blaðið - 04.09.2007, Blaðsíða 2

blaðið - 04.09.2007, Blaðsíða 2
Hamraborg7 Kópavogi Sími5444088 0pnunartími-Mán-fös11-18-Lau11-14 Utsölustaöir: Esar Husavik, Snyrtivöruverslunin Nana Lóuhólum, Heimahornið Stykkishólmi, Smart Vestmannaeyjum, Efnalauqin Vopnafirði, Pex Reyðarfirði www.ynja.is Sigurboginn - Laugaveg 80 - Simi 561 1330 - www.sigurboginn.is Ullarjakkarnir komnir Stærðir 34-42 Verð kr. 12.900.- Laugavegi 54 sími 552 5201 Tr konur SJONARHOLL H6*»y G7<*/v<// uiui vcrsliin P^65-5970 Reykavíkurvegur 22 220 Harnarfirði www.s joiwrli oll.is Peteir fLottU/ jem/ Oprah/ M) Cnfrey wiœlír vneð Otywieð vuxttúrulegrí' upplyftCn&w Verð 4.990.- NY SENDING FRA RAYURE PARIS FJÖLBREYTT ÚRVAL yw'"' bO 'U N 18 KONAN ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2007 blaðið Kjartan í Farsímalagernum Persónubundið hvort konur vilja bleikasima edur ei. Bleikar samlokur Konur eru hrifnastar af samlokusímum Smekkur fólks er býsna misjafn og þegar kemur að vali á farsímum þá er það mjög mismunandi eftir kynjum hvers konar síma fólk kaupir sér. Blaðið fór á stúfana og kannaði hvaða símar eru vinsælastir hjá kvenþjóð- inni um þessar mundir. Eftir Viggó I. Jónasson viggo@bladid.net Það er óhætt að segja að úrvalið hjá þremur stærstu farsímaversl- unum landsins, Farsímalagernum, Símanum og Vodafone, sé mikið og gott. Þó virðast allir söluaðilar hafa sömu sögu að segja um það hvað helst grípi athygli kvenna. „Konur eru oft hrifnar af samlokusímum. Aðalástæðan fyrir því er kannski sú að konur, ólíkt okkur körlunum, geyma símann sinn í veskinu eða töskunni. Svo þegar síminn hringir þurfa þær að gramsa eftir símanum. Ef þær eru með sam- lokusíma þá sleppa þær við að ýta óvart á einhvern takka og skella þannig á,“ segir Kjartan Orn Sig- urðsson, framkvæmdastjóri hjá Farsímalagernum. Bleikar samlokur Kjartan segir að samlokusímar á borð við Nokia 6085 og 7373 hafi verið gríðarlega vinsælir. Lengi hefur verið rætt um ást kvenna á bleika litnum og bleikir samloku- símar hafa verið gríðarlega vinsælir. Dæmi eru um það í símaverslunum að bleikir símar hafa runnið út hraðar en það gengur að raða þeim í hillurnar. Eða eins og einn við- mælandi Blaðsins sagði: „Hinn full- komni konusími er bleik samloka.“ Kjartan segir að bleikt sé vissulega í tísku en það er þó mjög persónu- bundið. „Það fer alveg eftir konum hvort þær vilja bleikan síma eða ekki. Það er búin að vera tískubylgja í gangi um að kaupa bara bleikt en það er kannski meira meðal yngri kvenna.“ V3 selst ótrúlega vel En það eru ekki bara Nokia-sím- arnir sem ganga vel í konurnar. Kjartan nefnir sem dæmi síma á borð við Sony Ericsson Z310Í sem konur falla gjarnan fyrir. „Þessi sími er bara tií bleikur og við erum gjörsamlega búnir að moka þessum síma út.“ En það eru þó ekki bara ► Allt innvols í Dolce & Gabb- ana-símanum, hvort sem það eru stýrikerfi eða hringi- tónar, er sérhannað fyrir Dolce & Gabbana. ► Hönnun Dolce & Gabbana- símans er byggð á hönnun Motorola V3i-símans. , Prada-síminn er með snerti- skjá og minnir um margt á hinn væntanlega iPhone. þessirsímarsem hafa selst hvað best. „Mest seldi konusíminn hjá okkur er Motorola V3. Þetta er sími sem kom fyrst á markað 2005 og er mest selda einstaka módel af farsíma fyrr og síðar í Bandaríkjunum." Sérhannaður af Dolce & Gabbana Þó svo að V3-síminn sé líklega vinsælasti konusíminn í dag þá eru margir aðrir símar sem hafa alla burði til að verða vinsælustu konu- símarnir, en hátt verð aftrar þeim frá því að ná enn meiri vinsældum. Dolce & Gabbana-síminn frá Motor- ola er gott dæmi um svoleiðis síma. „Þessi sími er hannaður af Dolce & Gabbana og hann er með mjög sér- stakt útlit. Hann er búinn að vera gríðarlega vinsæll en hann er aðeins dýrari þannig að markhópurinn er ekki jafn stór.“ Kjartan nefnir líka annan Motorola-síma sem hefur verið mjög vinsæll og það er Motor- ola KRZR Ki en sá sími er þunnur og mjór. Prada vekur alltaf athygli Síðast en ekki síst ber að nefna hinn ótrúlega flotta Prada-síma frá LG en Kjartan segir að sá sími hafi verið að gera góða hluti hjá Far- símalagernum. „Hann hefur alveg slegið í gegn. Þetta er mjög flottur sími og hann er í raun og veru sam- bærilegur við hinn nýja iPhone.“ Prada-síminn er vissulega einn flott- asti síminn á markaðnum í dag en verðmiðinn á honum, þótt hann sé mishár eftir verslunum, gerir það að verkum að fyrir flestar konur er hann frekar draumur en veruleiki. KONUSÍMAR

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.