blaðið - 28.08.2007, Blaðsíða 1
blaðiö
AUGLÝSINGASÍMI: 510 3744 AUGLYSINGAR@BLADID.NET
ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST
Segist vera
háður sushi
Morgunverðurinn
mikilvægur fyrir börnin
Kartöflur
vinsælar í Króatíu
19
Hið fullkomna
guacamole
20
Ljúffengt
grískt salat
21
Bestu berin
fyrir vestan
22 Rifsber eru góð í hlaup,
5”,«., sultu eða með villibráð
23
Hvítkál
er gott
24
Nú er sá tími þegar hægt er að
fylla forðakistur heimilisins með
því að tína rifsber, bláber, krækiber,
sveppi eða taka grænmetið upp úr
kálgörðunum. Þessi unga stúlka,
Sigríður Elísa, var að hjálpa til
við að tína rifsber við heimili sitt
sem væntanlega verða síðan notuð
til að búa til rifsberjahlaup, sultu
eða í eftirrétti og kökur. Rifsber
eru t.d. mjög góð ofan á ostatertur
og eru fallegt skraut á eftirréttar-
diskum. Þá passa þau vel með villi-
bráð, t.d. gæs.
Einnig er mjög hollt og gott að
nota rifsber í svokallað smoothie
sem vinsælt er meðal ungs fólks.
Gott er að nota too g af sólberjum
eða jarðarberjum að auki. í smoot-
hie þarf too g af rifsberjum, 6 dl af
hreinni jógúrt og 2 msk. af sykri en
honum má sleppa. Allt sett í bland-
ara og þeytt saman.
Önnur hugmynd er að setja van-
illuís í skálar og skreyta hann síðan
með rifsberjum, brómberjum, jarð-
arberjum og bláberjum. Heit súkku-
laðisósa setur punktinn yfir i-ið.
Rifsfrómas
Það er ýmislegt hægt að útbúa úr
rifsberjum. Hérkemurt.d. uppskrift
að ljúffengum eftirrétti, rifsfrómas,
sem er einfalt að gera. Uppskriftin
miðast við sex persónur.
4egg
1 Vi dl sykur
4 dl rjómi
8 matarlímsplötur
2 dl rifsber
Bleytið matarlímið í vatni í 5 mín-
útur. Kreistið plöturnar og leysið
upp eina og eina í um það bil Vi dl
af sjóðandi vatni. Hrærið þar til allt
er uppleyst.
Þeytið egg og sykur. Þeytið
rjómann og hrærið varlega saman
við eggjamassann. Þá eru berin
hrærð saman við. Loks er matar-
líminu bætt út í. Hellið blöndunni
í sex fallegar skálar og geymið í ís-
skáp. Þegar eftirrétturinn er borinn
fram er hann skreyttur með rifs-
berjum og ferskri sítrónumelissu
eða myntu.
Brúnegg á morgnana
Hrein orka, góð næring, gott í maga
T'ddíA þér citt ..cda tuö / ^ frjálsar6hæmur
I VISTVÆN EGG