blaðið - 13.09.2007, Síða 31

blaðið - 13.09.2007, Síða 31
| bíaöÉd FIMMTUDAGUR 13. SEPTFMBER 20G7 ms Sigþór Hrafnsson fer ótroðnar slóðir í markaðssetningu og goðafræði Gítarar Sigþór Hrafnsson fer fyrir Spil- verki ehf. sem flytur inn gítara frá Jinan Xuqiu Musical Instruments í Kína. Hann hefur gefið þeim nöfn úr íslensku goðafræðinni, sem óneitanlega hafa á sér rokkað yfirbragð. „Ég byrjaði fyrir rúmlega ári að selja margmiðlunarspilara en eftir að hafa vafrað um Netið rakst ég á síðu frá þessu fyrirtæki og ákvað að taka inn eina prufusendingu til að tékka á gæðunum. Ég fékk gít- BLOGGARINN Meðaumkunar- hrollur „Maður fær hálfgerðan meðaumkunarhroll við lesturinn á frétt Eyjunnar um að Jesús og matargestir hans hafi notað þjónustu Vodafone íauglýsingu gerða fyrir Lands- imann hf. Þetta virðist svo klaufalegt að maður er bara stúm.j...] Hvernig er svo hægt að tengja þessi ósköp við það að breyta gangi sögunnar? Hvað breyttist? Hvað hefði getað breyst? Hvað skyldi hafa getað breyst? Breyttist eitthvað? Ef Jesús og Júdas hefðu átt stma, hefði það breytt einhverju? Nei, auðvitað ekki, Júd- as hefur hlutverk, hann er illmennið, eins og Mörður Valgarðsson." Kjartan Valgarðsson kjarval.blog.is é vodafone Vandræðalegt „Sanniði til, ég þurfti sannarlega stækkun- argler til að sjá Vodafone-merkið íaug- lýsingu Símans. [...] Þetta er óneitanlega ansi vandræðaleg yfirsjón hjá Símanum. Dýr og áberandi auglýsing og svo kemur í Ijós að undirniðri erþetta dulin auglýsing fyrír Vodafone. Sjokkerandi uppgötvun allavega. Þeir hjá Vodafone hljóta að brosa lúmskt yfir þessu. Svo vekur athygli að hjá Júdasi sjálfum er víst áríð 2007. Vandræðalegt. “ Stefán Friðrík Stefánsson stebbifr.blog.is Ekki svikin „Það hefur varla farið framhjá nokkrum manni að Síminn hefur veríð að auglýsa þríðju kynslóð farsíma. Auglýsingin er í fréttum svo að segja daglega afmismun- andi ástæðum. Nú síðast vegna þess að Síminn hefur ákveðið að afturkalla hana. Frán augu tóku nefnilega eftirþvíað Júdas og Jesús töluðu saman með hjálp Vodafone. Og efég skil frásagnir fjölmiðla rétt var auglýsingin líka innkölluð vegna þess að íhenni sést (með stækkunargleri) að símtalið fór fram 31. ágúst 2007 „eða tæpum 2000 árum eftirsiðustu kvöldmál- tíðina". Halló! En ekki hvað? Mér finnst ég að minnsta kosti ekki hafa verið svikin!" Ama Schram ama.eyjan.is arsmið og reynda hljóðfæraleikara til að taka í og við vorum allir sam- mála um að þetta væru þrusugóðir gítarar," segir Sigþór. „í framhaldinu pantaði ég stærri sendingu og til þess að gefa þessu aðeins meira kikk gaf ég þeim nöfn úr goðafræðinni því það er svo mikill kraftur í þessum nöfnum. Til dæmis nefni ég gítarana Þrym, Sleipni og Svaðilfara, bassinn heitir Níðhöggur en kassagítarinn ber eina kvenmannsnafnið, Hel. Ég er bara með gítara eins og stendur, en ég mun koma til með að panta bæði blásturshljóðfæri og ásláttarhljóð- færi á næstunni,“ segir Sigþór sem sjálfur segist aðeins spila á gítar. „Ég er nú meira svona bílskúrs- maður, hefverið að experimenta undanfarin 20 ár. Ég á helling af tónlist á Netinu, en ég veit nú ekki hvort það skiptir neinu máli,“ segir Sigþór hógvær, en hann hefur fengið kunna tónlistarmenn til þess að prófa græjurnar. „Við gerðum eins árs samstarfs- samning við Birgi Hilmarsson í Ampop og Pétur Heiðar Þórðarson í hljómsveitinni Drep um að þeir notuðust við gítara frá okkur. Þeir hafa verið alveg í skýjunum með þessar græjur og munu vonandi opna augu annarra tónlistarmanna fyrir þessum finu hljóðfærum." Perlan Ein magnaðasta bygging Reykjavíku'r á dagiun. Eitt besta veitingahúsið á kvöldin. HUMARSUPA rjómalöguð með grilluðum kóngarækjum 1 glas afTokay Pinot Gris Reserve, Lucien Albrect, Frakkland. PÖNNUKAKA fyllt með skógarsveppum og mozzarella-osti J glas qf Maeon Chaintré, Dotnaine de Lalande Dominique Cornin, Frakkland. LAMBAHRYGGUR fillet með steinseljurótarmauki og rósmarínsósu J glas qf Chianti Riserva Sensi, Toskana, ltaiía. ÍSLENSKT VANILLUSKYR með pistasíufroðu og sólberjakrapi 1 glas qf Vino Santo Del Chianti Sensi, Toskana, Ítalía. 5.950 kr. Meðfjórum glösum af víni: 8.790 kr. Villibráðarhlaðborðið hefst 18. okt. Matreiðslumeistarar Perlunnar velja hráefni frá öllum heimshornum til að útbúa bestu villibráð sem hægt er að bjóða upp á. Nú getur þú notið þess í besta villibráðarhlaðborði landsins. Fyrir mat er gestum boðið að bragða á sérvöldum eðalvínum. Aðeins 6.590 kr. | Tilboð mánudaga-miðvikudaga: 5.590 kr. P E R L A N Veitingahúsið Perlan • Öskjuhlíð • Sími: 562 0200 • Fax: 562 0207 • Tölvupóstur: perlan@perlan.is • Vefur: www.perlan.is

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.