blaðið - 13.09.2007, Side 8

blaðið - 13.09.2007, Side 8
8 FRETTIR FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 blaöiö Jespersen aftur ráðherra Karen Jespersen, fyrrum félags- mála- og innanríkisráðherra ríkisstjórnar danskra jafnaðar- manna, hefur tekið við embætti félagsmálaráðherra í ríkisstjórn Danmerkur. Anders Fogh Rasm- ussen forsætisráðherra skipaði hana ráðherra í gær, tæpu ári eftir að hún yfirgaf Jafnaðar- mannaflokkinn og gekk til liðs við Venstre, flokk Rasmussen. Jespersen tekur við embættinu af Evu Kjer Hansen, sem tekur við landbúnaðarráðherraembætt- inu af Hans Christian Hansen. Mannabreytingar urðu einnig í samgönguráðuney tinu í gær, þar ráðherraembættinu af Flemming sem Jakob Axel Nielsen tók við Hansen. ai Estrada dæmdur fyrir spillingu Dómstóll á Filippseyjum hefur dæmt Joseph Estrada, fyrrum forseta landsins, í lífstíðarfang- elsi fyrir að hafa gerst sekur um spillingu. Estrada var ákærður fyrir að hafa dregið sér um fimm milljarða króna áður en honum var steypt af stóli í friðsamlegri uppreisn árið 2001. Estrada sagði úrskurð dómsins hafa verið af pólitískum rótum sprottinn og að réttarhöldin, sem stóðu í um sex ár, hefðu einungis verið til sýndar. aí Góð með kjúklingi, svínakjöti, reyktum laxi, graflaxi, sem salatsósa og í kalt pastasalat hverskonar. VOGABÆR Frábær köld með kjúklingi og lambakjöti og út á pizzuna. Góö á saltkexið með rifsberjahlaupi og sem ídýfa. Pólitísk umbrot í Rússlandi Ríkisstjórnin hættir Vladimír Pútín Rúss- landsforseti hefur fall- ist á afsögn Mikhails Fradkovs forsætisráð- herra og ríkisstjórnar hans. Fradkov segist hafa boðist til að segja af sér vegna mikil- vægra pólitískra at- burða sem í vændum væru og vildi hann veita forsetanum fullt frelsi til ákvarðana, þar á meðal um mannaráðningar. tiltölulega óþekktur í rússneskum Pútín útnefndi í gær Victor stjórnmálum. Zubkov nýjan forsætisráðherra. Þrír mánuðir eru til þingkosn- Zubkov hefur stýrt eftirliti ríkis- inga í Rússlandi og sex til fyrirhug- ins með fjármálaglæpum og er aðra forsetakosninga. aí Lýðveldið Kongó Fjöldi lést af völdum ebólu Tæplega tvö hundruð manns hafa látist af völdum ebóluveir- unnar í Kasai-héraði í Lýðveld- inu Kongó síðustu daga. Al- þjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur staðfest að 166 hafi látist og er kunnugt um tæplega fjögur hundruð önnur tilfelli veirusýkingar á svæð- inu. Veiran er bráðsmitandi og engin lækning til við henni. WHO hefur lokað nokkur þorp af, en enn sem komið er ekki séð ástæðu til mæla með því að dregið sé úr ferðafrelsi eða lokað á útflutning. ai Löggur kafna í skriffinnsku ■ Of mikill tími enskra lögreglumanna fer í skriffinnsku ■ Lög- reglumenn þurfa að einbeita sér meira að sýnilegri löggæslu Eftir Atla ísleifsson atlii@bladid.net Lögreglumenn í Englandi og Wales geta ekki unnið starf sitt almennilega vegna mikillar skrif- finnsku og eru tregir til að beita sinni eigin dómgreind, samkvæmt nýrri skýrslu sem unnin var af Sir Ronnie Flanagan, fyrrverandi lögreglustjóra og sérstökum ráðgjafa breska innanríkisráðherrans i löggæslumálum. Flanagan segir lög- reglumenn gefa of ítarlegar skýrslur af útköllum og atburðum af ótta við að verða gagnrýndir fyrir að sleppa einhverju við skýrslugerðina. Nauð- synlegt sé að koma í veg fyrir of mikla skriffinnsku til að veita lög- reglumönnum aukinn tíma til þarf- ari starfa. Jacqui Smith, innanríkisráðherra Bretlands, segir í samtali við breska ríkisútvarpið að þörf sé á breyt- ingum þannig að lögreglan verði skilvirkari og um leið hæfari til að kljást við glæpamál og að Flanagan hafi komið fram með nokkrar skýrar og hagnýtar tillögur til úr- bóta. Smith segirýmislegtinnanlög- reglunnar hafa breyst til batnaðar á undanförnum árum. Meðal annars hafi lögreglumönnum fjölgað og greinilegur árangur náðst í að draga úr glæpum. Hverfalöggæsla 1 skýrslunni er hverfalöggæsla í Englandi og Wales sérstaklega lofuð og sagt að hún hafi skilað árangri. Flanagan segir að lögregluembætti SKÝRSLAN y., Ráðgjafi breska innanríkis- ^ ráðherrans mælir með að betri tækjum verði komið fyrir í lögreglubílum þannig að meiri upplýsingar geti borist til lögreglumanna á ferðinni. W. Flanagan vill að menn í ~ gæsluvarðhaldi sem staddir eru á lögreglustöð eigi að geta komið fyrir dómara í gegnum myndskjá. Þannig mætti spara tíma og mann- afla. verði þó að vinna nánar með sveit- arstjórnum, skólum og fleiri stofn- unum til að slík löggæslu skili enn betri árangri. Á vef BBC segir að Flanagan telji að með breyttu samfélagi hafi lögreglumenn orðið tregari til að taka áhættu. Þeir gefi of ítarlegar skýrslur og afkasti því í raun minna. Hann kallar eftir breytingum á lög- reglumenningu í landinu. Flanagan hvetur yfirmenn til að ýta undir að lögreglumenn beiti eigin dóm- greind og að sérstökum sjálfboða- liðasveitum verði komið á fót til að aðstoða hverfalögreglu við að draga úr glæpum. Þá vill hann láta búa til nýjar staðlaðar skýrslur, þannig að skriffinnska verði höfð í lágmarki. ,Við eigum á hættu að lögreglumenn einbeiti sér að því að gefa skýrslur um glæpi í stað þess að vera á göt- unni til að leysa mál og koma í veg fyrir glæpi. “ HVAÐ VANTARUPPÁ? Hringdu í síma 510 3700 eöa sendu póst á bladid@bladid.net Stormasöm valdatíð forsætisráðherra Japans senn á enda Shinzo Abe segir af sér Shinzo Abe hefur tilkynnt að hann hyggist segja af sér embætti forsætisráðherra Japans, tæpu ári eftir að hann tók við völdum. Abe hefur sætt mikilli gagnrýni og hafa margir krafist afsagnar hans í kjöl- far þess að flokkur hans galt afhroð í kosningum til efri deildar þings- ins í sumar. Fjölmörg hneykslismál hafa einkennt stutta valdatíð Abes og hafa margir ráðherrar hrökkl- ast frá embættum sínum á síðustu mánuðum. Háttsettir embættismenn segja að heilsa Abes hafi átt þátt i ákvörðun hans um afsögn, en Abe sagði sjálfur að annar forsætisráð- Shinzo Abe Arftaki forsæt- isráðherrans verður skipaður í næstu viku. herra væri betur í stakk búinn til að leysa deiluna um stuðning Japana við stríðsrekstur Bandaríkjanna í Afganistan. Abe sagði að í núver- andi ástandi væri ekki mögulegt að halda uppi skilvirkri stefnu og að hann tæki á sig ábyrgðina á því að ríkisstjórninni hefði ekki tekist að ávinna sér traust almennings. Nýj- ustu skoðanakannanir hafa bent til þess að einungis þrjátíu prósent Japana væru ánægð með störf ríkis- stjórnar Abes. Frjálslyndir demókratar, flokkur Abes, munu koma saman í næstu viku til að útnefna nýjan formann sem mun jafnframt taka við for- sætisráðherraembættinu. Taro Aso, framkvæmdastjóri flokksins og náinn samstarfsmaður Abes, er af mörgum takinn líklegastur til að hreppa hnossið. atlil@bladid.net

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.