blaðið - 31.08.2007, Blaðsíða 8
8
FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2007
blaðiö
Ítalía
Mafíósar
handteknir
Lögregla í suðurhluta Ítalíu
handtók fleiri tugi grunaðra
meðlima tveggja skipulagðra
glæpahópa í gær. Handtök-
urnar tengjast morðunum á
sex ítölum í Þýskalandi fyrr
í mánuðinum, en yfirvöld á
Ítalíu hafa röð hefndarmorða
til rannsóknar, flest í og í
kringum smábæinn San Luca í
Kalibríu-héraði.
Um tíu þúsund manns eru í
mafíunni í Kalibriu-héraði,
N’drangheta, sem talin er
stjórna kókaínviðskiptum víða
í Évrópu. aí
STUTT
• Afsögn Jin Renquing, fjármála-
ráðherra Kína, hefur sagt af sér
embætti. Ástæður afsagnarinnar
eru sagðar persónulegar, en
fjölmiðlar hafa greint frá því að
hann hafi átt í ástarsambandi
við embættismann í Kommún-
istaflokknum sem nú er fallinn
íónáð.
• Samkeppni Samkeppnis-
eftirlitið í Danmörku hefur
úrskurðað að póstfyrirtækið
Post Danmark hafi brotið sam-
keppnislög með því að misnota
stöðu sina á markaði í dreif-
ingu viku- og áskriftarblaða.
Hefði verið hægt að
bjarga mannslífum
Skólayfirvöld í Virgina Tech hefðu átt að senda út viðvörun til nemenda eftir fyrri morð-
Gagnrýnt að ekki hafi verið brugðist við hættumerkjum um geðheilsu morðingjans
m
Eftir Atla Isleifsson
atlii@bladid.net
Nefnd sem falið var að rannsaka
fjöldamorðin í Virginia Tech-skól-
anum í apríl síðastliðnum telur að
hægt hefði verið að bjarga fjölda
mannslífa ef starfsmenn skólans
hefðu brugðist fyrr við eftir að þeim
varð kunnugt um fyrstu tvö morðin
morguninn örlagaríka. Nemandinn
Cho Seung-hui skaut 32 nemendur
og kennara til bana áður en hann
svipti sig lífi, en árásin var sú mann-
skæðasta sinnar tegundar í Banda-
ríkjunum í seinni tíð.
Nefndin telur að skólayfirvöld
hefðu átt að vara nemendur við því
að morðingi gengi laus eða aflýsa
kennslustundum strax eftir að Cho
hafði drepið fyrstu tvö fórnarlömb
sín, klukkan sjö að morgni, 16. apríl.
Rúmir tveir tímar liðu áður en Cho
réðst inn í aðra byggingu skólans,
þar sem hann skaut þrjátíu manns
til bana. Á þeim tíma sem leið á
milli árásanna tveggja póstlagði
Cho meðal annars 28 myndbands-
upptökur, 1.800 orða bréf og 43 ljós-
myndir til sjónvarpsstöðvarinnar
NBC.
„Lögregla á skólalóðinni gerði
þau mistök að óska ekki eftir því að
tilkynning yrði send út um að tvær
manneskjur hefðu verið drepnar
á skólalóðinni og að nemendur og
starfsfólk skólans ættu að vera á
verði,“ segir í skýrslu nefndarinnar.
Lögregla áleit upphaflega að kær-
asti annars fórnarlambsins bæri
ábyrgð á morðunum og lagði sig því
í líma við að finna hann. Nefndin
telur hins vegar að ekki hefði reynst
mögulegt að loka öllum bygging-
unum á skólalóðinni eftir morðin,
en þær eru 131 talsins.
Skýrsluhöfundar gagnrýna hvern-
ig skólayfirvöld tóku á málum er
vörðuðu andlega heilsu Chos. „Á
fyrsta ári Chos í Virginia Tech voru
nokkur skýr merki um andlegan
óstöðugleika.“
Hugsaði til Coiumbine
Tim Kaine, ríkisstjóri Virginíu
og sá sem skipaði rannsóknarnefnd-
ina, sagði markmiðið með rann-
sókninni ekki að finna einhvern
sem kenna mætti um málið, heldur
að sjá til þess að slíkur harmleikur
endurtaki sig ekki. „Ég tel skýrsl-
BLÓÐBAÐIÐ
► Cho Seung-hui, 23 ára nem-
andi við Virginia Tech-skól-
ann, skaut tvo nemendur tii
bana í heimavist á skólalóð-
inni klukkan sjö að morgni
þess 16. apríl.
► Rúmum tveimur tímum
síðar réðst hann inn í Norris
Hall, byggingu verkfræði-
deildar skólans, og skaut
þrjátíu manns til bana áður
en hann svipti sig lífi.
Cho fluttist til Bandaríkj-
™ anna frá Suður-Kóreu
ásamt fjölskyldu sinni árið
1992.________________'
una vera mjög ítarlega og gefa okkur
upplýsingar um hvaða breytingar
þurfi að gera í Virginíu og á skóla-
lóðum víðar.“ Þrátt fyrir að ekkert
liggi fyrir um ástæður árásar Chos
er vitað að hann hugsaði mikið
um fjöldamorðin í Columbine-skól-
anum í Colorado árið 1999, þar
sem tveir nemendur skutu þrettán
manns til bana.
HVAÐ VANTAR UPP Á?
Hringdu 1' síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net
allt að
AÐ
;B1 I
!Ka Saa%s
T!
afsláttur
Fljótandi parket, plast
parket, gegnheilt parket,
loftaþiljur, innihurðir o.fl.
Eirhöfða 18
IIO Reykjavík
Aðeins f
30. ágúst
til 1. sept.
frá kl. 9-18
PARKET
&GOLF