blaðið - 31.08.2007, Blaðsíða 16

blaðið - 31.08.2007, Blaðsíða 16
16 FOSTUDAGUR 31. AGUST 2007 blaöió LÍFSSTÍLLHELGIN helgin@bladid.net Þetta er mannbætandi og gefandi starf sem byggist á gömlum gildum. Hugmyndafræðin er hundrað ára á þessu ári og hún gengur út á að menn geti bjargað sér sjálfir og það á vel við nú á tímum. UMHELGINA Hverfahátíð á Klambratúni íbúar í Hlíðum og gamla Aust- urbænum halda hverfahátíð á Klambratúni á laugardag kl. 14-16. Þar munu stofnanir og fé- lög sem standa fyrir tómstunda- starfi í hverfinu kynna þjónustu sína auk þess sem margvísleg skemmtun verður í boði fyrir fólk á öllum aldri. Hátíð í Árbæ Árbæingar halda hverfahátíð við félagsmiðstöðina Ársel á laugardag kl. 13-15. Fjöl- breytt skemmtun og afþreying verður í boði auk þess sem fé- lagasamtök og stofnanir kynna möguleika til frístunda. íþróttahöll opnuð Ný íþrótta- og tónleikahöll við Vallakór i Vatnsendahverfi verður tekin í notkun við hátíðlega athöfn laug- ardaginn 1. september kl. 14. Hlaupahátíð Vesturbæjar Hlaupasamtök lýðveldisins, Vesturbæjarlaug og Þjónustu- miðstöð Vesturbæjar bjóða til Fjölskylduhlaups á laugardag kl. 14-17. Hlaupið verður frá Vestur- bæjarlaug. Ekkert þátttökugjald. Grillað verður að loknu hlaupi og frítt í sund. Opið hús í Borgarleikhúsinu I tilefni þess að 111. leikár Leik- félags Reykjavikur er að hefjast verður opið hús í Borgarleikhús- inu á sunnudag milli kl. 15 og 17. Fjölbreytt dagskrá og veitingar. Keppt í kranastjórnun íslandsmeistaramót MEST í kranastjórnun verður haldið að Malarhöfða 10 í dag, föstudag, kl. 8-17. íslandsmeistarinn öðlast keppnisrétt á Evrópumótinu í kranastjórnun sem fram fer í Þýskalandi. k mk Námskeið í sahaja-jóga Lista- maðurinn og sjósundkappinn Benedikt S. Lafleur stendur fyrir námskeiði í sahaja-jóga í Viðju- lundi við Rauða kross-húsið á Akureyri á sunnudag kl. 10. Þátt- taka í námskeiðinu er ókeypis. Kitsune á Gauknum Kitsune-út- gáfan stendur fyrir partíi á Gauki á Stöng í kvöld. Fram koma eig- endur Kitsune, Gildas og Masaya auk DJ Casanova, Jack Shidt ásamt Yvonne Coco og Steed Lord. Húsið verður opnað kl. 23 og er aðgangseyrir 1500 krónur. Tónlelkar á Organ Sprengju- höllin heldur tónleika á tónlei- kastaðnum Organ í Hafnarstræti á laugardagskvöld. Áður en tónleikarnir hefjast verður óút- gefin plata sveitarinnar leikin í heild sinni. Aðgangseyrir er 1000 krónur. LÁTTU VITA Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á bladid@bladid.net Búist við um 40.000 manns á Ljósanótt Gaman er að koma í Keflavík Ljósanótt sett í fyrra Fjölbreytt dag- skrá fyrir fólk á öllum aldri er á Ljósanótt í Reykjanesbæ um helgina eins og fyrri ár. Alþjóðlegir straumar setja svip sinn á Ljósa- nótt í ár og árgangar munu sameinast í göngu niður Hafnargötuna. Þá ætla heimamenn að freista þess að lumbra á dönskum hnefaleikurum og sterkasti maður Suður- nesja verður krýndur. Eftir Einar Örn Jónsson einar.jonsson@bladid.net Reykjanesbær iðar af lífi um helg- ina þegar bæjarbúar halda upp á Ljósanótt í áttunda skipti. Fjölbreytt dagskrá er í boði þá fjóra daga sem hátíðin stendur, sýningar af ýmsu tagi, tónleikar og aðrar uppákomur jafnt innandyra sem utan. Óhætt er að segja að alþjóðlegir straumar leiki um hátíðina að þessu sinni. Auk færeysks þjóðdansafélags tekur hópur á vegum Veraldarvina þátt í gleðinni að sögn Ásmundar Friðrikssonar, verkefnisstjóra Ljósa- nætur. „Hér er 50 manna bópur Ver- aldarvina sem eru sjálfboðaliðar frá fjölmörgum þjóðlöndum. Þeir eru búnir að vera hér í bænum í nokk- urn tíma og vinna sjálfboðaliða- störf. Þeir ætla síðan að flytja tónlist og skemmtiefni á Ljósanótt og setja svip sinn á bæinn með götuleikhúsi og trumbuslætti,“ segir hann. Færeyskur dans í svitakófi Ekki verður fjörið minna hjá Fær- eyingunum sem eru félagar í Dansi- félaginu í Havn. „Færeyingarnir dansa færeyskan dans, vikivaka, og syngja um Ólaf Liljurós. Dans- inn fer fram í bíósal Duus-húsa þar sem þeir ætla að reyna að mynda svipáða stemningu og í Færeyjum. Þeir vilja vera i þröngu húsnæði, miklum hita og svitakófi," segir Ásmundur. Færeyingarnir verða með tvær sýningar í Duus-húsum í kvöld og svo í Kjarna og á Hafnar- götu á laugardag. Á Ljósanótt í fyrra var bryddað upp á svokallaðri árgangagöngu í fyrsta skipti og þótti takast svo vel til að leikurinn verður endurtekinn í ár. „Árgangarnir hittast í Hafn- argötu þar sem við verðum með skilti hvers árgangs við húsin. Þar hittist fólk úr sama árgangi og rifjar upp gömul kynni. Síðan gengur lúðrasveit niður Hafnargötuna og tínir upp hópana sem enda síðan í einni Ólympíuför inn á hátíðar- svæðið,“ segir Ásmundur. Árgang- arnir hittast á Hafnargötu kl. 13 á laugardeginum. Danir barðir íþróttaáhugamenn fá eitthvað fyrir sinn snúð í dagskrá Ljósa- nætur að þessu sinni. Hæst ber án efa hnefaleikakeppni milli heima- manna í Hnefaleikafélagi Reykja- ness og dansks úrvalsliðs. Fer keppnin fram í Hnefaleikahöll bæj- arins (gömlu sundlauginni) í dag og hefst kl. 18. Á sama tíma hefst LJÓSANÓTT Alls eru skráðar 45 listsýn- ingar á dagskrá Ljósanætur. Ljósmyndasýningar eru óvenjumargar eða alls átta. Flestar sýningar eru opnar föstudag og laugardag kl. 13-20 og sunnudag til kl. 18. Listamennirnir sem sýna á Ljósanótt eru 163 talsins og þar af eru 150 heimamenn. keppnin um sterkasta mann Suður- nesja fyrir neðan Fischershús. Þá verður Reykjanesmaraþon þreytt á laugardagsmorgni og getur fólk valið úr þremur vegalengdum. Fjöldi annarra viðburða verður á dagskrá Ljósanætur og má nálgast dagkrána í heild sinni á heimasíð- unni ljosanott.is. Auk heimamanna má eiga von á að fjöldi utanbæjar- manna leggi leið sína í bæjarfélagið til að njóta hátíðarinnar. „Það voru um 40.000 gestir í fyrra og við gerum ráð fyrir að það verði eitt- hvað svipað núna,“ segir Ásmundur sem býst við mestri aðsókn upp úr hádegi á laugardeginum. „Það er búið að skipuleggja bíla- stæði fyrir fólk sem kemur akandi um helgina og við verðum með út- verði á bæjarmörkunum sem taka á móti fólki og láta það fá kort af bænum þar sem helstu bílastæðin eru sýnd,“ segir Ásmundur sem kvíðir greinilega ekki fólksfjöld- anum. „Við hlökkum til að fá sem flesta í bæinn og tökum á móti öllum.“ Vetrarstarf skátafélaganna að hefjast Halda skátadag í Laugardalnum Litlu skátamóti verður slegið upp við þvottalaugarnar í Laugar- dalnum á laugardag kl. 11-18. Skáta- samband Reykjavíkur stendur að uppákomunni sem markar upphaf vetrarstarfs skátafélaganna. „Skáta- dagurinn í Reykjavík var árlegur viðburður en lá svo niðri í nokkur ár en hugmyndin er að endurvekja hann,“ segir Helgi Jónsson, verkefn- isstjóri hjá Skátasambandi Reykja- víkur. Hann hvetur jafnt núverandi skáta sem og þá sem vilja kynna sér skátastarf til að koma í Laugardal- inn á morgun enda fái þeir góða inn- sýn í starfið á skátadeginum. Skátadagurinn hefst með fánaat- höfn kl. 11 og síðan tekur við dag- skrá fram á kvöld. „Þarna setjum við upp tjöld og stundum skátastörf allan daginn. Síðan verða hópleikir á hálftíma fresti eftir hádegi þar sem allir koma saman. Þá geta gestir gengið á milli tjalda og tekið þátt í því sem félögin eru að vinna að,“ segir Helgi. Á staðnum verður átta metra hár klifurveggur Skátalands. Hægt verður að grilla sér pylsur að skáta- hætti og varðeldur að skátasið verður kl 16.30. Félagar úr Útilífs- skóla skáta eru sérstaklega boðnir velkomnir enda dagurinn öðrum þræði uppskeruhátíð þeirra. Helgi segir að skátastarf sé í sókn þrátt fyrir aukna samkeppni um at- hygli barna og ungmenna. „Þetta er mannbætandi og gefandi starf sem byggist á gömlum gildum. Hugmyndafræðin er hundrað ára á þessu ári og hún gengur út á að menn geti bjargað sér sjálfir og það á vel við nú á tímum,“ segir Helgi að lokum. Auk skátadagsins í Reykjavík verða skátafélög víða um land með opið hús þar sem tekið verður við nýskráningum.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.