blaðið - 28.08.2007, Blaðsíða 3

blaðið - 28.08.2007, Blaðsíða 3
blaöið ÞRIÐJUDAGUR 28. AGUST 2007 MATUR | 19 Bjargvættur Belica Kartaflan er kraftaverkafæöi Það er ekki beint algengt að fólk taki ástfóstri við ákveðna matar- tegund en íbúar í bænum Belica í Króatíu eru svo hugfangnir af kartöflum að þar á bæ hefur verið ákveðið að tileinka jarðeplunum heilan skrúðgarð. í garðinum er fyrirhugað að hafa blómabeð sem eru einvörðungu með kartöflum, leiksvæði fyrir börn þar sem öll leiktækin verða í laginu eins og kartöflur og einnig verða upplýs- ingaskilti á víð og dreif um garð- inn sem fræða gesti og gangandi um hinar mismunandi tegundir kartaflna. Bæjaryfirvöld í Belica héldu samkeppni um hvaða þema ætti að verða í garðinum og náðu öflug bændasamtök í héraðinu að fá þessa tillögu samþykkta. Aðrar tillögur sem komu einnig til greina voru báðar heimsstyrj- aldirnar sem og frelsisbarátta Króatíu. Veglegur minnisvarði Nú þegar hefur verið reistur minn- isvarði um kartöflurnar og gnæfir sá minnisvarði yfir aðra nálæga minnisvarða um fallna hermenn í heimsstyrjöldunum. Bæjarstjóri Belica, Zvonimir Taradi, sagði við afhjúpun að íbúar Belica ættu kart- öflunni mikið að þakka því hún hefði séð byggðinni bæði fyrir auði og fæði. „Fjölskyldur í Belica hafa lifað á kartöflum í áraraðir og þegar kom að því að tileinka þennan garð einhverju þema var valið augljóst." Samkvæmt króatíska dagblaðinu Vecernji List munu framkvæmdir við kartöflugarðinn mikla halda áfram með haustinu, en fyrst þurfa íbúar bæjarins að klára að taka upp kartöflur. Kartöflur mikilvægar Skortur á kartöflum hefur til dæmis lagt heilu löndin í rúst. Kremuð spínatsúpa Flestar uppskriftir þessa dag- ana sem birtast í fjölmiðlum eða bókum eru fitusnauðar sem hefur óneitanlega stundum áhrif á bragðið. Þetta er ekki ein af þeim uppskriftum því þessi súpa er bragðmikil, kremuð og mjúk eftir því. Verði ykkur að góðu! Spínatsúpa Fyrir 6-8 manns • 2 bollar niðurskorið ferskt spínat • í bolli niðurskorinn laukur • V* bolli smjör • 3 miðlungsstórar kartöflur, afhýddar og niðurskornar í ferninga • í Vi bolli kjúklingasoð • í !4 bolli vatn • 2 kjúklingasúputeningar • 2 bollar kaffirjómi • lA tsk salt • i/8 tsk pipar • % bolli af sýrðum rjóma • Má krydda með söxuðum graslauk ef fólk vill Brúnið laukinn í stórum potti í þrjár mínútur eða þar til hann er mjúkur. Setjið kartöflur, kjúklingasoð, vatn og súputeningana ofan í og látið sjóða. Lækkið hitann, setjið lok á pottinn og leyfið að krauma í 20 mínútur eða þar til kartöflurnar eru mjúkar. Bætið spínati út í pottinn og sjóðið í 2-4 mín- útur eða þar til spínatið er mjúkt. Setjið súpuna í bland- ara, hakkið hana og setjið aftur í pottinn. Hrærið kaffi- rjóma, salt og pipar saman við súpuna. Rétt áður en súpan sýður er sýrður rjómi settur út í. Hægt er að bera fram súpuna heita eða kalda en rétt áður en hún er borin fram er gott að skreyta hana með graslauk, smá kryddi og slettu af sýrðum rjóma. Auglýsingasiminn er 510 3744 Þú færð blað dagsins á sölustöðum Morgunblaðsins gegn framvísun Fríþjónustumiðans Við sendum blaðið innpakkað og merkt á valda sumardvaiarstaði innanlands Við söfnum blaðinu fyrir þig á meðan þú ert í fríi og sendum til þín þegar þú kemur heim aftur Leyfðu öðrum að njóta þess að fá Morgunblaðið á meðan þú ert í fríi Morgunblaðið þitt er á mbl.is Pantaðu fríþjónustu Morgunblaðsins í síma 569 1122, askrift@mbl.is eða á mbl.is. Þjónustan er veitt að lágmarki tvo daga og hana þarf að panta fyrir klukkan 16 daginn áður. Meiri þjónusta við áskrifendur

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.