blaðið - 14.09.2007, Blaðsíða 2

blaðið - 14.09.2007, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2007 blaöiö McLaren-liðinu hent úr keppni í Formúlu 1 Ökuþórarnir halda stigum sínum Keppnislið McLaren Mercedes missir öll sín stig og fær ekki að taka frekari þátt í keppni bílasmiða í Formúlu 1 á yfirstandi keppnis- tímabili en ökuþórar liðsins, Alonso og Hamilton, fá að halda sínum stigum. Þetta varð niðurstaða Alþjóða- bílasambandsins sem fundaði í gær vegna meints stuldar starfsmanns McLaren á gögnum frá höfuðand- stæðingnum Ferrari. Þóttu gögn í málinu vera næg til sakfellingar og verður lið McLaren að greiða 6,4 milljarða króna sekt fyrir svikin. Hraðamyndavélar á þjóðvegum stilltar á 99 kílómetra hraða Fjöldi sleppur við hraðasektir Hraðamyndavélar á Vesturlandi taka ekki myndir af öku- tækjum með aftanívagna sem keyra á 80 til 90 kílómetra hraða. Hámarkshraði ökutækja með aftanívagn er 80 kíló- metrar á klukkustund. Tvær hraðamyndavélar voru teknar í notkun við þjóðveg 1 í Hvalfjarðarsveit í sumar og hafa þær skilað umtalsverðum árangri. í ágúst síðastliðnum voru lið- lega 1300 ökumenn myndaðir við of hraðan akstur. Ólafur Guðmundsson, yfirlögregluþjónn á Snæfellsnesi, segir að vélarnar séu stilltar á 99 km hraða. „Við náum því ekki þeim sem brjóta af sér á lægri hraða, eins og bílum með aftanívagna. Það er vart mögulegt að færa hraðann niður, það yrði svo gríðarleg vinna við úrvinnslu gagna. Hins vegar væri athugandi að fara í tímabundin verkefni, taka átak þar sem hraðinn yrði mældur neðar í ákveðinn tíma.“ Stefnt er að því að fjölga hraðamyndavélum við þjóðveg- ina og verða átta nýjar vélar settar upp fyrir áramót. Vega- gerðin sér um uppsetningu og viðhald vélanna en lögreglan sér um úrvinnslu gagna. freyrr@bladid.net DV útgáfufélag með netmiðil DV útgáfufélag ehf. hleypir í dag af stokkunum nýjum sjálfstæðum fjölmiðli á Netinu, dv.is. Ritstjóri er Guðmundur Magnússon. Segir í tilkynningu að lögð verði áhersla á að vefurinn sé gagn- virkur og að efnið sé ekki aðeins samið af ritstjórn heldur einnig notendum sem geti sent inn fréttir, ljósmyndir og myndbönd og sagt skoðun sína á öllu efni sem birt er. mbi.is Reyndi að aka niður fyrrver- andi eiginkonu Hæstiréttur staðfesti í gær fang- elsisdóm yfir karlmanni sem sak- aður var um að hafa stofnað lífi fyrrverandi konu sinnar í hættu. Maðurinn ók bifreið sinni að kon- unni sem tókst með naumindum að forða sér. Maðurinn fékk tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi. í dómsorði segir sannað að hann hafi sett konuna í háska með ófyrirleitnum hætti. Úrkynjaðar og ofræktaðar norskar kindur Gæta ekki lambanna Helsta sauðfjárkynið í Noregi er búið að glata náttúrulegum við- brögðum eins og að gæta lamba sinna, halda hópinn og vara sig á rándýrum, að því er rannsóknir vísindamanna sýna. Kjötið af þessu sauðfé er meira en af fornnorræna kyninu og það eignast fleiri lömb. „Ég tel ástæðu til að setja spurn- ingarmerki við hvort þetta sé vegna tiltekinnar ræktunar. Þetta tengist hins vegar örugglega tamningu og aðlögun að breyttu umhverfi, “ segir Jón Viðar Jónmundsson, ráðunautur i sauðfjárrækt hjá Bændasamtökunum. Jón telur að íslenska sauðkindin, sem er af fornnorrænu kyni, hafi enn mikið af náttúrulegum viðbrögðum þótt hún hafi verið ræktuð. Fornnor- ræna sauðkindin er enn ræktuð í Nor- egi en stofninn er lítill. ibs Atvinnublaðið alla laugardaga uppl í sima 510 3728 ATVIIUMA Hreinsa þarf f leiri tonn af jarðvegi ■ Olíumengaður jarðvegur kemur upp úr grunni byggingar Háskólans í Reykjavík ■ Breska hernum líklega um að kenna Eftir Arndísi Þórarinsdóttur arndis@bladid.net Flytja þarf fleiri tonn af olíumeng- uðum jarðvegi úr grunni nýrrar byggingar Háskólans í Reykjavík við Nauthólsvík til hreinsunar á losunarstað á Hólmsheiði þar sem hann verður hreinsaður samkvæmt leiðbeiningum Hollustuverndar. Alls verða 59.000 rúmmetrar af jarðvegi fluttir af staðnum vegna byggingarinnar. „Þetta er ekki allt mengað, bara hluti af þessu,“ segir Lúðvík Gústafs- son, deildarstjóri mengunarvarna umhverfissviðs Reykjavíkurborgar. Hann segir að sýni tekin af handa- hófi úr jarðveginum hafi sýnt fram á olíumengun, en ekki sé hægt að segja til um það hvenær mengunin hafi orðið eða af hvers völdum. „Nefið er mjög góður dómari,“ segir Lúðvík aðspurður um það hvernig farið sé að því að ákvarða hvaða hluta jarðvegsins skuli senda til hreinsunar. „Finnist minnsti ol- íudaunn af jarðveginum, þá er það hlass allt sent til hreinsunar.“ Slökkviliðið segist saklaust Engin merki eru lengur um meng- unina á yfirborði jarðarinnar og sökum grunnvatnshreyfinga gæti olían nú verið allnokkuð frá þeim stað þar sem svörðurinn drakk hana fyrst í sig. Því er að sama skapi erfitt að átta sig á umfangi mengun- arinnar. Lúðvík segir líklegar skýr- ingar á menguninni liggja í því að BYGGING HR ► Borgarstjóri tók fyrstu skóflustunguna í 24. ágúst sl. ► Gert er ráð fyrir að fyrstu nemendurnir hefji nám í hús- inu í ágúst 2009. ► Húsið á að verða um 35.000 fermetrar. slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hafi lengi æft þarna en einnig hafi verið þarna hernaðarstarfsemi um og eftir seinna stríð. Björn Ásgrímur Björnsson, deild- arstjóri hjá Slökkviliði höfuðborg- arsvæðisins, segir það af og frá að hægt sé að kenna liðinu um meng- unina. Það hafi vissulega verið æft með olíuelda þarna, en þeir hafi, ekki verið tendraðir nema í steyptum pyttum og því ekki valdið umnverfisspjöllum. Lnðvík segir það af og frá að los- unarstaðurinn á Hólmsheiði sé of nærri vatnsverndarsvæðum, enda liggi það í hlutarins eðli að séu hlutir utan vatnsverndarsvæða á annað borð, þá sé það mat sérfræðinga að jafnvel þótt umhverfisslys verði þá muni þau ekki hafa neikvæð áhrif á vatnsból. Lúðvík segir það nær- tækara að hafa áhyggjur af því að 40.000 tonnum af eldsney ti sé ekið á ári hverju eftir Suðurlandsveginum í gegnum vatnsverndarsvæði, vilji menn á annað borð hafa áhyggjur af drykkjarvatni landsmanna. Algjört ógeð Dúkur hefur verið breiddur á jörðina á losunarstaðn- um.á.Hólmsheiði til þess að olíu- ! mehfiúnin dreifist ekki viðar. Blaðlð/Kristlnn I VEÐRIÐ í DAG Él fyrir norðan Norðan- og síðan breytileg átt, 3-10 m/s og víða léttskýjað, en norðvestan 8-13 og stöku él við NA-ströndina fram eftir degi. Hiti 1 til 10 stig, hlýjast syðst. Á MORGUN Hlýjast syðst Austan 10-15 m/s sunnan- og vestantil, en mun hægari NA-lands. Rigning sunnanlands, stöku él NA-lands, en annars þurrt. Hiti 0 til 8 stig, hlýjast syðst. Sökktu báti til að fagna banni Bandarískur náttúruverndar- hópur segist bera ábyrgðáþvíað norskt hvalveiði- skipsökkvið bryggju í norska bænum Svolvær fyrir hálfum mánuði. í nafnlausu innleggi á bandarísku vefsíðunni Bite Back er fullyrt að hópur sem kallar sig „ Agenda 21“ hafi sökkt norska hvalveiðiskipinu Willassen Senior tii að fagna ákvörðun ís- lenskra stjórnvalda um að úthluta ekki nýjum hvalveiðikvótum. Norska lögreglan hafði fram að þessu talið ólíklegt að um skemmd- arverkhefði verið að ræða.___a Leiðrétt Ritstjórn Blaðsins vill leiðrétta hvaðeina, sem kann að vera missagt í blaðinu. Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2. Viðvörun: Búist er við stormi um suðaustan- og austanvert landið fram á nótt. Vl'ÐA UM HEIM Algarve 23 Halifax 17 New York 19 Amsterdam 17 Hamborg 15 Nuuk 11 Ankara 23 Helsinki 12 Orlando 24 Barcelona 25 Kaupmannahöfn 17 Osló 15 Berlín 13 London 22 Palma 25 Chicago 17 Madrid 29 París 21 Dublin 18 Mílanó 25 Prag 21 Frankfurt 19 Montreal 11 Stokkhólmur 14 Glasgow 18 Miinchen 23 Þórshöfn 11

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.