blaðið - 28.08.2007, Blaðsíða 6
MATUR
ÞRIÐJUDAGUR 28. AGUST 2007
blaöiö
SÉRBL.AÐ
BL.AÐSIM
Fullt af fróðleik og
skemmtilegu efni
Auglýsingasímar:
Katrín Rúnarsd. 510-3727
kata@bladid.net
Kolbrún Dröfn 510-3722
kolla@bladid.net
rTETTUi
fyrir augtýsinguna þtna f vlðalgandi sérblaði
Hafðu samband og fáðu gott plátt
Berjanjósnaramir eru fljótir á stjá
Bestu berin fyrir vestan
Hildur Hákonardóttir
er garðyrkjumaður að
mennt. Hún segir að
berjatínsla sé aftur komin
í tísku og í ár sé best að
tína ber fyrir vestan.
Eftir Lovísu Hilmarsdóttur
lovisa@bladid.net
Hildur Hákonardóttir garðyrkju-
maður hefur í mörg ár stundað líf-
ræna ræktun heima hjá sér. Hún er
manna fróðust um íslenskar jurtir
og telur mikilvægt að fólk nýti sér
árstíðirnar og þær plöntur sem
gefa ávöxt. Samkvæmt Hildi skiptir
miklu máli að þiggja þær gjafir
sem náttúran gefur okkur. „Það
sem mér finnst skipta máli er það
hversu gaman er að lifa með árstíð-
unum. A íslandi eru fjórar tegundir
af berjum; krækiber, bláber, sólber
og rifsber. Þau gefa ofboðslega góða
næringu af því að þau fylgja haust-
inu og ef við borðum eftir árstíð-
unum þá líður líkamanum miklu
betur. Það sem er svo dásamlegt
við berin er að þau bjóða sig fram.
Plönturnar búa til þessi ber sér-
staklega með það fyrir augum að
þau verði nýtt. Þau vilja láta nota
sig; við þurfum ekki að skera plönt-
urnar upp eða rífa þær upp; við bara
þiggjum þessar gjafir sem náttúran
býður fram.“
Berjatinsla lagðist af
Samkvæmt Hildi er berjatínsla
aftur orðin vinsæl. „Þegar ég var
barn fóru allir í berjamó og svo
lagðist þetta af þegar fólk fór að geta
keypt sultur og saft. Núna finnst
mér þetta vera að koma aftur og
miklu fleiri farnir að fara í berjamó
en fyrir tuttugu árum,“ segir hún og
bætir við að það fréttist alltaf hvar á
landinu sé best að tína ber. „Njósnar-
arnir eru fljótir að þefa uppi hvar á
landinu sé best að tína berin. Þetta
berst fljótt á milli manna og það
er líka það sem gerir þetta svona
skemmtilegt. Stundum taka fjöl-
miðlarnir þátt í þessu. Ég er búin að
frétta að það sé rosa gott fyrir vestan
og jafnvel líka fyrir norðan."
Fólk notar minni sykur
Aðspurð segir Hildur að með-
höndlun berjanna hafi breyst mikið.
„Áður fyrr stóðu konur sveittar við
að sulta og safta en það hefur breyst.
Konur eru hættar að hafa tíma.
Hérna áður fyrr var notað mikið af
sykri til þess að geta geymt berin.
í dag er fólk orðið meðvitaðra um
heilsuna og frystir berin og sultar
lítið í einu. Þá losnar fólk við að
nota þráavarnarefni. Þetta finnst
mér vera aðalbreytingin í dag. Því
Hildur Hákonardóttir Lík-
amanum líöur betur ef við
borðum eftir árstíðum.
eru margar af þessum klassísku upp-
skriftum orðnar gamaldags," segir
Hildur og bætir við að hún hafi ekki
farið í berjamó í ár. „Ég er með svo
mikið að berjum í garðinum hjá
mér og hef varla undan að vinna úr
þeim. Það er mikil samkeppni við
þrestina heima hjá mér. Bóndanum
mínum finnst mjög fyndið þegar ég
byrja að æpa á þrestina á haustin
KONAN
Hildur er fædd árið 1938.
Hún gaf út bókina Ætigarð-
urinn - handbók grasnytj-
ungsins.
Hildur var sex ár að vinna
bókina.
Geymsla á grænmeti
Grænmeti er ein af þeim afurðum
sem eiga það til að skemmast fljótt
hjá fólki. Ef grænmeti er með-
höndlað rétt er hægt að geyma það
mun lengur.
1. Kínakál
I
Best er að geyma 1 _
kínakál við o-2*C.
Til þess að koma í
veg fyrir að kínakál
þorni upp er best
að vefja það inn í ' > .
plast. Efkínakálið ^
er skorið niður þá er nausynlegt
að geyma það í plasti því annars
þornar það upp. Kínakál geymist
frekar vel sé það meðhöndlað á
réttan hátt.
2. Sveppir
Sveppir hafa mjög takamarkað
geymsluþol. Þeir geymast best í
myrkri og raka við 2°C. Ef svepp-
irnir eru geymdir
í birtu þá þroskast
þeir mun hraðar og
skemmast fljótlega.
Þetta á ekki við um
niðursoðna sveppi
heldur eingöngu
ferska matarsveppi.
3. Gulrætur
Best er að geyma
gulrætur við o-2°C
og í miklum raka
því þeim hættir
mjög til að tapa
vatni. Efgulrætur
eru geymdar lengi
þá er best að hafa þær lausar í plast-
fóðruðum kössum, ekki í litlu plast-
pokunum sem þær eru oftast seldar
í. Gulrætur geymast mjög vel.
4. Paprika
Það er mjög misjafnt hversu lengi
paprika geymist.
Til dæmis geymast
grænar paprikur
best. Það má ekki
geyma papriku í
of miklum kulda
því þá linast hún
og skemmist. Besti
geymsluhiti fyrir
paprikur er 8-i2°C.
S.Tómatar
Það á alls ekki að
geyma tómata í
ísskápnum því
þeir eru mjög við-
kvæmir fyrir kæli-
skemmdum. Besti
geymsluhiti tómata
er io-i2°C. Tómatar sem verða fyrir
kæliskemmdum verða fljótt linir
og bragðlitlir. Ekki er gott að láta
tómata liggja nálægt salati, gúrkum
og öðrum slíkum afurðum.