blaðið - 11.09.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 11.09.2007, Blaðsíða 1
0RÐLAUSB3 Öflugur hundavinur Knox Rhine er bandariskur hundavinur sem er afar hrif inn af íslenska fjárhund- inum og er nú forseti ISAA, eða the lcelandic Sheepdog Association of America. FOLK»38 FRJALST, OHAÐ & 0 Veiðir á Grænlandi Rekin eftir 12 ár Örn Tryggvi Johnsen, yfir- maður upplýsingatæknimála hjá lcebank, er nýkominn heim frá Grænlandi þar sem hann var á hreindýra- veiðum og hreifst hann ,< mjög af landinu. Elinu Gestsdottur var a dog- unum sagt upp störfum sem framkvæmdastjóra Feg- urðarsamkeppni íslands, , enhúnhefurséðum ,jk keppnina undanfarin JjR 12 ár. M Þroskaheftir vamar- laus fómarlömb ■ Þroskaheftar stúlkur eru skotmörk greindari félaga sinna ■ Forvarnir gegn kynferðis- brotum eru litlar og úrræðin engin ■ Unnið að fyrirbyggjandi aðgerðum Eftir Arndísi Þórarinsdóttur arndis@bladid.net Samkvæmt heimildum Blaðsins er kynferðis- leg misnotkun alvarlegt vandamál í hinu smáa samfélagi þroskaheftra og ráðast gerendurnir oft að einstaklingum sem eru skertari en þeir sjálfir. Fórnarlömbin eru oft á tíðum vön að vilja geðj- ast fólki og líta gjarnan upp til þeirra sem síðar brjóta gegn þeim. Þegar brotið hefur verið framið er erfitt að færa sönnur á að það hafi átt sér stað því fórnarlömbin eiga oft ekki auðvelt með að tjá sig á hátt sem er fullnægjandi fyrir dómstólum. NAUÐGANIR MEÐAL FATLAÐRA ► Nýlega hafa tvær nauðganir verið ákærðar til héraðsdóms þar sem báðir gerendurnir voru greindarskertir og fórnarlömbin þroskaheft. í báðum tilvik- um var sýknað. ► ► Hópur manna gerir sér leik að því að sænga hjá mjög þroskaheftum stúlkum. Úrræði fyrir stúlkurnar eru engin. Margir gerendanna neyta mikils klám- efnis. Ahættukostnaður Jón Heiðar Ríkharðsson, framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík, telur ekki að kynferðisleg misnotkun sé alvar- legra vandamál meðal fatlaðra en hjá öðrum í þjóðfélaginu, þó að upp komi einstök tilvik. „Fyrst og fremst erum við að vinna að fyrir- byggjandi aðgerðum í gegnum starfsmannaráð- gjöf í bland við hið faglega starf sem fram fer í þessu umhverfi," segir Jón Heiðar. „En það má svo sem alltaf gera betur.“ GETA EKKIBORIÐ HÖND FYRIR HÖFUÐ SÉR »6 Engin kona er yfirlögregluþjónn á landinu og aðeins ein kona er að- stoðaryfirlögregluþjónn. Árið 1996 voru konur 4,3 prósent starfandi lögreglumanna en árið 2006 var hlutfallið komið upp í n,8 yi prósent. /#H Engin kona yfirlögregluþjónn Alzheimers-sjúk- lingar án úrræða Yfirvöld vissu lítið sem ekkert um aðstöðu 100 til 150 manns á aldrinum 45 til 65 ára sem þjást af Alzheimer fyrr en rannsókn Hönnu Láru Steinsson félagsráð- \ gjafa var kynnt árið 2005. Æ* Helmingur nemenda á hjóli HÍÉÍfÍ ' „Ég hef talið allt upp í 150 hjól hér úti á góðum degi" Mikill fjöldi hjóla blasti við ljósmyndara þegar hann var á ferðinni við Fossvogsskóla. Óskar S. Einarsson skólastjóri segir að það hafi lengi verið stefna skólans að hvetja nemendur til að koma í skólann á umhverfisvænan hátt. „Við byrjuðum á þessu fyrir allmörgum árum. Þá settum við ákveðnar reglur um notkun hjólanna og settum sem skil- yrði að allir notuðu hjálm. Þetta hefur gengið mjög vel og ég hef talið allt upp í 150 hjól hér úti á góðum degi.“ Þess má geta að nemendur við skólann eru um 290 og því má ætla að um helmingur þeirra korni hjólandi í skólann. Bófar afgreiða viðskiptavini Vopnaðir ræningjar afgreiddu viðskiptavini í íþróttavöru- verslun í Úrúgvæ sem þeir voru að ræna, áður en þeir hlupust á brott. Lögregla í höfuðborginni Montevideo segir að ræningjarnir hafi læst einn starfsmann inni í bakherbergi og skipað öðrum að afhenda þeim peninga og önnur verðmæti í búðinni, þegar viðskiptavinir komu inn í búðina. Ekki liggur fyrir hvort þeir gerðu þetta til að fela þá stað- reynd að rán stæði yfir eða til að bæta við ránsfenginn með söluaðstoðinni. ai NEYTENDAVAKTIN IJrl I Matreiðslurjóml Vi Itr. Verslun Krónur Kaskó 157 Spar Bæjarlind 169 Hagkaup 172 Nóatún 172 Samkaup-Úrval 174 11-11 211 Verökönnun á matrelöslurjóma Vz Itr. Upplýsingar frá Neytendasamtökunum GENGI GJALDMIÐLA SALA % WM USD 65,83 0,98 ▲ GBP 133,55 1,17 ▲ SS DKK 12,20 1,19 A • JPY 0,58 0,77 ▲ BB eur 90,83 ro 0 ► GENGISVÍSITALA 122,80 1,16 ▲ ÚRVALSVÍSITALA 7929.60 -2,8 ▼ Reykjavík: Mörkin 4, sími: 533 3500 Akureyri: Hofsbót 4, sími: 462 3504 Opib virka daga: 10-18 og laugardaga 11-16 • Hvergi meira úrval af stillanlegum heilsurúmum og heilsudýnum. • Sjúkraþjáfari er í versluninni á fimmtudögum frá kl. 16 -18. starfsfólk við val á réttu rúmi.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.