blaðið - 04.09.2007, Blaðsíða 7

blaðið - 04.09.2007, Blaðsíða 7
blaöið ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2007 KONAN Ný rannsókn Megrun hvet- ur til reykinga Táningsstúlkur sem eru í megrun eru tvisvar sinnum líklegri til að byrjaað reykjaheldurenþærstúlkur sem eru ekki í megrun. Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknar í Bandaríkjunum sem kannaði atferli næstum 8.000 táninga af báðum kynjum. Rannsóknin, sem stýrt var af Mildred Maldonado-Molina, mun hljóta rækilega umfjöllun í okt- óberútgáfu American Journal of He- alth Promotion. Maldonado-Molina segir að tengsl milli þyngdar kvenna og reykinga hafi verið eitthvað sem aðstandendur rannsóknarinnar bjuggust við. „Við bjuggumst við því að tengslin á milli megrunar og reykinga væru sterkari hjá konum. Niðurstöður okkar eru í samræmi við aðrar rannsóknir sem snúa að megrunarhegðun og reykingum.“ Líta á reykingar sem kost Við framkvæmdrannsóknarinnar var þyngdarstuðull (BMI) nemenda kannaður og út frá því var hægt að meta hvort táningarnir glímdu við offitu eður ei. I kjölfarið voru nem- endur spurðir hvort þeir væru að reyna að létta sig, hvort þeir hefðu auðvelt aðgengi að sígarettum og hvort þeir reyktu að staðaldri eður ei. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að táningsstúlkur sem byrjuðu í megrun voru 1.94 sinnum líklegri til að byrja að reykja heldur en þeir táningar sem fóru ekki í megrun. Rannsóknin leiddi einnig í ljós að táningsdrengir, sem ekki fóru í megrun en höfðu auðvelt að- gengi að sígarettum heima fyrir, voru líklegri til að prófa reykingar. Claire Mullins, varaforseti Amer- ican Lung Association of Mary- land, segir að þessi tengsl milli Reykingar og megrun Grennandi kostir reykinga heilla mikið táningsstúlkur. ."N holdafars og reykinga séu vissulega áhyggjuefni. „Fyrst níkótín eykur efnaskiptin í líkamanum og þar af leiðandi möguleikann á að léttast, þá gætu táningar litið á þann „kost“ sem ástæðu til að byrja að reykja. Samfélagið vill grannar konur Það sem vakti athygli varðandi rannsóknina var að jafnvel þótt drengir sem voru of feitir væru fleiri en stelpurnar þá voru það stúlkurnar sem voru í meirihluta hjá þeim sem ætluðu að grenna sig, en önnur hver stúlka í rannsókninni sagðist ætla í megrun. Maldonado-Molina segir að þessar niðurstöður komi sér ekkert á óvart. „Þessar niðurstöður eru í samræmi við félagslegan þrýst- ing á konur um að vera grannar og megra sig.“ Karlremba í dýraríkinu Aparnir hræðast ekki konur Það er erfitt að vera kona í þró- unarlöndunum, ekki nóg með að þær njóti ekki sömu réttinda og karlmenn heldur þurfa þær að berjast fyrir því að þeim sé sýnd tilskilin virðing. í síðustu viku bárust fregnir af því að flokkur apa í Keníu hefði tekið upp á því að hrella konur sem búa í þorp- inu Nachu. Aparnir hafa tekið upp á því að stela og eyðileggja uppskeru þorpsins og sjá íbúarnir fram á matarskort ef fram fer sem horfir. í þorpinu er það á ábyrgð kvenn- anna að huga að uppskerunni og þeim hefur gengið illa að eiga við apana þar sem þeir hræðast þær ekki og hrekja þær 1 burtu með því að kasta í þær steinum. Hins vegar er nóg að aparnir sjái karl- mann birtast og þá forða þeir sér á ofsahraða. Konurnar í þorpinu hafa gripið til þess ráðs að klæðast fötum karlmannanna til að fæla apana í burtu. „Þegar við komum til að hrekja þá í burtu þá erum við klæddar í buxur og hatta til að líkjast karlmönnunum,“ sagði Lucy Njeri, íbúi í þorpinu, í við- tali við BBC. „En aparnir geta séð muninn á okkur og körlunum og hlaupa því ekki í burtu. Þeir benda bara á brjóstin okkar, hunsa okkur og halda áfram að stela uppskerunni.“ Dr.Hauschka snyrtivörururnar eru sérlega verndandi og nærandi og efla heilbrigði og fegurð húðarinnar með því að örva og styrkja starfsemi hennar. Þær eru unnar eingöngu úr hreinum náttúruefnum, jurtaseyðum, steinefnum, nærandi oiíum og vaxi ásamt náttúrulegum ilmkjarnaolíum. Dekraðu við þig með fyrsta flokks náttúrulegum snyrtivörum og húðin mun geisla af fegurð. Lífrænn lífsstíll með snyrtivörunum frá Dr.Hauschka Edda Björgvinsdóttir, HildurGuðmundsdóttirog Inga Stefánsdóttir. Skemmtilegt og fræðandi námskeið í sal Yggdrasils, Skólavörðustíg 16. Innflytjandi:Yggdrasill ehf. s. 562 4082 Dr.Hauschka snyrtivörur PRECISION BURNER Fitubrennsla • Orka • Einbeíting ^ Freyja Sigurðardottir Margfaidur íslandsmeistari [ Fitness Svalar þorsta, grennir, eykur orku... sniðinn að þinum þörfum! Nánari upplýsingar urn Precision Burner Light fást í síma 555-2866 eða á www.eas.is. Precision Burner Light er fáanlegur í ölium betri heilsuræktarstöðvum, matvöruversiunum og bensínstöðvum.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.