blaðið - 13.09.2007, Page 11

blaðið - 13.09.2007, Page 11
bíaöið FiMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 FRÉTTÍR 11 Geir Haarde á írlandi Geir H. Haarde forsætisráð- herra kemur á morgun heim úr þriggja daga heimsókn til írlands. Geir fór til landsins meðal annars í því skyni að heimsækja fyrirtæki þar í landi sem eru í íslenskri eigu, þ.e. fyrirtækin Hibernia Atl- antic, Industria og Merrion Capital Group og Fortás sem er stefnumótunar- og ráðgjafar- vettvangur stjórnvalda á sviði viðskipta og vísinda. Einnig hittir forsætisráðherra forseta írlands, Mary McAle- ese, og þrjá ráðherra í ferðinni: Bertie Ahern forsætisráðherra, viðskiptaráðherrann Michéal Martin og Brian Lenihan dóms- málaráðherra. hos Afturí ökupróf Allmargir voru staðnir að hraðakstri á höfuðborgarsvæð- inu í gær en í þeim hópi var 17 ára stúlka sem var stöðvuð á mótum Reykjanesbrautar og Sæbrautar. Bíll hennar mældist á 118 km hraða og fyrir vikið á stúlkan ökuleyf- issviptingu yfir höfði sér. Lög- reglan segir að nú liggi fyrir stúlkunni að reyna að standast ökupróf öðru sinni. STUTT • Stórsýning Sýningin Verk og vit verður haldin dagana 17.-20. apríl 2008 í Iþrótta- og sýningar- höllinni í Laugardal. • Fríverslunarsamningur Skrifað var undir samkomulag um samstarf í verslun og við- skiptum milli Kína og íslands í Reykjavík á mánudag. í gangi eru viðræður um fríverslunar- samning milli landanna og er þetta samkomulag Iiður í þeim viðræðum. • Mótmæli Saving Iceland mót- mæltu fyrir utan stjórnarráðið í gæi. Mótmælin voru liður í alþjóðlegum mótmælum gegn stóriðju víða um heim í gær, 12. september. • Innbrot Lögregla handtók tvo karla á fertugsaldri í verslun í Ármúla í Reykjavík á þriðjudagskvöld. Mennirnir brutu upp útidyrahurð og höfðu stungið á sig skiptimynt úr búðarkassa þegar lögreglan kom á vettvang. Þjófarnir hafa áður komið við sögu hjá lögreglu en annar þeirra var eftirlýstur fyrir aðrar sakir. Mælst til að Dash 8-400 vélar verði kyrrsettar eftir annað óhapp Annað óhappið á nokkrum dögum Kanadíski flugvélaframleiðand- inn Bombardier mæltist til þess í gær að allar flugvélar af gerðinni Dash 8-400 verði kyrrsettar og gangist undir ítarlega skoðun, eftir að flugvél norræna flugfélagsins SAS nauðlenti í Vilnius, höfuðborg Litháens, í gær. Þetta var annað óhapp Dash 8-400 vélar í eigu SAS við lendingu á nokkrum dögum, en lendingarhjól gaf sig við lendingu í Álaborg í Danmörku síðastliðinn sunnudag. Enginn slasaðist í óhöpp- unum tveimur. Vélinni í Litháen var nauðlent eftir að grunur vaknaði um bilun í hægra lendingarhjóli vélarinnar. Óhapp við lendingu Enginn slasaðist þegar vélin í Litháen fór út af brautinni í lendingunni. Rúmlega fimmtíu manns voru um borð í vélinni, sem var á leið frá Kaupmannahöfn til litháíska bæj- arins Palanga. I kjölfarið kyrrsetti SAS allar Dash 8-400 vélar sínar og neyddist því til að aflýsa rúmlega hundrað flugferðum í gær, flestum í norðurhluta álfunnar. Flugfélag Islands hefur á að skipa tveimur Dash 8 flugvélum. Þær eru hins vegar af gerðinni Dash 8-ioo, ekki Dash 8-400, og verða því ekki kyrrsettar. Þá hefur Landhelgis- gæslan pantað flugvél af gerðinni Dash 8-300 og munu óhöpp síðustu daga ekki hafa áhrif á þau kaup. atlii@bladid.net ■MM| Þú ert letkdyórtrjT) í þií)<J líft HVAÐ VILTU VERÐA? HVAÐ VILTU LÆRA' HVERT VILTU FARA? ÞÚ ERT LEIKSTJÖRINN í ÞÍNU LÍFI, .OG ÞAÐ ER SAMA HVAÐA HLUTVERK ÞÚ VELUR, KAUPÞING STENDUR MEÐ ÞÉR KAUPÞING BÝÐUR ÞJÓNUSTU SEM ER SNIÐIN AÐ ÞÖRFUM UNGS FÓLKS. KANNAÐU MALIÐ A WWW.KAUPTHING.IS/UNGTFOLK EÐA HRINGDU I SÍMA 444 7000. HVERT ER ÞITT HLUTVERK? KAUPÞING Huqsum lengra

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.