blaðið - 31.08.2007, Blaðsíða 2
2
FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2007
blaöið
Samþykkt borgarráðs Borgarfulltrúar minrdhlutans gagnrýna fund í stjóm Orkuveitunnar að þeim fjarstöddum
veröaUrifinSin Segjast verða að hlutafélagavæða OR
Borgarráð Reykjavíkur sam-
þykkti í gær með 4 atkvæðum
gegn 2 að húsin að Laugavegi 4
og 6 verði rifin og nýbyggingar
rísi á lóðunum. Málið kemur
til lokaafgreiðslu á fundi borg-
arstjórnar Reykjavíkur í næstu
viku.
Á fundinum var jafnframt
felld tillaga frá VG og F-lista
um að borgarstjóra verði falið
að leita leiða til þess að borgin
festi kaup á húsunum í því
skyni að varðveita þau x því
sem næst upprunalegri mynd.
mbl.is
Forstjóri og aðstoðarforstjóri Orkuveitu Reykja-
víkur telja nauðsynlegt að hlutafélagavæða Orku-
veitu Reykjavíkur. Þess vegna var tillaga um að
breyta rekstrarformi Orkuveitunnar tekin fyrir
á stjórnarfundi fyrirtækisins í gær. Þetta segir
Björn Ingi Hrafnsson, varaformaður stjórnar OR
og formaður borgarráðs.
Dagur B. Eggertsson og Svandís Svavarsdóttir
mótmæltu því harðlega að ákvörðun af þessu
tagi yrði tekin að þeim fjarstöddum, en þau voru
stödd á stjórnarfundi Sambands íslenskra sveitar-
félaga á ísafirði. Töldu þau málsmeðferðina vekja
tortryggni um að meirihluti stjórnar OR hygðist
einkavæða fyrirtækið á hlaupum.
Björn Ingi segir það af og frá að til standi að
einkavæða OR heldur séu margvísleg rök fyrir
því að núverandi rekstrarfyrirkomulag kunni
að vera á skjön við lög. „Bæði ég og borgarstjóri
höfum sagt að það standi ekki til að einkavæða
Orkuveituna og ég hef persónulega ekki verið
neinn sérstakur talsmaður þess að hlutafélaga-
væða fyrirtæki á borð við Orkuveituna. I þessu
tilfelli er hins vegar lögð fram greinargerð með
áliti tveggja æðstu stjórnenda fyrirtækisins, for-
stjóra og aðstoðarforstjóra, þar sem þeir færa
rök fyrir því að það sé nauðsynlegt að gera
þetta, meðal annars vegna athugasemda frá Eft-
irlitsstofnun EFTA (ESA). Auk þess hefur lengi
verið gagnrýnt að sveitarfélögin sem eiga í Orku-
veitunni þurfi að afgreiða ábyrgðir vegna stór-
framkvæmda eins og stóriðju. Ef fyrirtækinu er
breytt í hlutafélag þá verður það úr sögunni.“
thordur@bladid.net
Neyöarvistunin áfram aö Stuðlum
Húsnæðisvandi neyðarvist-
unar Stuðla verður leystur til
bráðabirgða með því að færa
hana í þann hluta húsnæðis
Stuðla sem ekki brann, að sögn
Böðvars Björnssonar, deildar-
stjóra neyðarvistunarinnar. Er
talið að það taki þrjá til fjóra
mánuði að endurbyggja álmu
neyðarvistunarinnar.
Fimm pláss voru áður til neyðar-
vistunar en á meðan bráðabirgða-
úrræðið er í notkun verða þau
fjögur. Böðvar segir að önnur
starfsemi Stuðla haldist óbreytt
þrátt fyrir færslu neyðarvistunar-
innar og að öðrum plássum verði
ekki fækkað.
Unglingarnir sem eru vistaðir
í neyðarvistuninni eru þar að
hámarki í fjórtán daga. Á þessari
deild eru þeir vistaðir að beiðni
barnaverndaryfirvalda vegna
alvarlegra hegðunarerfiðleika, of-
beldis, stjórnleysis við neyslu eða
óupplýstra brota. Byggingin sem
brann síðastliðinn sunnudag var
tekin í notkun árið 2004. hbv
úpplýsingar og skráning:
544 4500/ www.ntv.is
AUKANAMSKEIÐ
VEGNA MIKILLAR AÐSÓKNAR
Frábært nám fyrir þá sem vilja styrkja stöðu sína í starfi
eða eru á leið inná vinnumarkaðinn eftir nokkurt hlé.
í náminu er lögð mikil áhersla á að styrkja einstak-
linginn og gera hann hæfari til að takast á við
krefjandi störf á vinnumarkaðnum.
O Skrifstofu- og tölvunám
• Windows stýrikerfið • Word ritvinnsla • Excel töflureiknir
• Power Point kynningarefni • Access gagnagrunnur • Bókhald
• Tölvubókhald Navision MBS® • Internetið & Tölvupóstur
• Verslunarreikningur • Tímastjórnun og markmiðasetning
• Streitustjórnun • Atvinnuumsóknir • Sölutækni og þjónusta
• Auglýsingatækni • Gerð birtingaráætlana • Framsögn og framkoma
• Markhópagreining • Mannleg samskipti • Gagnvirk tenging forrita
• Flutningur lokaverkefnis
258 stundir - Verð: 233.000.-
Örfá sæti laus á morgunnámskeiðin
3. september. Búið er að bæta við
kvöld- og helgarnámskeiði sem byrjar
4. september.
NÝI TÖLVU- OG VIDSKIPTASKÓLINN - VIÐURKENNDUR EINKASKÓLIA FRAMHALDSSKÓLASTIGI
Hópuppsagnir
hjá Icelandair
■ Sögðu upp 25 flugmönnum og 39 flugfreyjum ■ Mjög döpur
stemning í hópi flugfreyja ■ Júlí var metmánuður hjá Icelandair
UPPSAGNIRNAR
W Yfir vetrartímann eru flug-
^ freyjur lcelandair u.þ.b. 500,
en flugmenn félagsins um
250.
í gær og í fyrradag var 64
~ fastráðnum flugmönnum,
flugfreyjum og flugþjónum
félagsins sagt upp störfum.
Uppsagnirnar taka gildi 1.
^ desembernk.
fólk látið fjúka, en almenna reglan
er sú að starfsaldur er látinn ráða.“
Jón Karl segir að ekki standi til að
ráða ódýrara erlent starfsfólk í stað
þeirra sem sagt hefur verið upp.
Viðskiptavinum lcelandair fjölgar
Icelandair sendi í fyrradag,
sama dag og uppsagnirnar hófust,
frá sér fréttatilkynningu um aukin
viðskipti félagsins. Þar var sagt
frá því að í júlímánuði hafi félagið
flutt mesta fjölda farþega sem það
hefur flutt á einum mánuði í 70 ára
sögu þess. Enn fremur var sagt frá
því að fyrstu 7 mánuði ársins hafi
farþegar Icelandair verið 910 þús-
und, sem er 3 prósenta aukning frá
sama tímabili í fyrra.
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@bladid.net
Icelandair hefur sagt upp 25 fast-
ráðnum flugmönnum og 39 fast-
ráðnum flugfreyjum og flugþjónum
síðustu daga. „Þetta er mikið áfall
fyrir okkur, enda áttum við ekki
von á þessu. Stemningin i hópi flug-
freyja er þar af leiðandi mjög döpur,“
segir Sigrún Jónsdóttir, formaður
Flugfreyjufélags íslands.
Slæm staða í alþjóðlegu leiguflugi
Guðjón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Icelandair, segir stöðuna
í alþjóðlegu leiguflugi yfir vetrar-
tímann ráða uppsögnunum. „Við
sjáum ekki að það verði verkefni
fyrir þetta fólk í vetur. Það verður
þó haldið áfram að afla leiguflugs-
verkefna og við vonumst til að það
skili árangri." Guðjón vill gera
minna úr vonbrigðum starfsfólks-
ins en Sigrún. „Það er mikill áhugi
meðal fólks að komast í þessi störf
og það gera sér allir grein fyrir því
að það eru töluverðar sveiflur í at-
vinnugreininni. Þótt uppsagnirnar
komi illa við suma held ég því að
allir skilji þær.“
Að sögn Jóns Karls Ólafssonar,
forstjóra Icelandair, var fólkinu
sagt upp eftir starfsaldri; fólk með
minnsta starfsaldurinn fékk upp-
sagnarbréf. „Ef menn hafa verið að
standa sig sérstaklega illa var það
Óöruggt starf Stemn-
ingin meðal flugreyja
og flugþjóna lcelandair
er ekki góð, enda var til- J
kynnt um hópuppsagn-
ir í gær og í fyrradag.
VEÐRIÐ í DAG
Á MORGUN
STUTT
Rignir
Gengur í suðvestan 5-10 metra á sekúndu
með rigningu, fyrst vestantil. Hiti 8 til 14
stig.
Kólnar
Vestan- og síðar norðanátt, 5-13 m/s.
Rigning eða skúrir, einkum norðanlands, og
heldur kólnandi veður.
• Sameinuðu þjóðirnar
Hjálmar W. Hannesson sendi-
herra hefur verið kjörinn einn af
varaforsetum 62. allsherjarþings
Sameinuðu þjóðanna, sem hefst
í september. Kjörnir varaforsetar
allsherjarþingsins eru sextán
talsins og koma tvö sæti í hlut
Vesturlandahópsins sem að
!>essu sinni féllu fastafulltrúum
slands og Tyrklands í skaut.
• Forsetl lagadeildar Björg
Thorarensen prófessor tekur
við af Páli Hreinssyni sem
forseti lagadeildar Háskóla
íslands. Páll hefur verið
skipaður hæstaréttardómari.
Róbert Spanó verður varafor-
seti deildarinnar en Viðar Már
Matthíasson gaf ekki kost á sér.
Leiðrétt
Ritstjórn Blaðsins vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.
VÍÐAUM HEIM
Algarve 24
Amsterdam 17
Ankara 34
Barcelona 29
Berlín 17
Chicago 23
Dublin 18
Frankfurt 21
Glasgow 17
Halifax 20
Hamborg 14
Helsinki 13
Kaupmannahöfn 13
London 19
Madrid 28
Milanó 21
Montreal 18
Miinchen 18
New York 24
Nuuk 6
Orlando 25
Osló 16
Palma 26
Parls 20
Prag 18
Stokkhólmur 13
Þórshöfn 10