blaðið - 14.09.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 14.09.2007, Blaðsíða 1
Réttir um helgina Réttir eru að byrja um helg ina og verður mikið fjör á nokkrum stöðum á Suður- landi, t.d. í Þórkötlustaða- rétt í Grindavík en þar ætla menn að hafa hátíð og eru allir velkomnir. á Burt með fordóma Nýtt æði Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir segist ekki vera fullnuma í hlutverka- spili. Sannkallað æði fyrir hlutverkaspilum hefur gripið um sig eftir sýningar á bíó- myndinni Astrópíu. Dane Magnússon er fæddur á , Jamaíku en fluttist ungur til íslands. Honum mættu ■k miklir fordómar. Hann hefur stofnað félag Jrk til að berjast gegn þeim. FÓLK»38 ORÐLAUS»34 HELGIN»32 174. tölublað 3. árgaiigur Föstudagur 14. september 2007 Útlendir fjárfestar borgi auðlindagjald ■ Viðskiptaráðherra segir hvern þann sem nýtir náttúruauðlindir eiga að greiða gjald Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@bladid.net Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra vill að þeir sem nýta náttúruauðlindir greiði fyrir það sérstakt auðlindagjald. „Mér finnst persónu- lega að það eigi að vera regla að hver sá sem nýtir þjóðarauðlind eigi að greiða rentu fyrir hana. Hver svo sem það er þá finnst mér það algjört grundvallaratriði. Það er táknrænt gjald fyrir nýtingarréttinn á þjóðareigninni." Björgvin tilkynnti fyrr í vikunni að hann ætli að láta skipa nefnd til að endurskoða lög um fjár- festingar erlendra aðila í atvinnurekstri hérlendis. Samhliða þeirri endurskoðun vill hann tryggja AUÐLINDAGJALD ► Auðlindagjald var lagt á útgerðir 2002. í upphafi var það 1,99 kr. á kíló kvóta. ► Ekkert auðlindagjald er innheimt vegna nýtingar á vatnsföllum, auðlinda í jörðu eða annarra takmarkaðra auðlinda. eignarhald þjóðarinnar á náttúruauðlindum í stjórnarskrá. „Það þarf að fylgja svona endur- skoðun að eignarhald þjóðarinnar á auðlindum sínum í sjó, fallvötnum og jörðu sé skilyrðislaust tryggt. Burtséð frá því hverjum við felum tíma- bundinn og skilyrtan nýtingarrétt á þeim til einhverra ára eða áratuga. Við getum mögulega komist að þeirri niðurstöðu að við viljum hleypa erlendum eða innlendum fjárfestum inn í þetta eða hitt. En um leið þarf að tryggja eignarhald þjóðarinnar á auðlindunum þannig að hún eigi þær alltaf.“ Bandaríski fjárfestingarbankinn Goldman Sachs keypti nýverið hlut í Geysi Green Energy, sem aftur á hlut í Hitaveitu Suðurnesja (HS). HS á og nýtir réttindi til að virkja íslenskar auðlindir. Björgvin segir það túlkunaratriði hvort kaupin stangist á við núverandi lög um fjárfestingar er- lenda aðila. Það eigi eftir að reyna á hvort svo sé. ERLENDIR GETA EIGNAST fSLENSKA ORKU 6 M m n ÉP£H»W tf ■.ri ■ m ■ n&M ■ ■ ■ ■ « u-y iýJiluu*i.fc lé'U Mildaði dóm fyrir hrottalega nauðgun Hæstiréttur mildaði í gær dóm yfir karlmanni sem nauðgaði konu hrottalega fyrir réttu ári. Héraðs- dómur dæmdi manninn í fjögurra ára fangelsi, en Hæstiréttur <« «a stytti það um hálft ár. I Vill að strætó fái aukinn forgang Gísli Marteinn Baldursson borg- arfulltrúi segir að leitað sé leiða til að Strætó fái sérakrein á fleiri stofnbrautum. Einn og hálfan tíma getur tekið að komast með strætó úr vesturbæ Kópavogs í «■ ^ Hádegismóa á álagstíma. IV Olía í jarðvegi við Nauthólsvík MYNO/KRISTINN „Nefið er mjög góður dómari" Jarðvegur úr grunni fyrirhugaðrar nýbyggingar Háskólans í Reykjavik við Nauthólsvík, reyndist mengaður af olíu. Starfsmenn hamast nú við að greina hinn mengaða jarðveg frá hinum ómengaða „Nefið er mjög góður dómari,“ segir Lúðvík Gústafsson, deildarstjóri mengunarvarna umhverfissviðs Reykjavíkurborgar. Fjölda tonna hefur verið ekið á Hólmsheiði þar sem til stendur að hreinsa jarðveginn. ÞARF AÐ HREINSA FLEIRI TONN»2 Kynþokki á kúnnana Forseti nígeríska þingsins segir að bankar landsins verði að hætta að beita fallegum kvenkyns starfsmönnunum sínum til að þrýsta á viðskipta- vini að opna reikninga. David Mark segir að þrátt fyrir að bönkum hafi að kröfu seðla- banka fækkað gríðarlega á síðustu árum, þá beiti þeir margir enn fallegum konum til að trekkja að viðskiptavini. Mark segir ástandið óviðunandi og að því verði að Ijúka. „Þið fyrirskipuðuð sam- einingu bankastofnana og því verðið þið að gera eitthvað til að koma í veg fyrir þetta.“ aí NEYTENDAVAKTIN Verð á Frón matarkexi 400 g. Fyrirtæki Krónur Krónan 150 Nettó 153 Þín verslun Seljabraut 194 Melabúðin 219 Kjarval 224 Samkaup - Strax 239 Upplýsingar frá Neytendasamtökunum j?Í9^Í GENGI GJALDMIÐLA SALA % WM USD 63,98 -0,36 ▼ 813 GBP 129,62 -0,58 ▼ 5S DKK 11,93 -0,46 ▼ • JPY 0,55 -1,08 ▼ ■I EUR 88,86 -0,44 ▼ GENGISVÍSITALA 119,84 -0,46 ▼ I ÚRVALSVÍSITALA 7.889,00 0,25 A • Hvergi meira úrval af stillanlegum heilsurúmum og heilsudýnum. • Sjúkraþjáfari er í versluninni á fimmtudögum frá kl. 16 -18. • Sérþjálfað starfsfólk aðstoðar við val á réttu rúmi. Reykjavík: Mörkin 4, sími: 533 3500 Akureyri: Hofsbót 4, sími: 462 3504 Opið virka daga: 10-18 og laugardaga 11-16

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.