blaðið - 04.09.2007, Blaðsíða 4

blaðið - 04.09.2007, Blaðsíða 4
20 KONAN ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2007 blaðiö Laugavegi 87 • símar 551 8740 & 511 2004 Dúnsængur OG KODDAR í MIKLU ÚRVALI Fyrsta flokks gæði OG FRÁBÆR VERÐ LAUGARDAGAR ORÐLAUSTÍSKA Auglýsingasíminn er ... / t 510 3744 blaóió □ HLÝJAR DÚN & FIOUR GJAFIR Eva Dögg Sigurgeirsdóttir .Rómantíkin í klæöaburöi er alltaf aö aukast og það er mikið um þessa kvenlegu tísku. Leður er áberandi og á örugglega eftir að vera ennþá sterkara næstu ár.“ Fjölbreytt hausttíska Síðar prjónapeysur og gamaldags slæður Það er úr nægu að moða í hausttískunni og aliar konur ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Prjónapeysur, stíg- vél, kvenleiki, rokk og rómantík eru áberandi. Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu Guðmundsd. svanhvit@bladid.net Eva Dögg Sigurgeirsdóttir, mark- aðsstjóri Smáralindar, segir að hausttískan í ár sé fjölbreytt og skemmtileg. „Haustið er skemmti- legur tími og ég held að íslendingar finni fyrir ákveðinni stemningu þegar hausttískan kemur því við getum nýtt hana lengur. Allar konur geta fundið eitthvað við sitt hæfi, ekki vegna þess að það er allt í tísku heldur vegna þess að það er úr nægu að moða. Annars á maður vitanlega að huga að því hvernig manni líður best og hvað maður fílar helst. Það er gott að fara eftir því hvernig maður er í laginu en það er lítið vit í að fara eftir einhverjum tiskureglum sem geta farið út í öfgar. Hverju maður klæðist fer vitanlega eftir karakter hvers og eins en það er gaman að sjá KONAN Eva Dögg hefur séð um út- gáfu tímarits Smáralindar í rúmlega tvö ár. Eva Dögg hefur lengi verið viðriðin tískubransann. Hún sinnti innkaupum fyrir stærri fyrirtæki, hefur séð um tískusýningar og verið með eigin versiun. eitthvað nýtt, þó maður tileinki sér það ekki.“ Eva Dögg segir að skótískan í haust sé að breytast. „Hún er not- endavænni en oft áður. Það er mikið um stígvél en það er iðulega þannig á haustin. Auk þess verða tærnar á skóm rúnnaðar og hælarnar lágir. Við þurfum því ekki að vera á pinna- hælum lengur," segir Eva Dögg og hlær. „Rómantíkin í klæðaburði er alltaf að aukast og það er mikið um þessa kvenlegu tísku. Leður er áber- andi og á örugglega eftir að vera enn þá sterkara næstu ár. Það er því bæði rokk og rómantík í hausttísk- unni. Dæmi um kvenleikann eru svokölluð „pencil skirts“ sem eru niðurmjó niður að hnjám. Þau eru mjög falleg, þröng en grenna tölu- vert. Svo er til dæmis gamla góða Chanel-slæðan að verða vinsæl og þvi er um að gera að fara til ömmu og finna einhverja fallega slæðu.“ Prjónaðar peysur Auk þess segir Eva Dögg að mikið sé um fallegar prjónapeysur i haust. „Peysurnar eru miklar og síðar en það er líka mikið um þynnri jakkapeysur. Þetta eru mjög smart peysur og henta vel því buxnatískan er þröng. Það eru ekki bara síðar prjónapeysur sem eru i tísku heldur þær stuttu lika. Þetta eru grófprjónaðar peysur í mörgum litum með áberandi mynstrum. Það er líka mikið um peysur og jakka með stuttar ermar sem ná niður á miðja handleggi. Oft eru þá grifflur eða háir hanskar með en hanskar verða áberandi í haust og vetur,“ segir Eva Dögg sem á sér uppáhald i hausttísk- unni. „Ég er voða hrifin af stórum töskum sem hafa verið í tísku undan- farið. Flestar konur eru með mikið af dóti sem þær vilja góðan stað undir. Við eigum líka skilið að eiga nokkrar töskur og þær þurfa ekki endilega að vera rándýrar því úrvalið er svo mikið." Leður áberandi

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.