blaðið - 14.09.2007, Blaðsíða 8
8
FRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2007
blaðiö
Blá kort til innflytienda
ítalinn Franco Frattini, sem fer
með dómsmál hjá framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins, segir
að ríkisstjórnir álfunnar ættu að
líta svo á að innflytjendur auðgi
samfélagið, en séu ekki ógnun.
Hann hyggst kynna hugmyndir
sínar um „blá kort” í næsta mán-
uði sem byggja á hinu svokallaða
græna korti Bandaríkjamanna.
Kortunum er ætlað að laða að
STUTT
• Kyrrsettar Mörg hundruð
flugferðum norræna flugfélagsins
SAS var aflýst í gær vegna þeirrar
ákvörðunar að kyrrsetja allar Dash
8-400 vélar. Áætlað er að flugfé-
lagið tapi um 150 milljónum króna
á dag vegna þessa.
hæfa starfskrafta til aðildarríkja
sambandsins. Frattini sagði
Bandaríkin fá 55 prósent allra
menntaðra fagmanna úr hópi
innflytjenda heimsins, en Evrópa
aðeins fimm prósent. aí
• Alveg búlnn Shinzo Abe, frá-
farandi forsætisráðherra Japans,
var lagður inn á sjúkrahús í
gær. Talsmaður japönsku ríkis-
stjórnarinnar sagði Abe þjást af
ofþreytu eftir skyndilega afsögn
sína.
Veitingahúsið
Lækjarbrekka
Óskar eftir að ráða matreiðslumann til starfa.
Við leitum eftir fagmenntuðum og metnaðarfullum
einstaklingi og æskilegt er að viðkomandi
getið hafið störf sem fyrst.
Mjög góð laun eru í boði.
Vinsamlega hafið samband við
Hilmar Þór £ síma: 892-0434
eða í tölvupósti: info@laekjarbrekka.is
Veitingahúsið
Lækjarbrekka
Óskar eftir aðstoðafólki í veitingasal bæði á
fullar vaktir og aukavaktir um kvöld og helgar.
Reynsla er kostur en ekki skilyrði. Kennsla í
framkomu og vinnubrögðum fyrir óvana.
Allar upplýsingar eru veittar á staðnum
á milli klukkan 14:00 — 17:00
eða í síma 551-4430.
Súmatra skelfur
■ Tuttugu öflugir eftirskjálftar á einum sólarhring ■ Fjöldi fólks
flúði til fjalla í skelfingu ■ Heppnir að sleppa við mikla flóðbylgju
Aceh
®
O SÚMATRA
Öflugir jardskjálftar skekja Indónesíu
Jaröskjálftinn við indónesísku eyjuna Súmötru á miðvikudaginn mældist 8,4
stig á Rlchterskvarða og er sá öflugasti af þeim fjórum í heimlnum sem hafa
náð a.m.k. 8 stiga styrk það sem af er ári. Á meðalári nær einungis einn skjálfti
8 stigum eða meira. Fimmtán til tuttugu ná hins vegar 7 stigum eða meira.
— 12.-13. sept: Neöansjávarskjálfti upp á 8,4 stig
* undan ströndum Bengkulu. Annar skjálfti upp á 7,8
\ Banda stig su*austur af Padang skömmu síðar.
M
Des 2004:
9,3 stiga skjálfti
veldur grlðarstórri ''■«£
flóðbylgju i Indlandshafi.
Um 230.000 látast.
C2? ^
E Mars 2005 í Nias: E1 Maí 2006, Yogyakarta: Q Julí 2006, Pangandaran:
Um þúsund manns Um 5,800 manns látast Um 500 manns látast i flóðbylgju
látast i 8,6 stiga skjálfta. í 6,3 stiga skjálfta. i kjðlfar 7,7 stiga skjálfta
Heimild: USGS ' © GRAPHIC NEWS
Eftir Atla ísleifsson
atlii@bladid.net
Fjölmargir eftirskjálftar skóku
indónesísku eyjuna Súmötru í
gær, degi eftir að gríðarlega öfl-
ugur skjálfti varð að minnsta kosti
tíu manns að bana og eyðilagði
hundruð bygginga. Flóðbylgjuvið-
varanir voru ítrekað gefnar út, en
síðar afturkallaðar. Um tuttugu
eftirskjálftar á bilinu 4,9 til 7,8 stig
á Richters-kvarða mældust við
Súmötru á tuttugu klukkustunda
tímabili í gær. Þar að auki mældist
6,4 stiga jarðskjálfti á þrjátíu kíló-
metra dýpi mun austar, eða undan
ströndum eyjunnar Sulawesi.
Jarðskjálftinn á miðvikudaginn
var sá öflugasti í heiminum það sem
af er ári, en hann mældist 8,4 stig.
Skjálftinn fannst í fleiri hundruð
kílómetra fjarlægð frá upptökum
skjálftans, þar á meðal í höfuðborg-
inni Jakarta, Singapúr, Taílandi og
víðar. Mörg hundruð slösuðust og
fjölmargir grófust undir rústum
húsa sem hrundu og er enn verið
að vinna að því að ná fólki út. Enn
liggur ekki fyrir hve eyðileggingin
af völdum skjálftans var í raun
og veru mikil, þar sem erfiðlega
hefur gengið að fá upplýsingar frá
afskekktustu héruðunum. Tala lát-
inna kann því að vera mun hærri.
Heppnir
Fjöldi fólks leitaði upp til fjalla
af ótta við að hörmungarnar á
annan dag jóla árið 2004 myndu
endurtaka sig. Þá létust um 280
þúsund manns í löndum með
strönd að Indlandshafi, langflestir
í Indónesíu, eftir að gríðarstór flóð-
bylgja myndaðist í kjölfar öflugs
neðansjávarskjálfta.
Mike Turnbull, ástralskur skjálfta-
fræðingur við Queensland-háskóla,
segir í samtali við fréttastofu Reut-
ers að íbúar Súmötru hafi verið
heppnir á miðvikudaginn að sleppa
við flóðbylgju með svipaðan eyði-
leggingarmátt og sú sem myndaðist
árið 2004. „Flóðbylgja myndaðist í
þessum skjálfta, en hún fór í suðvest-
urátt, í átt frá landi.“
Neyðaraðstoð
Talsmaður Rauða krossins á svæð-
inu segir að þúsundir íbúa hafi
kosið að verja aðfaranótt gærdags-
ins í tjaldi, í stað þess að halda heim.
Nærri átta hundruð byggingar eyði-
lögðust í Bengkulu-héraði í skjálft-
unum, auk þess sem skemmdir urðu
á mörgum til viðbótar. Unnið er að
því að koma matvælum og hjálpar-
gögnum til hamfarasvæðanna og
hefur Susilo Bambang Yudhoyono
Indónesíuforseti skipað her og lög-
reglu landsins að veita aðstoð. Sam-
einuðu þjóðirnar hafa einnig sent
hjálparsveitir á vettvang.
HVAÐ VANTAR UPP Á?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net
Lotus Professional
Heildarlausn fyrir snyrtinguna
mtp®
WC SmartOne statif blátt
WC SmartOne statíf hvítt
Lotus sápuskammtari Foam blár
Lotus sápuskammtari Foam hvítur
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2*110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
i.yyökr.
Lotus enMotion blár snertifrír skammtari
Lotus enMotion hvítur snertifrír skammtari
Gúnter Verheugen Hneykslió
gæti haft áhrif á þýska ríkis-
stjórnarsamstarfiö.
Evrópusambandið
Kynlífshneyksli
hjá skriffinnum
Þjóov
Þjóöverjinn Gúnter Verheugen,
sem fer með málefni iðnaðar í
framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins, liggur nú undir grun um
að hafa staðið óeðlilega að manna-
ráðningum með því að hækka ráð-
gjafa sinn Petru Erler í tign á sama
tíma og hann átti í ástarsambandi
við hana. Hinn 63 ára Verheugen
hefur ávallt neitað ásökununum
og skýrt myndir, sem sýna hann og
Erler án klæða á strönd í Litháen í
júlí á síðasta ári, með nýtilkominni
strípihneigð. Verheugen og eigin-
kona hans skildu nýlega að borði og
sæng.
Á vef The Times segir að málið
kunni að hafa áhrif á þýska ríkis-
stjórnarsamstarfið, þar sem bæði
jafnaðarmenn og kristilegir demó-
kratar munu krefjast þess að maður
úr sínum röðum verði ráðinn sem
arftaki jafnaðarmannsins Verhe-
ugen, komi til þess að hann segi af
sér.
aí