blaðið - 28.08.2007, Blaðsíða 5

blaðið - 28.08.2007, Blaðsíða 5
biaóiö ÞRIÐJUDAGUR 28. AGUST 2007 iviATUH i 21 Ljúffengt grískt salat Þeir sem ferðast hafa til Grikk- lands vita að það er fátt sem jafnast á við ekta grískt salat. Þrátt fyrir að einfalt sé að útbúa salatið er það ein- staklega ljúffengt. Helsta ástæðan er sú að valið er gott hráefni en það er sjaldan eins mikilvægt og þegar salat er útbúið. Annar kostur við gríska salatið er að þar er ekki alls kyns grænmeti hrúgað saman í eina skál heldur er hráefnið vandlega valið og passar því vel saman. Feta- osturinn og ólífurnar að ógleymdri ólífuolíunni fullkomna svo verkið. Grískt salat Fyrir 2 1 agúrka 2 stórir tómatar í stór rauðlaukur 200 gr af fetaosti ío ólífur (eða fleiri eftir smekk) Þurrkað óreganó (má sleppa) Sjávarsalt Ferskur svartur pipar Góð ólífuolía Hvítvínsedik Afhýðið gúrkuna, skerið hana langsum og síðan í þykka ferninga. Skerið kjarnann úr tómötunum og skerið þá í þykka bita. Afhýðið rauð- laukinn og skerið niður. Skerið feta- ostinn niður í stóra ferninga. Setjið grænmetið í fallega skál ásamt feta- ostinum og ólífunum. Hafið sjávar- salt, svartan pipar, góða ólífuolíu og hvítvínsedik á borðinu svo fólk geti fengið sér, ef það vill. Berið salatið fram með ljúffengu brauði. Grískt salat Gríska salatið er einstaklega Ijúffengt og auk þess sérstaklega einfalt. Hádegisveröur á pöbbnum Breskir starfsmenn þrá end- urkomu tekerrunnar sam- kvæmt nýlegri rannsókn þar í landi og telja þeir að pása um miðjan dag muni hafa jákvæð áhrif á móralinn. Um eitt þúsund skrifstofustarfsmenn tóku þátt í rannsókninni og niðurstöður hennar sýna að stór hluti starfsmanna taldi að ef gengið væri um með kerru um miðjan dag þar sem hægt væri að kaupa te og kökur myndi það verða til þess að starfsmennirnir væru félags- lyndari og afslappaðri. Flestir þeirra starfsmanna sem tóku þátt í rannsókninni kvörtuðu undan þeirri menningu Breta að vinna lengi og að þurfa að borða hádegismatinn við skrif- borðið. Það sem Bretarnir óskuðu helst eftir var að fá klukkutíma hádegishlé ásamt því að gott mötuneyti væri á vinnustað, að haldin væri árleg starfsmannaskemmtun og að hádegisverður væri snæddur á pöbbnum. Girnilegur sjávarréttastaður í hjarta Hafnarfjarðar Linnetsstíg 1 • Sími 565 5250 • www.tilveranrestaurant.is Ferskt melónu- og tómatsalat 500 gr vatnsmelóna 500 gr þroskaðir tómatar 2 msk. ólífuolía 2 msk. fersk myntulauf 2 msk. ferskbasillauf 200 gr mulinn fetaostur 1 tsk. þurrkað óreganó Afhýðið melónuna og skerið hana í bita. Hver biti skal vera á við einn munnbita að stærð. Skerið tómatana í svipaða stærð. Setjið ólífuolíu, myntu- og basillauf saman í skál ásamt tómötunum og melónunni og hristið skálina til. Setjið melónublönduna á stóran hvítan disk og dreifið fetaosti og óreganó yfir áður en salatið er borið fram. 8 iðlil£|ð Atvinnubladid alla laugardaga E ■r +

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.