blaðið

Ulloq

blaðið - 13.09.2007, Qupperneq 14

blaðið - 13.09.2007, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 blaöiö FÉOGFRAMI vidskipti@bladid.net n Þegar leið á viðræðurnar og við kynnt- umst starfsemi fyrirtækjanna þá sáum við að rekstur sem þessi gat vel rímað við fjárfestingarstefnu okkar. Vísitala neysluverðs hækkar Vísitala neysluverðs í september hækkaði um 1,32 prósent frá fyrra mánuði samkvæmt upplýs- ingum frá Hagstofunni. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækk- aði um 1,14 prósent frá ágúst. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísi- tala neysluverðs hækkað um 4,2 prósent, en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 1,1 prósent. ai Verðbólguhorfur hafa versnað Greiningardeild Kaupþings telur að verðbólguhorfur til skamms tíma hafi versnað. Vísitala neyslu- verðs hækkaði milli ágúst og september um 1,32% og er ársverð- bólga nú 4,2%. Kaupþing telur að búast megi við frekari hækk- unum á eldsneyti og matvörum á næstunni. Greiningardeild Kaupþings segir að sú hætta sé nú fyrir hendi að með lægra gengi krónunnar komi fram talsverður verðbólguþrýst- ingur. Vinnumarkaðurinn sé enn yfirspenntur og því allt útiit fyrir að frekari kostnaðaráhrifa muni gæta í náinni framtíð. mbl.is Hluthafar OMX kiosa Nasdaq Robert Greifeld, forstjóri banda- ríska verðbréfamarkaðarins Nasdaq, segir að allir hluthafar sænska kauphallarfyrirtækisins OMX styðji yfirtökutilboð frá Nasdaq en ekki tilboð frá Borse Dubai í Sameinuðu arabísku furstadæmunum þótt síðar- nefnda tilboðið sé hærra. „Þetta liggur beint við. Það eru samhljóða viðbrögð að tilboð Nasdaq sé ákjósanlegra," sagði Greifeld á blaðamannafundi í Kaupmannahöfn í dag. Nasdaq bauð 3,7 milljaðra dala í reiðufé og hlutabréfum fyrir OMX. Borse Dubai bauð 4 millj- arða í reiðufé. Greifeld sagðist telja að með samruna OMX og Nasdaq gæfist einstakt tækifæri á þessum mark- aði en auðvitað litu hluthafar OMX til þess munar sem er á tilboðunum. Hann vildi þó ekki segja hvort Nasdaq myndi hækka tilboðið. mbl.is Nýr forstjóri flugstöðvarinnar Höskuldur Ásgeirsson lætur af störfum sem forstjóri Flug- stöðvar Leifs Eiríkssonar í Iok nóvember nk. og tekur Elín Árna- dóttir við starfinu. Elín hefur verið staðgengill forstjóra frá því á síðasta ári. Elín er 36 ára gömul og með menntun frá viðskiptadeild Háskóla íslands. Hún starfaði sem sérfræðingur hjá fyrirtækja- þróun íslandsbanka þar til hún var ráðin fjármálastjóri Flug- stöðvar Leifs Eiríkssonar árið 2001. Áður hafði hún starfað sem fjármálastjóri Snæfells 1997 til 1998 og í hagdeild Gelmer-Ice- Iand Seafood í Frakklandi 1999 til 2000. Höskuldur Ásgeirsson var ráðinn framkvæmdastjóri félagsins og síðar forstjóri þegar rekstur Flugstöðvar Leifs Eiríks- sonar og ríkisfríhafn- arinnar var sameinaður og hlutafé- lagavæddur árið 2000. hos Hótel D’Angleterre Gísli Reyn isson, forstjóri Nordic Partners, var afar ánægður með kaupin Islendingar kaupa Kaupmannahöfn ■ Nordic Partners kaupa D'Angleterre-hótelið ásamt fleiri hótelum ■ Kaupverð fæst ekki uppgefið Eftir Frey Rögnvaldsson freyrr@bladid.net Fjárfestingarfélagið Nordic Partn- ers keypti í gær dönsku hótelkeðj- una Remmen Hotels, en í þeirri keðju eru hótelin Kong Frederik, Front og hið fornfræga hótel D’Ang- leterre. Auk þess fylgir veitingastað- urinn Copenhagen Corner með í kaupunum. Hótelið D’Angleterre stendur við Kongens Nytorv og hefur í áratugi verið eitt vinsælasta og virtasta hótel í Skandinavíu. Hót- elið er einn helsti gististaður fyrir- menna og frægðarfólks sem sækir Kaupmannahöfn heim. Hótel Front stendur við höfnina í Kaupmanna- höfn, gegnt nýja óperuhúsinu, og Kong Frederik stendur við Ráðhús- torgið. Öll þessi hótel setja svip sinn á Kaupmannahöfn og eru þekkt kennileiti í borginni. Mikil ánægja með kaupin Gísli Reynisson, forstjóri og aðal- eigandi Nordic Partners, var mjög ánægður með kaupin þegar að Blaðið náði sambandi við hann í gær. „Við höfum staðið í samninga- viðræðum um þessi kaup frá því í febrúar síðastliðnum í nánu sam- starfi við fyrirtækjaráðgjöf Lands- NORDIC PARTNERS ► Fjárfestingarfélagið Nordic Partners var sett á stofn í ársbyrjun 1997 og hefur fram til þessa mestmegnis starfað í Eystrasaltslöndun- um, einkum Lettlandi. ► Félagið er íslenskt með höfuðstöðvar við Suðurgötu 10. Það er í eigu fjögurra fjárfesta, Gísla Reynissonar, sem er forstjóri þess og að- aleigandi, Bjarna Gunnars- sonar, Jóns Þórs Hjaltason- ar og Daumants Vitols. U. Heildareignasafn félagsins ^ hljóðar upp á rúmlega 65 milijarða króna. bankans sem var okkar aðalráðgjafi. Það er mikið gleðiefni að kaupin hafi loksins gengið í gegn. I upphafi höfðum við áhuga á þessari fjárfest- ingu sem fasteign en þegar leið á viðræðurnar og við kynntumst starf- semi fyrirtækjanna þá sáum við að rekstur sem þessi gat vel rímað við fjárfestingarstefnu okkar,“ sagði Gísli. Að hans sögn stendur ekki til að gera neinar stórfelldar breyt- ingar á starfsemi hótelanna fyrsta kastið, rekstur þess sé traustur og allir lykilstarfsmenn muni halda áfram. Vissulega verði þó horft til þess að bæta reksturinn enn frekar til lengri tíma litið. Möguleiki á frekari hótelkaupum Gísli segir að mikill hugur sé í þeim Nordic Partners-mönnum og þeir séu með mörg verkefni í vinnslu. Fjárfestingarstefna félags- ins er byggð upp á tveimur megin- stoðum, fasteignaviðskiptum og matvæla- og drykkjaframleiðslu. ,Fyrirtækið stendur vel fjárhags- lega og er tilbúið í enn frekari fjár- festingar á þessu ári. Við erum að skoða mjög spennandi fjárfestingar í matar- og drykkjarvörugeiranum sem við vonumst til að geta lokið á þessu ári. Það er ljóst að hugur okkar stendur til þess að færa enn frekar út kvíarnar i þessum hótel- rekstri þó að ekkert slíkt sé í hendi enn sem komið er. Við hefðum ekki farið út í þessa fjárfestingu nema því aðeins að við hefðum hug á því að vaxa og dafna í þessum geira.“ HVAÐ VANTARUPPÁ? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á bladid@bladid.net MARKAÐURINN ÍGÆR Hlutabréfaviðskipti með skráð bréf hjá OMX á íslandi, 12. sept. 2007 Viðskipti 1 kronum Heildar- ATH. = Athugunarlisti Viðskipta- Hlutfallsl. Dagsetníng Fjöldi viðskipti Tilboö (lok dags: verö breyting viðsk.verös viöskipta dagsins Kaup Sala Félög í úrvalsvísitölu a Atorka Group hf. 9,88 0,20% 12.9.2007 1 836.698 9,85 9,86 ▼ Bakkavör Group hf. 63,50 -1,70% 12.9.2007 14 122.248.807 63,50 63,70 ▼ Existahf. 30,70 -2,38% 12.9.2007 62 713.810.038 30,65 30,75 ▼ FLGrouphf. 24,95 -0,99% 12.9.2007 13 311.878.750 24,85 24,95 ▼ Glitnir banki hf. 27,65 -0,90% 12.9.2007 54 510.906.431 27,65 27,70 a Hf. Eimskipafélag íslands 39,90 0,25% 12.9.2007 1 349.125 39,70 40,00 ♦ lcelandair Group hf. 26,20 0,00% 11.9.2007 - - 25,80 26,10 ▼ Kaupþing banki hf. 1090,00 -0,64% 12.9.2007 118 2.050.446.757 1089,00 1090,00 ▼ Landsbanki íslands hf. 39,80 -1,24% 12.9.2007 31 493.854.237 39,60 39,80 Mosaic Fashions hf. 17,50 - 4.9.2007 - - #NULL! ▼ Straumur-Burðarás Fjárf.b. hf. 19,25 -1,03% 12.9.2007 30 246.888.111 19,25 19,30 ▼ Teymihf. 6,09 -0,16% 12.9.2007 4 12.145.000 6,04 6,11 ♦ össurhf. 101,50 0,00% 12.9.2007 9 13.481.356 101,00 102,50 Onnur bréf á Aðailista ♦ 365 hf. 2,51 0,00% 11.9.2007 - - 2,47 2,49 ▼ Alfescahf. 6,23 -0,16% 12.9.2007 4 3.591.849 6,20 6,25 ▼ Atlantic Petroleum P/F 1285,00 -0,77% 12.9.2007 24 15.801.860 1285,00 1300,00 ▼ EikBanki 662,75 -1,08% 12.9.2007 4 7.713.413 660,00 667,00 ▼ Flaga Group hf. 1,45 -6,45% 12.9.2007 11 2.566.750 1,45 1,47 ▼ Feroya Bank 219,00 -0,90% 12.9.2007 5 891.552 219,00 222,00 ▼ lcelandic Group hf. 5,90 -1,34% 12.9.2007 9 64.735 5,90 5,98 a Marelhf. 98,60 0,61% 12.9.2007 mm 11.157.530 98,20 99,00 ♦ Nýherjihf. 21,50 0,00% 11.9.2007 - - 21,50 21,90 a Tryggingamiðstöðin hf. 45,20 0,44% 12.9.2007 2 1.988.800 44,80 45,20 Vinnslustöðin hf. 8,50 - 22.8.2007 9,00 First North á fslandi ▼ Century Aluminium Co. 2990,00 -5,56% 12.9.2007 4 36.348.000 2990,00 3035,00 HBGrandihf. 11,50 ■ 7.9.2007 - - 10,50 12,50 Hampiðian hf. 6,50 - 5.9.2007 - - 6,20 6,55 • Mest viðskipti í Kauphöll OMX í gær voru með bréf Kaupþings, fyrir um 2,1 milljarð króna og með bréf Exista, fyrir 0,7 milljarða. • Mesta hækkunin var á bréfum Marels, eða o,6x%. Bréf Trygg- ingamiðstöðvarinnar hækkuðu um 0,44%. • Mesta lækkunin var á bréfum Flögu, eða 6,45%. Bréf Century Al- uminum lækkuðu um 5,56%. • Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,0% í gær og stóð í 7.869 stigum í lok dags. • íslenska krónan styrktist um 0,74% í gær. • Samnorræna OMX40-vísitalan hækkaði um 0,25% í gær. Breska FTSE-vísitalan hækkaði um 0,4% og þýska DAX-vísitalan um 0,2%.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.