blaðið - 04.09.2007, Blaðsíða 3

blaðið - 04.09.2007, Blaðsíða 3
blaðið ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2007 KONAN 19 Undarlegt brúökaup Nú til dags virðist það ekki vera nóg fyrir fólk að marsera inn kirkjugólfið og fá á sig hnapphelduna í húsi Guðs. Nú verða brúðkaupin hvert öðru undarlegri eins og nýlegt dæmi frá Kína sýnir greinilega. Hjónakornin Ji- ang Dezhang og Tie Guangju vildu hafa sitt brúðkaup sem eftirminnilegast og ákváðu því að tengja brúðkaupið sem sterkustum böndum við vinn- una þeirra. Það hefði eflaust ekki verið í frásögur færandi ef ekki hefði verið fyrir þá litlu staðreynd að þau hjónin vinna bæði sem gluggaþvottamenn á háhýsi í borg í Yunnan-hér- aði. Því héngu þau Jiang og Tie í köðlum utan á háhýsinu um Ieið og þau settu upp hringana og með þeim héngu einnig svaramaður og ein brúðarmær, sem einnig vinna sem gluggaþvottamenn. Á jörðu niðri söfnuðust svo saman brúðkaupsgestir og gangandi vegfarendur sem fögnuðu ákaft að athöfninni Iokinni. „Brúðkaupið okkar var í senn rómantískt og eins og hefðbundinn vinnudagur,“ sagði Jiang, hinn hæstánægði brúðgumi, að athöfninni lokinni, en hann elskar greini- lega vinnuna sína jafn mikið og konuna sína. Tíska úr hundahárum Eitt sinn var sagt að neyðin kenndi naktri konu að spinna en í tilviki hinnar þýsku Bettinu Menkhoff þá var það hárlos hundanna hennar sem fékk hana til að spinna og hanna föt úr hundahárum. Bettina sem býr í Stoetze í Þýskalandi býr til trefla, hanska og annan fatnað og selur á Internetinu á heima- síðunni www.jolly-fellows.de. Bettina segist hafa fengið hugmyndina þegar hún keypti sokka sem gerðir voru úr hárum af bobtail-hundum. „Ég á fjóra beardie collie- hunda sjálf og ég byrjaði að gera garn úr hárum þeirra. Þetta gengur samt bara ef hárið er lengra en fjórir sentimetrar að lengd.“ Hún segist kemba hundana sínum reglulega og geyma hárið til að vinna það síðar. Hún segir ennfremur að hundahárið sé enn hlýrra en ullin. Um þessar mundir hefur Bett- ina nóg að gera því orðspor hennar hefur borist víða um heim. „Bestu viðskiptin um þessar mundir eru að gera föt fyrir fólk sem sendir mér hár af sínum eigin hundum.“ Rifist um Heimilisverkin eru ein algeng- asta orsök rifrilda. Þótt það virðist lítilvægt atriði til að rífast um eru mörg pör tilbúin til að greiða hjóna- bandsráðgjafa fyrir að leysa vand- ann. Það er einstaklingsbundið hvað fólk telur vera hreinlæti og öll erum við alin upp með mismun- andi hugmyndir um hvað hrein- læti er. Hvernig heimili við ólumst upp á hefur mikið að segja um hvernig við lítum á hreinlæti sem fullorðnir einstaklingar. Skömm er valdamikið verkfæri sem margir foreldrar nota til að hvetja börn til að taka til. Hreinlæti getur því orðið að siðferðislegu máli enda fólk alið upp í þeirri trú að heim- ilið endurspegli einstaklinginn sem þar býr og hreinlætið verður þar af leiðandi mikið bitbein. Djúpur ótti Auk þess eru oft miklar tilfinn- ingar í sambandi við heimilisþrif, því að sem börnum er okkur kennt að hluti af því að elska einhvern er að sjá um líkamlegar þarfir hans. Þegar pör rífast um heimilisverkin er oft undirliggjandi djúpur ótti um að þau séu ekki elskuð eða virt. Ást og virðing eru mikilvæg í sambandi og stundum verða heimilisverkin orr- ustuvöllurinn þar sem rifist er um þessar þarfir. Það getur verið erfitt að taka frá tíma í annríki daganna til að mæta þessum mikilvægu þörfum en þegar það hefur verið gert er líklegt að nöldrið um heimilisverkin hverfi. Ein besta heilsudýna íheimi IQ-CARE aölagast fullkomlega aö líkamanum og tryggir dýpri og betri svefni. IQ-CARE er svæöisskipt og gefur því réttan stuðning fyrir rajóbak og axlir. IQ-CARE er með opnari efniseiginleika en flestar vö.rur úr skyldum efnum og andar því betur. IQ-CARE aðlagast hraðar að líkamanum en flest rúm úr skyldum efnum. IQ-CARE er ein sterkasta efnablanda sem þróuð hefur verið og endist því lengur en skyldar vörur IQ-CARE þrýstijöfnunarefnið er mikiö notað og viðurkennt af sjúkrahúsum og heilsustofnunum. VELDU AÐEINS ÞAÐ BESTA! S-CAPE WALLHUGGER okkar bestu 'ÍQ-CARE heilsudýnu Dæmi: 160 x 200 cm kr. 369.900 stgr. Rúm sem dregst að veggnum þannig að þú helst við hlið náttborðsins. • Toppurinn frá stærsta framleiðanda heims. • Upplýst þráðlaus fjarstýring með öllum stillingum. • Sterkir og hljóðlátir þýskir lyftumótorar. • Sér stilling fyrir höfuðlag. • Öflugir nuddmótorar með sjálfvirkum tímarofa. • Einn allra sterkasti stálgrindarbotn sem framleiddur er í dag. • Öll liðamót úr nylon. • 12áraábyrgð. Sumartilboð Rýmum fyrir nýjum gerðum. Gildir á meðan birgðir endast. Loftrúm án rafmagns Hjónarúm með ViscoX heilsudýnu Dæmi: 160 x 200 cm kr. 169.900 stgr. Ný teppasett frá Canete Hjónarúm með okkar bestu IQ-CARE heilsudýnu Dæmi: 160 x 200 cm kr. 219.900 stgr. Mest selda stillanlega rúmið á íslandi, hjá Svefn & heilsu. Frábær reynsla. • Sterkir og hljóðlátir þýskir mótorar. • Stýring er einföld og þægileg. • Mýkra axlasvæði og stillanlegt mjóbakssvæði. • Hægt að fá stillanlega fætur sem ráða hæð rúmsins. • 5 ára ábyrgð. Ef þig vantar gott og sterkt stillanlegt rúm þá er PROFLEX lausnin. Frí þrýstijöfnunarmæling sem greinir hvaða dýna hentar þér best Nú bæði í Reykjavík og á Akureyri ' - ÞAÐ ER MIKILVÆGT AÐ SOFA OG HVILAST VEL i # * wm Svefn&heilsa V, ★★★★★ m wr^Bgs ir-* 5í".' Svefn&heilsa AKUREYRI DÍSA I WORLD CLASS REYKJAVIK Listhúsinu Laugardal, 581 2233 • Dalsbraut 1, Akureyri, 461 1150 Opið virka daga 10:00 - 18:00 - laugardaga 11:00 - 16:00 www.svefn.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.