blaðið - 28.08.2007, Blaðsíða 4

blaðið - 28.08.2007, Blaðsíða 4
ÞRIÐJUDAGUR 28. AGUST 2007 biaöió LÍFRÆNIR SAFAR Fæst í heilsubúðum og helstu matvörumörkuðum landsins Dreifing: Yggdrasill, S 544 4270, Suðurhrauni 12b, Garðabæ Auglýsingasíminn er LAUGARDAGAR ORÐLAUSTISKA Auglýsingasíminn er 510 3744 blaðið= ’s'qrænmeti sérmerkt þér! Hið fullkomna guacamole Ekki sama hvað fer í guacamoie Undir- staðan er ferskt og rétt þroskað avókadó. Blaöiö/BrynjarGauti 1r. ! Li i ■ w ii , • - 1 j ks. QjJiaoar?’ mri m 1 I ^ * li t 1 1 '*'• Wl f 1 _.„ ■ Engan hvítlauk og enga tómata Með árunum hefur ferskleiki matvæla orðið æ mikilvægari. Gildir þar einu hvort um er að ræða háklassaveitingastað eða fábrotnari skyndibitastað. Veitingastaðurinn Culiacan er skyndibitastaður með mexíkósku ívafi og segir Sólveig Guðmundsdóttir, eigandi Culi- acan, að ferskleiki og hollusta sé í fyrirrúmi á þeim bænum. „Við leggjum mikla áherslu á heilsu og hágæðahráefni, allt ferskt og allt út- búið daglega. Ferskleikinn er alveg númer eitt, tvö og þrjú.“ Að sögn Sólveigar er mexíkóskur matur gríðarlega vinsæll og hún segir að vinsældirnar séu sífellt að aukast. ,Þetta er alltaf að verða vinsælla og vinsælla.“ Guacamole er mikilvæg uppi- staða í mexíkóskri matarmenningu og Sólveig segir að það sé ekki sama hvernig guacamole er búið til. „Guacamole í krukku er ekki guacamole, heldur sósa með grænum litarefnum. Al- vöru guacamole byggist upp á fersku avókadó (lárperu) en avókadó inniheldur holla fitu og mikið af vítam- ínum og steinefnum." Hún segir ennfremur að það sé misjafnt hvaða hugmyndir fólk hefur um hvernig guacamole eigi að bragðast. „Að mínu áliti á ferska bragðið að fá að njóta sín og þess vegna set ég aldrei hvítlauk í mitt guacamole. Einnig verður að passa að mauka avókadóið ekki of mikið, það á að vera svolítið kekkjótt.“ Ennfremur segir Sólveig að það sé eitt hráefni sem henni finnst engan veginn eiga heima í guacamole. „Ekki setja tómata, það gerir guacamole bara vatnskennt og leiðinlegt.“ Að lokum vill Sólveig deila með les- endum Blaðsins uppskriftinni að hinu fullkomna guacamole og að Santa Fe-salati Culiacans sem hún segir að sé með vinsælustu réttum staðarins. Guacamole 4 avókadó (mjúk) Vi laukur (smátt saxaður) 1- 2 rauð chili (grænt gerir sama gagn) 'A dl ferskt kóríander (smátt saxað, blöð og stönglar) 2- 3 msk. limesafi salt og pipar eftir smekk Avókadóið þarf að vera rétt þroskað. Ef það gefur aðeins eftir er það tilbúið. Flysjið og takið stein- inn úr. Stappið með gaffli og bætið öllu hinu út í. Best er að útbúa þetta rétt áður en það á að borðast. Ef þarf að geyma það hafið þá ílátið loftþétt og sem minnst af lofti inni íþví. Santa Fe-salat Iceberg-salat saxað (líka gott að bæta við klettasalati) Ostur (rifinn) Dressing (ranchdressing og salsa blandað saman) Tómatar, laukur, kóríander og chili (smátt saxað) Grilluð kjúklingabringa, skorin Sýrður rjómi io%, smá sletta í miðjuna Guacamole Nachos-flögur, kramdar létt yfir Góöur til matreiðslu Þessa dagana eiga margir garðeig- endur eflaust mörg kíló af rabar- bara í skápum og skúffum enda er rabarbarinn einmitt þroskaður og ljúffengur á þessum tíma árs. Þótt margir haldi að rabarbari sé græn- meti er hann í raun ávöxtur en hann er talinn vera upprunninn frá bökkum árinnar Volgu í Rússlandi. Það er aðeins stöngullinn af rabar- bara sem er ætur en hann er hins vegar sérstaklega súr og því fáir sem borða hann hráan, nema með slatta af sykri eða rjóma. Rabarbari er einstaklega góður til matreiðslu og hentar vel í kökur, brauð, ís, sultu og margt meira. Rabarbari passar vel við aðra ávexti og saman mynda þeir sæta og súra blöndu, til dæmis jarðarber og önnur ber, epli, appelsínur og ferskjur. Rabarbaraeftirréttur í bolli sykur Vi bolli vatn 450 grömm rabarbari, skorinn í smáa bita Setjið sykur og vatn í pott og hrærið þar til sykurinn leysist upp. Setið rabarbarann í eldfast mót og hellið sykurblöndunni yfir hann. Bakið á i8o°C í þrjátíu mínútur þar til rabarbarinn er kraumandi, hrærið i mótinu annars slagið. Kælið og berið fram á eftirréttar- diskum með þeyttum rjóma eða ís. Rabarbarasulta 1,5 kg ferskur rabarbari, niðurskorinn 2 bollar sykur 2 tsk. rifinn appelsínubörkur 1/3 bolli appelsínusafi Vi bolli vatn Setjið rabarbara, sykur, appels- ínubörk, appelsínusafa og vatn saman í pott. Látið sjóða og leyfið blöndunni að krauma á miðl- ungshita í 45 mínútur eða þar til blandan er orðin þykk. Hrærið reglulega. Sultan mun þykkna mun meira þegar hún kólnar. Setjið í lokanlegar lofttæmdar krukkur og geymið í ísskáp. !

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.