blaðið - 29.08.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 29.08.2007, Blaðsíða 1
Kann á konur Ekur vörubílnum Lampar úr þorski Dögg Guðmundsdóttir er iðnhönnuður og hefur vakið athygli fyrir lampa sem hún býr til úr þorski en þeir eru vin sælir hjá veiði- 1 mönnum og • bankastjórum Þorgrímur Þráinsson kafar djúpt í kynferðismál í nýrri sjálfshjálparbók sinni og ræðir umframhjáhald, /Ú fullnægingu kvenna itA og kynlíf. Þetta er bók fyriralla karla. Sigþrúður Margrét er 23 ára vörubílstjóri og býr í vegavinnuskúr 20 daga mánaðarins ásamt 60 karlmönnum. Hún segir starf ið vel launað og betur en kvennastörf. ORÐLAUSX VINNUVELAR>)12 EIMILI»33 162. tölublað 3. árgangur Miðvikudagur 29. ágúst 2007 FRJALST, OHAÐ & 0KFwoIS! Losunarheimildir verða ókeypis ■ Ráðherrum finnst eðlilegt að selja heimildir ■ Evróputilskipun flækir málið Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynur@bladid.net Ekki verður tekið gjald fyrir heimildir til losunar koltvísýrings hér á landi, þrátt fyrir að ljóst sé orðið að mun meiri eftirspurn sé eftir heimildunum en framboð. Þar til gerð nefnd út- hlutar heimildunum í næsta mánuði, en þegar hefur verið sótt um heimild til að losa 14.112 þúsund tonn af koltvísýringi til ársins 2012, en samkvæmt Kyoto-bókuninni hafa íslensk stjórn- völd einungis til úthlutunar 10.500 þúsund tonn á tímabilinu. Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri í um- hverfisráðuneytinu, segir ríkisstjórn mega, sam- ÚTHLUTANIR HEIMILDA ► Þar til gerð nefnd skal úthluta heimild- um til losunar koltvísýrings hér á landi fyrir 1. október. ► Þegar hafa 9 fyrirtæki sótt um heimildir fyrir 34 prósenta meiri losun en nefndin hefur til úthlutunar. kvæmt tilskipun ESB selja 10% losunarheimild- anna, restin skuli vera gjaldfrjáls. Tilskipunin fellur þó ekki undir EES og er því ekki farin að taka gildi hér á landi. Ráðherrann vill fylgja Evrópu „Ég tel að í framtíðinni eigi að fara þá leið að láta greiða fyrir losunarheimildir," segir Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra. „Hins vegar eru hendur okkar bundnar af Evróputilskipun um þessi mál. Þessi mál eru í þróun í Evrópu og við munum að öllum líkindum hegða okkur eins og ríki ESB í þessum efnum.“ Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra tekur undir með iðnaðarráðherra. „Mín skoðun er sú að fyrir afnotarétt af takmörkuðum auð- lindum sem skilgreindar eru sem sameiginleg eign skuli almennt greiða afnotagjöld fyrir.“ FYRSTIR KOMA FYRSTIR FA»10 Beinbrotin eftir að bjarga hundi Öldruð kona í Mosfellsbæ þurfti að gangast undir aðgerð á sjúkrahúsi eftir að hún reyndi að verja lítinn hund sinn fyrir árás stærri hunds. Hún brotnaði á hné og Wi? ökkla og fékk gat á höfuðið. . O Þróa tækni til að greina Alzheimer Rannsóknar- og þróunarfyrirtækið MentisCura er langt á veg komið að þróa aðferð til að greina Alzheim- ers-hrörnunarsjúkdóminn. Stórfyr- irtæki á borð við General Electrics hafa sýnt fyrirtækinu áhuga. »12 Árvisst umferðaröngþveiti // „Hvetja foreldra til að láta bömin ganga í skólann Nú þegar skólar eru byrjaðir og sumarfrí búin myndast umferðaröngþveiti víða á höfuðborgarsvæðinu og eru margir búnir að fá sig fullsadda á umferðinni. „Rík ástæða er til að hvetja foreldra til þess að láta börnin ganga í skólann, svo lengi sem þau þurfa ekki að fara yfir stórar og miklar umferðargötur. Við þurfum að láta hendur standa fram úr ermum og leggja okkar af mörkum," segir Einar Magnús Magnússon hjá Umferðarstofu. UMFERÐINI BEINNI»4 Betri heilsa fyrir um 120 KR. Á DAG Fitness ort Tilboðsverð17900 Gildir út 31.1207 \/ív í C E L A N D SPA & FITN E S S Höndin af fyrir netfíkn Kínversk kona hjó hægri höndina af eiginmanni sínum vegna tímafrekrar netfíknar hans. Eiginmaðurinn, Jiang Ming, hafði heitið konu sinni að hætta heimsóknum sínum á netkaffihús og verja þess í stað meiri tíma á heimilinu til að annast nýfætt barn hjónanna. Fljótlega eftir að Jiang fór aftur að læðast á kaffihúsin til að tala við konur á spjallrásum mætti konan á staðinn og hjó af honum höndina. Fyrir dómi óskaði maðurinn eftir því að konunni yrði sleppt, hann hefði jú sjálfur svikið loforð sitt. Konan bíður nú dóms. aí NEYTENDAVAKTIN ' Viðgerð á skópari fyrir karla flP Fyrirtæki Krónur Skóarinn Hafnarfirði 1.500 Skóvinnust. Sigurbjörns 1.550 Þráinn skóari 1.550 Smáraskóari 1.680 Skóarinn i Kringlunni 1.700 Skóvinnustofa Hafþórs 1.700 Hælplata sett á (ekki er tekið tillit til gæða eða þjónustu). Upplýsingar frá Neytendasamtökunum GENGI GJALDMIÐLA SALA % *■ USD 64,80 0,69 A m GBP 130,12 0,31 ▲ mm mm DKK 11,87 0,55 ▲ • JPY 0,57 1,93 ▲ m EUR 88,36 0,56 ▲ GENGISVÍSITALA ÚRVALSVÍSITALA 119,74 0,59 A 8.171,27 -1,6 ▼ VEÐRIÐ í DAG VEÐUR»2 L biloland.is Mikið úrval notaðra bíla á góðum kjörum J

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.