blaðið - 04.09.2007, Blaðsíða 5
blaðið
ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2007
21
Hin bráðmyndarlega Giada á Skjá einum
Kokkur á
ítölskum nótum
Skjár einn hóf nýlega að sýna
matreiðsluþætti með Giada De
Laurentiis en hún þykir bæði bráð-
myndarleg og frábær kokkur. Þætt-
irnir nefnast Everyday Italian og
eru sýndir á miðvikudagskvöldum.
Giada er fædd í Róm þar sem hún
ólst upp hjá stórri matelskandi
fjölskyldu. Hún fékk sjálf ástríðu
fyrir matargerð á unga aldri. Hún
er barnabarn hins þekkta ítalska
kvikmyndaframleiðanda, Dino De
Laurentiis.
Giada var í matreiðsluþjálfun hjá
Le Cordon Bleu í París í nokkur ár
en flutti síðan til Los Angeles þar
sem hún stundaði háskólanám og
starfaði sem kokkur á fínum hót-
elum. Hún hefur einnig starfað sem
einkakokkur hjá ríka og fína fólkinu
í Kaliforníu. Þá hefur hún starfað
fyrir Barilla-pastafyrirtækið.
Hún er höfundur metsölubókar-
innar Everyday Italian sem inni-
heldur 125 uppskriftir, en auk þess
hefur hún gefið út bækurnar Gi-
ada’s Family Dinner og Everyday
Pasta sem einnig hafa náð miklum
vinsældum.
Þættirnir Everyday Italian urðu
mjög vinsælir í bandarísku sjón-
varpi þar sem þeir voru sýndir dag-
lega en Giada hefur gert aðra þáttas-
eríu sem nefnist Giada’s Weekend
Getaways. Þá hefur hún gert tvo sér-
staka þætti, annar var tekinn upp á
grísku eyjunni Santorini i Eyjahafi
en hinn á ítölsku eyjunni Capri.
Báðar þessar eyjar eru þekktar fyrir
gríðarlega náttúrufegurð.
Giada hefur verið á forsiðum og
í viðtölum við mörg helstu tímarit
Bandaríkjanna.
Hér er ein uppskrift frá Giada
sem er afar ítölsk og mjög vinsæll
réttur í Róm.
Pennea la carbonara
500 g beikon (pancetta ef einhver
á það til), smátt skorið
sjávarsalt og nýmalaður pipar
6 egg, verða að vera við stofuhita
Vi bolli rjómi, þarf að vera við
stofuhita
1 'A bolli ferskur rifinn
parmesanostur
500 g penne pasta
4 msk. smátt skorin fersk
steinselja
Hitið pönnu og setjið beikonið
á hana þegar hún er orðin vel heit.
Steikið beikonið þar til það er orðið
brúnt og stökkt í u.þ.b. 5 mínútur.
Bragðbætið með salti og pipar.
Setjið á disk á meðan annað hráefni
er eldað.
Setjið egg og rjóma í skál, bragð-
bætið með salti og pipar og bætið
parmesanostinum saman við.
Þeytið létt saman.
Setjið vatn í stóran pott og saltið
vel. Sjóðið pastað eftir leiðbein-
ingum á pakkanum eða þar til það
er al dente. Setjið pasta í sigti en
geymið vatnið því gott er að setja ör-
lítið af því á pönnuna með pastanu.
Þegar pastað er komið á pönnuna er
beikonið hrært saman við og síðan
eggjahræran. Það er nauðsynlegt að
hafa hraðar hendur við að blanda
þessu öllu saman, sósan á að hitna
en ekki sjóða. Setjið parmesanost
yfir ásamt smátt saxaðri steinselju.
FÖSTUDAGAR
LÍFSSTÍLLBÍLAR
cEinstakar búð- og hárvörur unnar úr
ólífuolíu beint frá ^grikklandi
Olivia
þú átt það besta skilið
‘Vörurnar fást í verslunum fHaákaupa,
'Fjarðarkaup og Samkaup - HJrval um allt land
arangul
IGURSRIKT
tw -m I
\m\m |
"HReyfínG
SVOOVA OG \Æm
WfÚ'R. BRJOST tlG
UPPHANDLEGGT.
'
Einf alt, þ®g*'egt og þú kemst í ftnt f orm
6 mismunandi
æfingakerfi á DVD.
Æfingar sem þú getur
stundað hvenær sem
þér hentar.
Finndu það sem
hentar þér.
Fast í Hagkaup og
i Hreyfingu.
Skooaðu brot ur æfingakerfunum
í vefverslun www.hreyfing.is
www.hreyfing.is
ANDLIT:
• Ennlshrukkur og bros-
línur fyllast innan fró
og útlínur kinna fó betri
þéttleika
HENDUR:
• Minnkar hrukkur
• Varnar myndun
öldrunarbletta
• Sólarvörn 15
HÚÐKREM:
• Fyrir bringu, háls
og handleggi
• Minnkar og fœkkar
hrukkum, s|áanlega
• Gerir húðina stinna
• Sólarvörn 15
riOuli \A j\\2i) Di \Aí}3 'ZOiiz ACno'y I
-»Irinirisidur fólimýru 3=írri vsrndcjr DMA orj örvur rrurnusndurr)ý|un húdcirlnnur