blaðið - 04.09.2007, Blaðsíða 6

blaðið - 04.09.2007, Blaðsíða 6
22 KONAN ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2007 blaöiö KJÓLAR VIÐ BUXUR STR. 36-56 Eddufelli 2 Bæjarllnd 6 síml 557 1730 síml 554 7030 HLSÖLU.. SMAAUGLYSINGAR blaöiö BYLTING I SVEFNLAUSNUM ™SSNG EITT MESTA ÚRVAL LANDSINS Á HEILSUDÝNUM Rúmgott er leiðandi í þróun og framleiöslu á heilsudýnum og rúmbotnum undir vöru- merkinu EZ-sleep á íslandi. Við höfum yfir að ráða fullkomnum tækjabúnaði til að mæla þrýstijöfnun á Ifkama hvers einstaklings sem gerir okkur kleift að framleíða svæðaskiptar heilsudýnur sniðnar að viðkomandi. ■s'*L 55% ' AHA llúngngimvinniiKlofn Rfl Verslunin Rúmgott • Smiðjuvegi 2 • Kópavogi • Sími 544 2121 Opið virka daga frá kl. 10-18 - laugardaga kl. 11-16 WWW. ílag Hressandi sopi Koffín varðveitir minni eldri kvenna Líkaminn hreinsaður eftir sumarsukkið Komdu kroppnum Á sumrin eru flestir latari að fara í líkamsrækt en á veturna. Útihreyf- ing er þó kannski heldur meiri en venjulega en menn og konur leyfa sér hins vegar mun meira í mat og drykk. Varstu með grillsteikur og léttvín um hverja helgi? Nú er komið að því að hvíla kroppinn á óreglunni. Þótt ekki sé ástæða til að fara í detox-kúr - eða afeitrunarkúr - er ágætt að breyta mataræðinu í smá- tíma til að hreinsa líkamann. Best er að gera matseðil fyrir eina viku og hugsa hann þannig að um holl- ustuviku sé að ræða. Taka verður út alla fitu og sykur; þar á meðal eru kökur, sælgæti, ís, hvítt brauð, pasta og gosdrykkir. Reynið að setja upp matseðil með grænmeti, fiski, baunum, spergil- káli, papriku og hýðishrísgrjónum. Trefjar hjálpa til við að hreinsa ristil- inn og þarmana. Mjög gott er að borða ber og ávexti í ríkum mæli. Bláber eru sér- lega góð og holl og nú ætti hver sem er að geta tínt þau úti í náttúrunni svo ekki þarf að borga fyrir þau háar fjárhæðir. Sleppið öllu léttvíni til að hvíla lifrina. Fáið ykkur frekar sódavatn með matnum eða jurtate. Ef á að grilla skal setja fisk og grænmeti á grillið. Það er mjög gott og betra fyrir magann heldur en kjöt og feitar sósur. Mjög mikilvægt er að hreyfa sig líka þessa viku eða vikur sem ákveðið er að breyta mataræðinu. Þótt ekki sé nema 20 mínútna ganga á hverjum degi þá er það til bóta. Meiri hreyfing er þó ákjósan- leg. Hreyfingin er einnig góð fyrir blóðsykurinn sem verður jafnari og þér líður miklu betur heldur en ef þú gerir ekkert í þínum málum. Ef þú ferð eftir þessum leiðbein- ingum muntu fljótt finna fyrir þyngd- artapi og að líðanin verður mun betri. Það er því vel þess virði að prófa. Góð ráð fyrir þá sem vilja hvíla magann á feitmeti • Hentu öllu feitmeti út úr ísskápnum • Fylltu hann aftur með fiski, ávöxtum, grænmeti og berjum • Borðaðu mikinn fisk, grillaðan eða soðinn • Ekki drekka áfengi ef þú vilt af- eitra líkamann (detox), minnkaðu til muna kaffidrykkju • Drekktu mikið af vatni eða grænu tei • Borðaðu trefjaríkan mat til að hreinsa þarmana • Hreyfðu þig í að minnsta kosti 20 mínútur á dag Allt frá þvi að menn uppgötv- uðu örvandi áhrif kaffibaunar- innar hefur kaffi notið mikillar hylli. Hressingarmáttur þess dylst engum en nú hafa nýlegar rannsóknir einnig leitt í ljós að koffínið í kaffi og tei getur einnig gert góða hluti fyrir minni eldri kvenna. Það voru franskir vísindamenn undir stjórn dr. Karen Ritchie sem komust að þeirri niðurstöðu að koffínið úr þremur bollum af tei eða kaffi gat hjálpað eldri konum að viðhalda minni sínu. Áralöng rannsókn í rannsókninni var fylgst með um 7.000 konum og körlum, yfir 65 ára aldri, í þremur frönskum borgum, Bordeaux, Dijon og Montpellier. Við upphaf rann- sóknarinnar gáfu þátttakendur upp hversu marga bolla af tei eða kaffi þeir drukku á degi hverjum eða minna á dag sýndu greinilega að minni þeirra hefði hrakað á milli ára. Rannsakendur benda á að það breyti engu hvort fólk drekkur kaffi eða te heldur er það koffínið sem gerir gæfumuninn. Virkar bara á konur Rannsóknin sýndi einnig fram á að hjá körlunum breytti það engu hversu mikið af koffíni þeir innbyrtu á hverjum degi, minni þeirra hrakaði á sama hraða. Að sögn aðstandenda rannsóknar- innar gæti það stafað af því að konur séu næmari fyrir örvandi áhrifumkoffínsins. Rannsóknin leiddi hins vegar ekki í ljós hvort koffínneyslan hefði einhver forvarn- aráhrif varðandi sjúkdóma eins og til dæmis Alzheimer, en Ritchie benti á að líklega hefði rannsóknin ekki staðið nógu lengi yfir til að sýna fram á einhverjar niðurstöður varðandi það. eða hvort þeir væru á einhverjum lyfjum sem innhéldu koffín. Þátt- takendur voru síðan látnir gangast undir ýmis próf sem reyndu á mismunandi þætti svo sem minni. Þessi próf voru síðan endurtekin að tveimur árum liðnum og svo aftur að fjórum árum liðnum. Kaffi og te Rannsóknin leiddi í ljós að konur sem drukku að minnsta kosti þrjá bolla af tei eða kaffi á degi hverjum sýndu minni merki þess að þeim væri farið að förlast minni. Konur sem drukku hins vegar einn bolla

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.