blaðið - 31.08.2007, Blaðsíða 20

blaðið - 31.08.2007, Blaðsíða 20
28 FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2007 blaóið LÍFSSTÍLLVEIÐI veidi@bladid.net Þegar haustlægðirnar fara að koma hér yfir þá bætir örugg- lega enn í og þá sjáum við t.d. Stóru-Laxá taka rækilega við sér. Nýr völlur í gagnið íslandsmótið í Skeet haldið Skotfélag Reykjavíkur fékk undanþágu frá Heilbrigðiseft- irliti Reykjavíkur til að halda íslandsmót í Skeet-haglabyssu um síðustu helgi. Mótið fór fram á nýjum velli félagsins en nú er verið að leggja lokahönd á frágang þess. Reiknað er með að starfsleyfi fáist innan skamms fyrir allt svæðið en unnið hefur verið að því hörðum höndum að uppfylla þau skilyrði sem sett voru. Á þessu fyrsta móti voru mættir 19 keppendur. Laxá í Dölum Laxinn sleit en náðist aftur Stefán Sigurðsson veitingamaður og kona hans, Elín Friðberts- dóttir, voru við veiðar í Laxá í Dölum fyrir skömmu í svoköll- uðum Kristnapolli. Stefán var að kasta á hylinn þegar lax beit á og rauk út með alla flugulínuna og sleit hana eftir nokkra baráttu. Kristnipollur er stór hylur og fal- legur. Elín, kona Stefáns, var að skoða stöðuna við hylinn og fékk sér labbitúr niður með honum. Sá hún fljótlega línuna og kallaði á Stefán sem kom með stöngina. Línan var síðan þrædd inn á hjólið í rólegheitum, laxinn varð ekki var við neitt og fiskinum var landað. Þetta var 10 punda lax og var þrey ttur tvisvar sinnum í ' hylnum þennan daginn. Sportvörugerðin tif.. ■Skipholt S. s. 562 8383. Sérfræðingar í fluguveiði Hælum stangir, splæsum línur og setjum upp. ÍIÖI 3*r- 1 lur Æ Bjami Júlíusson, formaður Stangaveiðifélags Reykjavík, hættir Rétt aö víkja fyrir nýjum manni Bjarni Júlíusson hefur verið formaður Stanga- veiðifélags Reykjavíkur í þrjú ár en ætlar að hætta á næsta aðalfundi félags- ins í haust. Eftir Gunnar Bender g.bender@bladid.net Þetta hefur verið mjög skrítið sumar í laxveiðinni. Þurrkar í margar vikur og síðan stórrigningar núna. Hvað finnst þér um sumarið? „Svona sumur koma alltaf af og til, því miður. Þessir þurrkar hafa leikið laxveiðimenn grátt og flestar ár hafa verið mjög vatnslitlar. Það er helst að stóru lindárnar hérna sunnan- og vestanlands hafi haldið sér, ár eins og Sogið og Langá. Norðurá hefur t.d. aldrei mælst jafn vatnslítil en renns- lið í henni fór niður í 1,2 rúmmetra á sekúndu núna í ágúst. Svo rigndi og áin fór upp í 30 rúmmetra á einum sólarhring. Þá fór veiðin auðvitað i gang. Þegar haustlægðirnar fara að koma hér yfir þá bætir örugglega enn i og þá sjáum við t.d. Stóru-Laxá taka rækilega við sér.“ Veiðin að glæðast Norðurá ergóð efhún nærþúsund löxum. Er hún ekki undirþví núna? „Meðalveiðin í Norðurá undan- farin 10 ár er um 1.900 laxar, þannig að það er alveg ljóst að hún verður talsvert undir meðaltali í ár. En svona niðursveiflur koma og ekk- ert við því að segja. Mig minnir að síðast hafi áin tekið dýfu 1989. Það var kalda sumarið og þá man ég eftir sköflum við Myrkhylinn alveg fram undir lok júní. En veiðin hefur al- deilis verið að glæðast í Norðurá síð- ustu dagana. Hún fer líklega talsvert yfir þúsund laxa. Ég gæti alveg trúað því að hún endaði í 1.200 löxum. Það verður að teljast ásættanlegt miðað við þessar skelfilegu aðstæður sem við höfum búið við í sumar.“ Hvernig hefur veiðin verið hjá þér? „Frekar róleg. Við hjónin fengum tvo laxa við opnun Norðurár. Fórum svo í Norðurá í ágúst og fengum þrjá fiska. Þaðan lá leiðin í frábæra fjöl- skylduferð í Hítará og þar fengum við einn. Síðast var farið í Norðurá núna um helgina með börnin og þá fyrst brosti veiðigyðjan við okkur því við lentum í veislu og náðum 17 löxum. Ég er alveg sáttur við þetta STANGAVEIÐIFÉLAGIÐ Stangveiðifélga Reykjavíkur var stofnað 17. maí 1939 'f:> Félagsmenn eru 2500 Félagið gefur út tímaritið Veiðimanninn Félagið útvegar félagsmönn- um veiðileyfi Skrifstofa félagsins er að Háaleitisbraut 68 og á meira að segja þrjár góðar ferðir eftir, í Hítará, í Stóru-Laxá og í Laxá í Aðaldal." Þú opnaðir Norðurá í vor, en þú gerirþað ekki nœsta sumar? „Nei, ég mun láta af störfum sem formaður í lok þessa árs þannig að það verður nýr maður sem kastar á Brotið í opnuninni 2008. Ég vona nú samt að ég fái að fylgja með í túrnum og hver veit nema maður nái í einn lax eða svo.“ Tímafrekt starf Þú ert að hætta sem formaður eftirþrjú farsæl ár. Hvers vegna ertu að hætta? „Það er löng hefð fyrir því að for- menn SVFR sitja í 3-4 ár. Hvað mig varðar, þá hefur þetta verið góður tími og skemmtilegur. Við höfum náð fram mörgum mikilvægum málum og ég er einfaldlega orðinn sáttur og finnst rétt að víkja fyrir nýjum manni.“ Erþetta mjög mikil vinna? „Já, þetta er mjög mikil vinna. Það eru ótrúlega mörg verkefni sem stjórn SVFR kemur að. Alls kyns mál sem koma upp og þarf að leysa, samskipti við veiðiréttareigendur, félagsmenn og aðra. Mjög tímafrekt en skemmtilegt og gefandi starf, sér- staklega þegar vel gengur. Svona á fé- lagsstarf að vera og ég mun alltaf líta til þessara ára með mikilli gleði." Verður Guðmundur Stefán næsti formaður félagsins? „Það er auðvitað aðalfundur sem kýs formann á hverju ári. En það er löng hefð fyrir því að þegar for- maðurhættirþátekurvaraformaður við. Guðmundur Stefán er varafor- maður félagsins, ákaflega öflugur og traustur drengur. Ég er alveg viss um að það verður mikil sátt um að hann taki þetta verkefni að sér og ég veit að hann mun skila því með prýði,“ sagði Bjarni að lokum. Formannsskipti hjá SVFR Bjarni Júlíusson formaður glímir við fyrsta lax- inn í Norðurá í Borgarfirði, Guðmundur Stefán varaformaður fylgist með. Droifing: jeldÍt)Uífíl> Hólmaslóð 1-101 Rsykjavlk - Séml 562-0095/898-4047 • www.vaidlhusid.is Mokveiði í Kjarrá Það er allt annað að sjá veiðiárnar núna eftir að það fór rigna en flestar voru orðnar mjög þurrar og ein- hverjar horfnar alveg en nú er staðan allt önnur og árnar vatnsmeiri. „Þetta er svakalegt fjör hérna við Kjarrá en konan mín veiddi maríu- laxinn sinn í gærdag og núna hefur hún veitt tvo laxa í viðbót,“ sagði Guðbrandur Pálsson við Kjarrá um síðustu helgi. Blaðamaður Blaðs- ins var á staðnum og fylgdist með veiðinni sem var frábær þar efra. Síðustu holl hafa veitt um 200 laxa í Kjarrá. Kristín M. Sveinsdóttir, eiginkona Guðbrands, setti í fjórða laxinn sinn á tveimur dögum og núna eru komnir 2300 laxar á land úr Þverá og Kjarrá. „Við vorum að koma úr Laxá í Leirársveit og það var mokveiði. Hollið veiddi 71 lax og það er mikið af fiski í ánni,“ sagði Eggert Kristins- son, en hann var á veiðislóðum eins og fleiri veiðimenn siðustu daga. Algert mok var í Korpu fyrir nokkrum dögum en þá veiddust 30 laxar á einum degi í ánni, bæði á maðk og flugu. Mokveiði hefur verið í Eystri- og Ytri-Rangá. 250 laxar veiddust á einni vakt í Ytri-Rangánni. Veiði- maður sem við fréttum af um dag- inn og hefur ekki veitt mikið fékk 50 laxa í Eystri-Rangánni. „Við ætlum að reyna að ná þeim stóra, að minnsta kosti Ásmundur, en því var spáð fyrir honum að hann myndi veiða þann stóra í Laxá í Aðaldal, en við verðum á Nessvæð- inu næstu daga. Það gæti orðið fjör þar,” sagði Marteinn Jónasson sem er í skemmtinefnd Stangaveiðifé- lags Reykjavíkur, en nefndin er á veiðum í Áðaldalnum núna. Veiðin hefur aðeins lagast í Aðaldalnum.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.