blaðið - 14.09.2007, Blaðsíða 4

blaðið - 14.09.2007, Blaðsíða 4
FRÉTTIR FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2007 blaðið Hæstiréttur Skal dúsa í varöhaldi Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykja- víkur um að maður sem ákærður hefur verið fyrir margvísleg auðgunarbrot skuli sæta gæsluvarðhaldi í allt að mánuð. Maðurinn hefur játað innbrot, þjófnað, bílstuld og fleira. Heildarverðmæti þýfis- ins er áætlað um ; milljónir. Var það mat lögreglu að miðað við brotaferil kærða dagana fyrir gæsluvarðhaldið væri það sýnt að hann myndi halda áfram afbrotum gengi hann laus. Aðeins tveimur dögum áður en héraðsdómur úrskurð- aði um gæsluvarðhaldið var maðurinn dæmdur í 18 mán- aða óskilorðsbundið fangelsi fyrir ýmis auðgunarbrot. Ölvunarakstur Ölvuð með barn í bíl Kona á fertugsaldri var tekin fyrir ölvunarakstur við gatnamót Reykjanesbrautar og Breiðholtsbrautar síðdegis í gær. Með konunni í bílnum var barn hennar sem er á grunnskólaaldri. Þá var rúmlega þrítugur karl tekinn fyrir ölvunarakstur í nótt en sá var stöðvaður í Skútu- vogi. Sami maður var tekinn af lögreglu í vor en þá var hann einnig ölvaður undir stýri. KJIJKLIIMGUR Grensásvegi 5 i Reykjavík i Sími 588 8585 Opiö alla daga 11:00 - 22:00 Samgönguráðherra lætur starfshóp skoða blóð- og þvagsýnatöku vegna umferðarlagabrota Reglur um sýnatöku samræmdar Samgönguráðherra hefur ákveðið að skipa starfshóp til að samræma reglur milli lögregluembætta um sýnatöku af ökumönnum sem grunaðir eru um neyslu ólöglegra efna. Þetta er gert á grundvelli 47. greinar umferðarlaga þar sem segir að „ráðherra setji nánari reglur um sýnatökur og rannsóknir". Um er að ræða öndunarsýni, svita- og munnvatnssýni, blóðprufur og þvagprufur. Ástæður þess að starfshópurinn er skipaður má að miklu leyti rekja til mikillar umræðu sem varð eftir að kona kærði lögregluna á Selfossi fyrir valdbeitingu. Settur var upp þvagleggur hjá konunni með valdi í maí síðastliðnum og sköpuðust miklar umræður í þjóðfélaginu í kjölfarið. Óvíst hvenær niðurstaða fæst Starfshópurinn á að taka til starfa 18. september næstkomandi og er nú beðið eftir því að skilað sé inn til- nefningum í starfshópinn. Þeir sem tilnefna fulltrúa í starfshópinn eru ríkissaksóknari, ríkislögreglustjóri, sýslumannsembættiðáSelfossi.sam- gönguráðuneytið og Lyfjastofnun. Engin tímamörk eru á starfi starfs- hópsins og ekki er ákveðið hvenær hann á að skila niðurstöðu. freyrr@bladid.net Gróf farangurinn út og keyrði til Keflavíkur ■ Rúta ók inn í aurskriðu á Vesturlandsvegi ■ Mikilvægast að ekki varð alvarlegt slys, segir ökumaðurinn ■ Kolniðamyrkur úti og bíll sem kom fyrr að skyggði á skriðuna Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynur@bladid.net „Það sem mestu skiptir er að ekki skyldu verða alvarleg slys,“ segir Reynir Jóhannsson rútubílstjóri sem lenti í því að festa rútu sína í aurskriðu sem hafði fallið úr Esj- unni á þjóðveg 1 við Mógilsá í fyrri- nótt. Reynir var að keyra hóp 60 kvenna frá Akranesi til Keflavíkur- flugvallar þar sem þær voru á leið til Frankfurt. Tvær þeirra meiddust lítillega, en Reynir segist ekki enn vera búinn að kanna hvort rútan hafi skemmst. Bíll skyggði á skriðuna „Allt í einu sé ég bíl snúa við á veg- inum fyrir framan okkur. Ég hægi því á rútunni og tek háu ljósin af. Hinn bílstjórinn er hins vegar enn með háu ljósin á sem gerir skyggnið verra fyrir mig, en þegar ég mæti honum erum við ekki búin að sjá skriðuna því bíllinn er þversum á veginum fyrir framan hana. Eng- inn í rútunni sá skriðuna fyrr en of seint, enda var svartamyrkur," segir Reynir. Reynir segir að ekki hafi verið um mikið högg að ræða, en hins vegar hafi rútan setið pikkföst í drull- unni og þurfti að kalla út tæki til að draga hana út úr skriðunni. „Við kölluðum líka út aðra rútu sem sótti farþegana, sem héldu allir nema einn áfram til Keflavíkur.“ Skriða við Mógilsá Bílstjórinn sá ekki aur- skriöuna fyrr en rútan sat pikkföst í drullu. Gróf farangur farþeganna út Aurinn náði upp að miðju far- angursrýminu og því urðu farþeg- arnir að halda áfram án farangurs síns. En Reynir sá um að koma öllu til skila. „Ég varð eftir ásamt nokkrum öðrum til að moka drulluna frá farangursgeymsl- unum. Upphaflega ætlaði fólkið að fljúga út án farangursins, en við náðum honum sem betur fer út og ég gat skutlað farangrinum til Keflavíkur.“ Á endanum komust því bæði konurnar og farangur þeirra til Frankfurt, án þess að tafir yrðu á fluginu. Reynir segist hafa orðið mjög hissa á skriðunni, enda aldrei vitað til þess að skriður hefðu fallið á þessum stað áður. Fólkið hafi þó tekið þessu vel. „Því var ótrúlega lítið brugðið miðað við aðstæður og það tók þessu með miklu jafnaðargeði." AURKSKRIÐAN ► Skriðan var nokkurra tuga metra breið og féll á þjóð- veg 1 í Kollafirði við Mógilsá. ► Að sögn lögreglunnar er ekki vitað til þess að áður hafi fallið skriða á veginn á þessum slóðum. ► Líklegt er talið að mikið vatnsveður hafi komið skrið- unni af stað. Kerrudagar hjá Topdrive.is Létti 109.900 kr. galvanseruö! Frí garðlýsing fylgir! hverri seldri kerru að verðmætH5.900 kr. Burðaflötur: 230x 122cm. Endurbætt útgáfa... á meöan birgöir endast Topdrive.is Smiðjuvellir 3, Reykjanesbær 422-7722 VISA Lán - HAGST/EDAB AFBOBGANIR Ný uppgötvun vísindamanna Efni sem vinnur gegn Alzheimer Vísindamenn í Umeá í Svíþjóð hafa ásamt hollenskum samstarfs- mönnum sínum uppgötvað efni sem geta stöðvað þróun Alzheim- ers-sjúkdómsins, að því er sænskir fjölmiðlar greina frá. Vísindamennirnir, sem telja að lyf verði mögulega tilbúið innan 5 ára, hafa uppgötvað að taugavirkir sterar likamans sem virka á GABA- A-viðtaka geti hraðað þróun heila- bilunar. Þeir hafa jafnframt fundið efni sem geta stöðvað þessi áhrif. Nýju efnin kunna að gagnast þeim sem greindir hafa verið með kulnun.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.