blaðið - 04.09.2007, Blaðsíða 8

blaðið - 04.09.2007, Blaðsíða 8
'24 I KONAN + ÞRIÐJUDAGUR 4. SEPTEMBER 2007 blaóió Yggdrasill Ný spennandi námskeið KYNNING Nú eru að fara að hefjast ný nám- skeið hjá Yggdrasli sem munu án •jfa vekja áhuga margra. Fyrsta námskeiðið er um lífrænar snyrti- vörur sem hluta af lífrænum lífsstíl. Námskeið þar sem farið verður inn á gildi lífrænnar ræktunar fyrir nútíma landbúnað og matvæla- framleiðslu. Þar verður áhersla á heilbrigði húðarinnar og farið yfir hvað eru náttúrulegar og lífrænar snyrtivörur. Kynntar verða lífrænu snyrtivörurnar frá Dr.Hauschka og hugsunin sem býr þar að baki um að efla heilbrigði húðarinnar. Edda Björgvinsdóttir leikkona .mun segja frá reynsluheimi sínum þegar kemur að lífrænt ræktuðum afurðum, Hildur Guðmundsdóttir mun tala um lífræna ræktun og gildi hennar og Inga Stefánsdóttir Dr.Hauschka-snyrtifræðingur mun veita persónulega húðráðgjöf. 1 lok námskeiðsins mun þátttakendum bjóðast að fá 15% afslátt af öllum snyrtivörum frá Dr.Hauschka. Nám- skeiðin „Lífrænn lífsstíll með snyrti- vörunum frá Dr.Hauschka“ verða haldin 5. og 12. september kl. 20. Einnig eru að hefjast á ný nám- skeiðin „Holl næring fyrir börn“. Hildur Guðmundsdóttir hefur haldið þetta námskeið á undan- förnum árum. Það er hugsað fyrir foreldra með ungbörn, en það hentar einnig þeim sem eru með eldri börn. Á þessu námskeiði fer Hildur inn á það hvaða matvæli henta best til að gefa góða næringu, hvað beri að leggja áherslu á og hvað beri að forð- ast eða útiloka. Hvaða næringarefni þarf barnið og úr hvaða mat er best að fá þau? Hvernig er best að útbúa mat fyrir börnin? Hildur leggur mikla áherslu á gæði matvæla og matvæli sem innihalda mikið af góðum næring- arefnum og sem allra minnst af við- bættum hjálparefnum. Hún kennir meðal annars að mikilvægt sé að venja börn frá unga aldri á það að drekka góð jurtate. í lok námskeiðs- ins fá þátttakendur hefti með gagn- legum upplýsingum. Námskeiðin verða haldin 19. og 26. september í sal Yggdrasils, Skóla- vörðustíg 16, og hefjast kl. 20. Skráning og nánari upplýsingar um námskeiðin eru í verslun Yggdrasils, s: 562 4082, 820 4081 eða hildur@yggdrasill.is. Finndu hamingjuna á ný Vefritið Woman’s Day birti á dögunum ansi ítarlegan lista yfir 50 hluti sem geta veitt konum hamingjuna á ný. Til þess að stuðla að jákvæðara og hamingju- samara samfélagi er rétt að birta nokkur af þessum ráðum í þeirri von að þau geti komið fólki í sam- band við hamingjuna á ný. Njótið þagnarinnar Þó svo að það sé ekki sannað að hávaði geti valdið andlegum kvillum svo sem þunglyndi þá er talið að of mikill hávaði geti orðið til þess að fólk finni fyrir ýmsum óþægilegum tilfinningum. Samkvæmt rannsókn sem birtist í Southern Medical Journal þá getur of mikill hávaði valdið því að fólki finni fyrir miklum kvíða eða mikilli þreytu. Njótið því þagnarinnar. Finnið ykkur gefandi starf Rannsóknir hafa gefið til kynna að þeir sem eru í gefandi störfum eru mun hamingjusam- ari en aðrir. Reynið þvi að finna starf þar sem þið getið látið gott af ykkur leiða. í einni rannsókn kemur það fram að prestar, slökkviliðsmenn og sjúkraþjálf- arar eru á meðal hamingjusöm- ustu stétta sem fyrirfinnast og því ætti fólk, ef það hefur kost á því, að reyna við einhver álíka störf. Fylgist með blóðþrýstingnum Fjölmargar rannsóknir hafa leitt í ljós að of lágur blóðþrýst- ingur getur leitt til þunglyndis og kvíða hjá eldra fólki. Ef bíóðþrýst- ingurinn er í lægri kantinum er rétt að leita til læknis eða næring- arfræðings um hvernig hægt er að ná blóðþrýstingnum upp á ný. Sofið nóg Fólk sem glímir við svefnleysi eða er svefnvana á frekar á hættu að verða fyrir barðinu á þung- lyndi eða að fá kvíðaköst. Um 30 prósent fullorðinna glíma við svefnleysi og meirihluti þeirra eru konur. Ef þið glímið við svefn- leysi leitið ykkur þá aðstoðar sem fyrst svo að það fari ekki að draga úr hamingjunni Lærið að elska ykkur Það hefur lengi verið vitað mál að tengsl væru á milli þunglyndis og lítils sjálfsálits. Lærið því að elska ykkur sjálf og sjáið alla þá kosti sem þið búið yfir. Því eins og gamla klisjan segir, ef þú elskar ekki sjálfa þig þá geta aðrir það ekki heldur.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.