blaðið - 28.08.2007, Blaðsíða 8

blaðið - 28.08.2007, Blaðsíða 8
24 MATUR ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2007 biaöió -I Hvítkál er gott í salat og sósur Auðvelt er að rækta hvítkál á ís- landi og búast má við að þeir sem rækta það sjálfir séu um þessar mundir að taka upp úr görðum sínum. Hvítkál er ríkt bæði af A- og C- vítamíni og geymist vel. Það er hægt að borða hrátt, setja það í salat, steikja það, sjóða og búa úr því súpur, jafninga eða jafnvel súrsa það. Hvítkál er notað í kjötsúpu en það er einnig mjög gott að búa til úr því káljafning sem passar vel með soðnum eða steiktum kjötbollum. Káljafningur passar líka vel með snitsel eða reyktu svínakjöti. Káljafningur • 8oo g hvítkál Hvít sósa • 2 msk. smjör • 4 msk. hveiti • 4 dl mjólk • % tsk. salt • V* tsk. múskat • nýmalaður pipar • 2 msk. hökkuð steinselja Skerið hvítkálið í lengjur og sjóðið í léttsöltu vatni. Takið vatnið frá þegar kálið er orðið mjúkt. Hvítur jafningur er gerður með því að baka upp sósuna með smjöri og hveiti og þynna út með mjólk. Einnig má nota soð af hvít- kálinu til að þynna eða eftir smekk. Kryddið sósuna með salti, pipar og múskati. Setjið kálið í að lokum og látið hitna vel í gegn. Loks er stein- seljan sett út í. Hvítkálssalat með eplum Hvítkál er hægt að útbúa í margs konar salöt. Þau eru yfirleitt fersk og bragðgóð, t.d. með sterkum mat. Hér er uppskrift að vinsælu hvítkáls- salati með eplum sem passar vel með flestum réttum. • Vi hvítkálshaus • 2 stilkar af selleríi • í gulrót • í epli Salatsósa • 2 msk. sítrónusafi • 2 msk. majónes • 4 msk. hrein jógúrt • í msk. sykur • salt og pipar eftir smekk Saxið hvítkáhð niður, skerið selleríið smátt og gulrót í fína strimla eða rífið hana gróft niður. Þvoið eph og skerið í htla bita. Hellið sítrónusafa yfir eplabit- ana svo þeir dökkni ekki. Blandið síðan öllu saman í sósuna og bragðbætið með salti, pipar, sykri og sítrónusafa. Að lokum er sósunni blandað saman við grænmetið og eplið. t FLJÓTIEG PIZZA [frábar fyrfr böm) BOIN: 125g spelt* • 2 tsk vínsteins- lyftiduft* ■ smá sjávarsalt ■ 1G0 ml vatn. SÓSA: 1 dl tómatsósa* ■ 1 tsk oregano • Rifinn mozzarella ostur (jurta eða venjulegur). Hnoðið botn íhöndunum eða hrærrvél, fletjið út & bakið við 200°C í 4 mín. Smyrjið sdsu & kryddi á botninn, stráið ostinum yfir S bakið við 200 °C í 4-5 mín. *Fæst lífrænt frá Himneskri Holiustu. 1 % ^ í' J§ r TÖMATSÖSA FYRIR ALLA! Tómatsósa unnin úr vottuðum lífrænum tómötum sem fá að þroskast á plöntunni (eykur sæt- indi tómatanna). Tómatsósan er sykurlaus, en agave* er notað í stað sykurs. Frábær fyrir börn. » HIMNESK “««2 HOLLUSTA *Agave sírópið er unnið úr kaktusplöntu og hefur mjög lágan sykurstuðul. Því geta margir með sykursýki og candida notað það í hófi. Agave má nota alls staðar í stað sykurs og þykir frábær sæta fyrir börn. WWW.himneskt.is Góð dressing fullkomnar salatið Ferskt salat bragðast alltaf vel með öllum mat en enn betra er ef með salatinu er ljúffeng salatsósa. Það þarf ekki að vera flókið að gera slíka dressingu, góð olía ein og sér er til dæmis góð á salatið. Hér að neðan er einföld en góð salatsósa sem hentar með alls kyns salötum hvenær sem er. • x msk. sítrónusafi • í msk. hvítvínsedik • í tsk. Dijon-sinnep • Vi tsk. hunang • 3 msk. ólífuolía • 3 msk. maísolía • sjávarsalt • svartur pipar Finnið gegnsæja krukku með loki. Blandið saman sítrónusaf- anum, ediki, sinnepi, hunangi og kryddum í krukkunni. Hellið olíunni ofan í, setjið lokið á og hristið krukkuna þar til allt er vel blandað saman. Ferskt og góm- sætt kartöflusalat • 750 g nýjar kartöflur • 2 egg • 1 skalottlaukur • 1 'A msk. hvítvínsedik • 5 msk. ólífuolía • 3 msk. smátt sneidd steinselja • 2 msk. smátt sneiddur graslaukur • 1 msk. smátt sneidd mynta • 50 g vætukarsi Afhýðið kartöflurnar og sjóðið í söltu vatni þar til þær eru mjúkar. Fjarlægið vatnið. Sjóðið eggin í vatni í litlurn potti í 9 mínútur. Brjótið skurn- ina á eggjunum, haldið undir köldu vatni og afhýðið á meðan þau eru enn heit. Afhýðið og skerið skalottlauk- inn smátt niður. Setjið edikið í salatskál og kryddið með salti og pipar. Hrærið olíunni sarnan við og búið til þykka blöndu. Setjið skalottlaukinn út í olíublönduna. Skerið heitu kartöflurnar beint ofan í ol- íuna og hrærið vel. Látið standa í nokkrar mínútur svo olían bragðbæti kartöflurnar. Rífið eggið með rifjárni yfir salat- skálina. Kryddið með svörtum pipar og örlitlu salti. Hellið kryddjurtunum ofan í skálina og hrærið varlega saman. Setið vætukarsa ofan á og berið fram þegar í stað, á mcðan kartöflurnar eru enn heitar en ekki það heitar að þær bræði vætukarsann.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.