blaðið - 31.08.2007, Blaðsíða 21
Hreindýraveiðin
Veiðin gengur ágætlega
Það hafa margir farið á hreindýra-
veiðar það sem af er veiðitímanum
og einn af þeim er Guðmundur K.
Gíslason sem var á veiðum fyrir
skömmu.
„Veiðin hefur gengið ágætlega,
ég fékk eitt hreindýr," sagði Guð-
mundur en hann var á veiðislóðum
fýrir austan. Það hafa veiðst um 370
til 380 dýr það sem af er tímabilinu,
svo það á eftir að veiða töluvert af
dýrum enn þá.
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Sverrir Einarsson Hermann Jónasson Geir Harðarson Bryndís Valbjamardóttir
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Ttlkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Jóhann Vilhjálmsson smíðar veiðihnífa
íslenskur veiðihnífur
„Þetta er fyrsti hnífurinn
sem mér er kunnugt um að
hafi verið búinn til á Islandi
og er framleiddur algjörlega
hér, hannaður og smíðaður af
mér,“ sagði Jóhann Vilhjálms-
son byssusmiður í samtali við
Blaðið.
„Ég hef verið að smíða alls
konar hnífa og oft haft í huga
að engin hefð er fyrir íslenskri
hnífasmíði. Norðmenn og Finnar
hafa langa hefð í þessum málum. Ég
hef sýnt fjölda veiðimanna þennan
hníf og þeir hafa gefið honum góða
einkunn sem alhliða
veiðihnif. Þetta er bæði hnífur
fyrir stang- og skotveiðimenn,“
sagði Jóhann.
„Blöðin eru handsmíðuð úr 4110
stáli sem er rústfrítt og þau eru öll
með sama lagi. Hreindýrahorn er
notað í hjöltin, það er látið ráða svo-
litlu um lögun á skeftinu. Hornið fær
einnig að njóta sín en einnig nota ég
smá af silfri, rótarvið og hvaltönn í
hjöltin. Hnífurinn er 20 cm á lengd,
blaðið er 10 cm og skefti 10 cm. Eg
er að vonast til að þessi hnífur verði
það sem við getum kallað íslenska
veiðihnífinn. Á sýningum erlendis,
sem ég hef tekið þátt í, er ég oft
spurður um íslenskan hníf. Næst
get ég sýnt íslenskan hníf," sagði Jó-
hann stoltur af gripnum.
Atvinnublaðið alla laugardaga
uppl í síma 5*10 3728
blaðið_