að Vínbúðinni í Austur-
stræti. Auk þess var bjórkæl-
inurn kippt úr sambandi að hans
áeggjan, sem er sagt
liður í hreinsunar-
átaki miðbæjarins.
Hefur Vilhjálmur,
sem gjarnan hefur
verið kallaður
Villi Vill, fengið
nýtt viðurnefni:
Villi volgi...
fP
£1
Guðbjörg Hildur Kolbeins,
sem gat sér „gott“ orð í Smára-
lindarmálinu í vor, fer stórum
orðum á bloggi sínu um
ónefndan forstjóra. Bloggið
fjallar um hverjir eigi að veita
fjölmiðlum aðhald og þar segir
Guðbjörg: „Forstjóri a.m.k. eins
fjölmiðlafyrirtækis reynir í
skjóli samsteypu að þagga niður
í fræðimönnum með
því að hóta ítrekað
að lögsækja þá.“
Hvern Guðbjörg
gæti átt við skal
ósagt látið, en
spurning hvort
hún fái kæru á
hendur sér, þar
sem hún er jú
fræðimaður...
Hljómsveit allra landsmanna,
eða sumra að minnsta kosti,
Stuðmenn, spilaði í Mosfellsbæ
i fyrradag með nýrri söngkonu,
Ragnheiði Gröndal. Komu þeir
fram í fyrsta skipti síðan þeir
ollu vonbrigðunum miklu i Laug-
ardal og voru ekkert feimnir við
að grínast með það í Mosfellsbæ.
Sögðu þeir að sveitin hefði þurft
að flýja höfuðborgina vegna
reiði borgarbúa og því væru þeir
staddir í Mosfellsbæ. Einnig
sögðu þeir að jafnvel veður-
guðirnir væru á
þeim, enda
var grenjandi
rigning. En
Stuðmenn
höfðu þó séð að
sér og tóku alla
sína slagara
í „réttum“
búningi, Mos-
fellingum
til mikillar
gleði...
móti
I
Svanhildur Hólm
Boðar ekki miklar breyt- M
ingar á þættinum
Svanhildur Hólm Valsdóttir er nýr ritstjóri íslands í dag
„Tek við góðu búi“
KONAN
Svanhildi Hólm Vals-
dóttur þekkja flestir af
skjánum en hún hefur
nýlega tekið við stjórnar-
taumum íslands í dag á
Stöð 2 sem ritstjóri. Hún
segir starfið viðbrigði,
enda hefur hún verið í
barnsburðarleyfi undan-
farið ár.
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@bladid.net
„Þetta leggst bara vel í mig. Ætli ég
byrji ekki á því að fá mér litla svarta
minnisbók líkt og forveri minn var
frægur fyrir að eiga!“
Bleiuskipti og breytingar
„Ég sé ekki fram á neinar stór-
kostlegar breytingar á þættinum,
þrátt fyrir að það komi ávallt aðrar
áherslur með nýjum stjórnendum.
Þessi hópur hefur unnið lengi
saman og við erum öll á mjög svip-
aðri bylgjulengd. Og þó það hljómi
kannski eins og gömul klisja, þá er
hún sönn í þessu tilviki, að ég tek
við mjög góðu búi af Steingrími. En
þetta er auðvitað mikil breyting
fyrir mig þar sem ég hef undanfarið
ár verið að sinna barni og búi heima
við þar sem vinnan hefur aðallega
Svanhildur er 33 ára.
Hún er ættuð úr Suður-
Þingeyjarsýslu.
Eiginmaður hennar er Logi
Bergmann Eiðsson.
snúist um bleiuskipti. Nú munu
því heimilisstörfin leggjast meira á
Loga og hann mun sinna þeim hluta
í meiri mæli og ef ég þekki hann
rétt mun hann gera það vel og hafa
gaman af. En bæði reynum við auð-
vitað að haga vinnunni þannig að
hún bitni sem minnst á heimilinu.“
Ekki í samkeppni við Kastljós
„Ég lít ekki svo á að við séum í
beinni samkeppni við Kastljósið.
Þeir eru á öðrum tíma, en við erum
á sama tíma og fréttir Sjónvarps,
sem er sennilega erfiðasti keppi-
nauturinn í íslensku sjónvarpi. En
auðvitað er ákveðin samkeppni
varðandi efnistök og þar stefnum
við á að hafa efnið sem fjölbreyttast
og skemmtilegast, því það er það
sem þetta starf snýst um. Ég vona
bara að fólk verði einhvers vísari
og að þátturinn skilji eitthvað eftir
sig,“ segir Svanhildur sem fann
mun á því að fara frá RÚ V og yfir til
samkeppnisaðilans.
„Ég fann smá mun, já. Það er helst
það að fólk úti í bæ hafði sterkari
skoðanir á því sem maður var að
gera, enda RÚV útvarp allra lands-
manna. Það voru háværir minni-
hlutahópar sem beittu sér mikið til
þess að hafa áhrif á dagskrána og
virtust telja sig eiga hlut í því sem
maður gerði. Þegar ég fór svo yfir
á Stöð 2 fann ég meira frelsi. Fólk
var ekki að skipta sér eins mikið af
því sem maður gerði, eða við hvern
maður talaði."
Langar aö klára lögfræðina
„Vinnan hefur verið stærsta áhuga-
mál mitt hingað til ásamt fjölskyld-
unni. Ætli ég sé ekki á þeim aldri
þegar maður gefur sér ekki tíma til
að sinna mörgum áhugamálum. Ég
reyni þó að lesa sem mest af bókum.
Kannski tekst mér á endanum að
verða lögmaður, en ég er ein af þeim
sem enn hafa ekki lokið við ritgerð-
ina eftir fimm ára lögfræðinám. Ætl-
unin var að gera það í barnsburðar-
leyfinu en það er nú eins og það er.
Annars hefur námið nýst mér ótrú-
lega mikið bæði í vinnunni og líf-
inu almennt. Mér finnst það í raun
stórmerkilegt að fólk geti komist í
gegnum lífið án þess að hafa tekið
nokkra kúrsa í lagadeild, því þetta
er bráðnauðsynlegt nám, skemmti-
legt og fræðandi," sagði Svanhildur
að lokum.
BLOGGARINN...
Stulla úr
stólnum
„Margir hafa verið stórorðir i málflutningi
um Grímseyjarferjumálið. En það vantar
alltaf niðurstöðuna. Það er: Hvað á að
gera? Hverja á að draga til ábyrgðar
og hvernig? Að mínu mati ber Sturla
Böðvarsson, fyrrum samgönguráðherra,
ábyrgöina á öllu klúðrinu við kaup og við-
gerð á notuðu ferjunni.j...] Sturla verður
að axla ábyrgð af þessu máli og segja af
sér sem forseti Alþingis. “
Björgvin Guðmundsson
gudmundsson.blog.is
Katrínu á
Bessastaði
„Það er engum blöðum um það að fletta
að heildarútgáfa é hinum sígildu grín-
þáttum Fóstbræðmm er útgáfa ársins
á DVD. [...] Katrínu Atladóttur, katrin.
is, kann ég mínar innilegustu þakkir fyrir
framtak hennar en leiða má likur að því
að undirskriftalisti sá er hún stóð að hafi
haft sitt að segja um að ráðist var í útgáfu
Fóstbræðrasafnsins á DVD. Hugsið ykkur
bara - er til mikið eigulegri pakki en allar
Fóstbræðraserfumar á DVD?“
Jón Agnar Ólason
jamesblond.blog.is
-vÍSr
iiíNfe
Frekjudallar
„Islendingar láta ekki lengur fara lítið fyrir
frekju sinni. Blindfull og oröljót ökukona
kærir lögguna á Selfossi fyrir árás. fíeyk-
ingamenn kvarta um, að glerbrot og
annað svínaríhafi aukizt um allan helming
við barina. Dettur þeim ekki ihug að lita
í eigin barm? Nemendur i Verzló fara i
blöðin og kvarta um, að þeim var meinað
að rústa hótel við Svartahafið. Vandamála-
fræðingar sífra um, að ófært sé að meina
ólátabelgjum og tossum skólavist. Samt
koma þeir í veg fyrir, að hinir fái notið
skólavistar. Það furðulega er, að fjölmiðlar
taka undir stjómlaust rugl frekjudalla."
Jónas Kristjánsson
www.jonas.is
Gullkistan - Frakkastíg 10 - Sími: 551-3160.
Hjálpa þér að halda öllu í skorðum í skúffum.Einning sjálflímandi filt
tilað klæða skúffur og filt með verjandi efni svo ekki falli á silfur og
silfur-plett.Við eigum líka fægilög, fægiklúta og ídýfulög til að hreinsa.
SENDUM I PÓSTKRÖFU.
Su doku
4 7
6 1 5
7 6 3 1 4
2 1
7 9 2 1 5
8 4 9 7
9 8 3 6
8 6
3 7 5 8
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum trá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
2-16
© Jim Ungor/dist by United Modia. 2001
HERHMN'
eftir Jim Unger
Ekki kenna kettinum um. Hvað
myndir þú gera ef einhver settist á þig?