blaðið - 31.08.2007, Blaðsíða 1
FÓLK»38
BORNm
163. tölnblaö 3. árgangur
Föstudagur
31. ágúst 2007
í mömmuklúbbi
Guðlaug er í
mömmuklúbbi
en þeir eru
vinsælir hjá
ungum mæðrum
sem hittast
vikulega.
15 ára þýðandi
Elfar Andri Aðalsteinsson
er ungur Harry Potter-að-
dáandi sem hefur setið og
þýtt torskilin orð úr nýjustu
bókinni um galdrastrákinn
vinsæla og geta glósur hans
nýst öllum.
Eiður Smári borgar
Sverrir Bergmann dvelur
nú í Englandi við upptökur
á sinni fyrstu sólóskífu
sem hann segir að sé með
jákvæðum straumum. Eiður
Smári hjálpar Sverri við
útgáfuna.
ÐLAUSJ 34
FRJALST, OHAÐ & OKEYPIS!
Vilja slátra heima
■ Bændur skoða möguleika á að slátra heima og selja kjötið ■ Tækifæri tengd matarferða-
mennsku ■ Hægt að leyfa ferðamönnum að fylgjast með kjötinu „frá haga til maga"
Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynur@bladid.net
Bændasamtök Islands skoða nú möguleika á
því að endurtúlka gildandi reglur frá Evrópusam-
bandinu, þannig að hægt verði með hagkvæmari
hætti að setja upp lítil sláturhús á bóndabæjum
hér á landi og selja kjötið.
„í heimaslátrun eru fólgin tækifæri tengd mat-
arferðamennsku, það er alveg klárt,“ segir Árni
Jósteinsson, starfsmaður verkefnisins. „Heima-
slátrun er forsenda þess að bændur geti unnið
kjötið. Þeir gætu þá jafnvel boðið ferðamönnum
upp á að fylgjast með ferli kjötsins þar til það er
komið á diskinn - frá haga til maga.“
Árni segist ekki reikna með því að heimaslátrun
geri kjötið ódýrara til neytenda. „En það er von
mín að bændur nái að skapa sér aukna og arðbær-
ari vinnu með þessum hætti. Fræðilega séð geta
bændur komið sér upp heimasláturhúsum hér á
HEIMASLÁTRUN
Á meginlandi Evrópu er fjöldi bóndabýla
með heimaslátrun.
Þar er löggjöf ESB um slátrun túlkuð með
öðrum hætti en gert er á Norðurlöndum.
Það gerir það að verkum að þar er t.d.
hægt að nýta kunnáttu dýralækna með
hagkvæmari hætti en hér er gert.
landi í dag, en vegna reglna frá ESB - eða a.m.k.
eins og þær eru túlkaðar hér - er slíkt of kostnað-
arsamt til að það borgi sig,“ segir Árni.
Bændasamtökin hafa gerst aðilar að norrænu
verkefni, sem hófst er bændur frá hinum nor-
rænu ríkjunum sáu í heimsókn sinni til Þýska-
lands og Austurríkis að þar eru reglur Evrópu-
sambandsins sem snúa að sláturhúsum túlkaðar
með öðrum hætti en á Norðurlöndum. „Þeir átt-
uðu sig á því að túlkun og framkvæmd laganna
hér er kannski fullíþyngjandi fyrir þá bændur
sem vilja stunda heimaslátrun."
Samnýting lækna og moltugerð
Árni segir einkum tvennt gera heimaslátrun
of kostnaðarsama fyrir langflesta bændur hér
á landi; túlkun reglna ESB um hvernig annars
vegar skuli staðið að förgun sláturúrgangs og
hins vegar eftirlit dýralækna. „I stað þess að
hvert sláturhús sé með dýralækni sem skoðar dýr
fyrir slátrun og kjöt eftir slátrun, eins og hér er
gert, er meiri samvinna á milli bænda í Austur-
ríki og Þýskalandi."
Þá eru Norðurlandaþjóðirnar að skoða mögu-
leikann á að nota sláturúrgang til moltugerðar.
„Við það sparast flutningskostnaður til förgunar-
stöðvanna, auk gjaldsins sem stöðvarnar taka.“
Færri vistaðir í
neyð á Stuðlum
Þrengt verður að starfsemi Stuðla
til að koma neyðarvistuninni fyrir
í húsnæðinu. Er talið að það taki
þrjá til fjóra mánuði að endur-
byggjaálmuneyðarvistunar-
innar eftir brunann. A
Skaðabætur vegna
skorts á reglum
Óumdeilt er að langt var gengið í
máli konu þegar þvagleggur var
settur upp með valdi á lögreglustöð-
inni á Selfossi. Þetta segir saksókn-
ari hjá ríkissaksóknara. Ríkið gæti
þurft að greiða bætur þar yi
sem verklagsreglur vantar. H
Einn Land Rover selst á dag
MYND/FRIKKI
„Það eru vissulega f leiri sem hafa efni á þessum bílum"
216 nýir Land Rover-jeppar hafa selst á árinu, samkvæmt upplýsingum frá Umferðarstofu, sem jafngildir því að
einn slíkur seljist á hverjum virkum degi. íslendingar kaupa lúxusbifreiðar sem aldrei fyrr í ár, en 2007 stefnir í að
verða metár í sölu á slíkum bifreiðum. Á sama tíma virðist sala á smábílum standa í stað eða dragast saman. „Það
eru vissulega fleiri sem hafa efni á þessum bílurn," segir Erna Gísladóttir, forstjóri B&L. ORÐLAUS»32
Beethoven
örvar grjónin
Suðurkóreskir vísindamenn,
sem hafa spilað fjölda klass-
ískra tónverka á borð við
Tunglskinssónötu Beethovens
fyrir hrísgrjónaplöntur, segj-
ast hafa fundið plöntugen sem
„heyrir'*. Vitað er að plöntur
bregðast við birtu, vindi og
næringu og telja sumir garð-
yrkjumenn að tónlist geti blás-
ið í þær nýju lífi. í nýju hefti
New Scientist segja vísinda-
mennirnir að í framtíðinni
muni uppgötvunin gera fólki
kleift að stjórna ákveðnum
plöntugenum og ráða þannig
vaxtarhraða plantna og hve-
nær þær blómstri. aí
NEYTENDAVAKTIN
Ora maískorn
Fyrirtæki Krónur
Bónus 115
Fjarðarkaup 121
Samkaup-Úrval 159
Nóatún 169
11-11 189
Kjarval 189
Verö á Ora maískornum í 430gdós
Upplýsingar frá Neytendasamtökunum
GENGI GJALDMIÐLA
SALA %
WM USD 63,64 -0,45 ▼
GPB 128,14 -0,67 ▼
5S dkk 11,65 -0,76 ▼
• JPY 0,55 -0,62 ▼
■B EUR 86,78 -0,77 ▼
GENGISVÍSITALA 117,58 -0,68 ▼
ÚRVALSVÍSITALA 8.197,66 0,30 A
VEÐRIÐ í DAG
VEÐUR»2
Hvergi meira úrval
af stiilaniegum heilsurúmum og heilsudýnum.
Sjúkraþjáfari er í versluninni
á fimmtudögum frá ki. 16 -18.
Sérþjálfað starfsfólk
aðstoðar við val á réttu rúmi.
Reykjavík: Mörkin 4, sími: 533 3500 Akureyri: Hofsbót 4, sími: 462 3504
OpiÖ virka daga: 10-18 og laugardaga 11-16
V
ySTADO^
OWarcð