blaðið - 14.09.2007, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR
FOSTUDAGUR 14. SEPTEIVIBER 2007
blaðiö
Kl. 08.09 Kringlan
Ekki alveg minn dagur. S6 hverfur sjón-
um eftir Miklubraut á sama tíma og ég
mæti. En ég lít á björtu hliðina. Nú hef
ég fimmtán mínútur til að anda að mér
rykögnum og menguðum útblæstri við
mestu umferðargötu landsins.
Kl. 08.25 Kringlan
S6 á nokkuð réttum tíma
sem verður að teljast
jákvætt enda umferð úr
miðbæ Reykjavíkur sjald-
an verulega slæm.
V
U
Kl. 07.20 Kársnes
Það er kalt og það rignir og ekkert er
skýlið í þessum gleymda bæjarhluta
Kópavogs. Fjögurra mínútna fyrirvari á
að öllu jöfnu að ganga en samkvæmt
leiðatöflu á vagninn á leið upþ í
Hamraborg að koma kl. 07.24. Vanda-
málið nú er að hann lætur ekki sjá
sig. Ekki fyrr en kl. 07.29. Þung um-
ferð á Nýbýlavegi, svarar bílstjórinn. Á
ekki 280 krónur og greiði því 300.
Kl. 08.30 Ártún
S6 fer því miður ekki mína leið
upp í Árbæ heldur álpast inn
í Grafarvog og því verð ég að
skipta þar. Að öllu eðlilegu á
þar að bíða vagn S5 en engan
slíkan er að sjá.
----
Kl. 08.36 Ártún
S5 mætir fimm mínútum á eftir áætlun. Þung umferð, svarar
vagnstjórinn og bætir gráu ofan á svart og gerir athugasemd
við skiptimiðann minn sem nú er útrunninn. Eitt augnablik skil
ég einstaklinga sem á augabragði klikkast og vega mann og
annan og sem hægt er að lesa reglulega um í blöðum. Sit samt
á mér og brosi. Slepp með það.
r-
Kl. 07.59 Hamraborg
Ef engin umferð væri gæti ég tekið S4 niður í Borgartún og náð S5 þar alla
leið upp í vinnu í Árbænum. En ég hef aðeins eina mínútu til að það gangi
upp og í þessari umferð er það vonlaust. Tek því S2 í staðinn og freista
þess að ná i skottið á S6 við Kringluna.
WB
Kl. 07.33 Sundlaug Kópavogs
Þung umferð áfram og vagninn ekki
kominn lengra en að Sundlaug Kópa-
vogs. Álengdar er hægt að sjá vagna S1,
S2 og S4 leggja af stað inn í Reykjavík
frá Hamraborg tveimur mínútum á und-
an áætlun. Köll til bílstjóra um aö biðja
þá um að hinkra bera engan árangur.
^ Kl. 07.54 Hamraborg
Blautur orðinn en tek gleði mína þegar ég sé aukavagna meðal þeirra sem
Kl. 08.45
Hádegismóar
sitja fastir i umferðinni í Kópavogsdalnum. Sú bílaröð nær alla leið inn í
Hafnarfjörð á þessum tíma dags.
.......;.....
C
Mættur í vinnu.
—“■
Kl. 07.36 Hamraborg
Það eru margir að bíða sem misstu af vögnunum þremur til Reykjavíkur og
ekki er strætisvagnaskýlum fyrir að fara á þessari aðalskiptistöð Kópavogs.
Það er að vísu eitt gamalt og lúið en það er fullt. Aðrir rennvotir.
I—=7----------"“F .. 7,'V ■! ■ ■———| ——
! '& j) !-V!
Bjartsýnismaður
tekur strætó
I Áætlun Strætó bs. stenst engan veginn á álagstímum ■ Einn og hálfan tíma frá Kársnesi upp í Árbæ
Ef rétt er að þolinmæði sé dyggð
má telja víst að greinarhöfundur sé
í hópi dyggðugustu manna lands-
ins. Hann hefur um hálfs árs skeið
notað almenningssamgöngur til
að komast úr og í vinnu á höfuð-
borgarsvæðinu en sú leið sem tekur
allar eðlilegar manneskjur á eigin
bifreið tíu til fimmtán mínútur að
fara tekur hann hartnær klukku-
stund við bestu aðstæður og í um-
ferðinni síðustu vikurnar talsvert
lengur en það. Sem væri enginn
heimsendir með dagblöðin, kruðerí
og kaffi meðferðis. Nema hvað fjóra
mismunandi vagna þarf til að skila
honum alla leið og enn sem komið
er hefur kaffidrykkja ekki verið
leyfð í vögnunum.
Auglýsingaherferðir Strætó
hljóma alltaf jafnvel. Almenningur
Eftir Albert Örn Eyþórsson
» albert@bladid.net
FRÉTTASKÝRING
sparar sér tíma og peninga í fullri
sátt við náttúrunaþví margir saman
í strætisvagni menga umhverfið
minna en væru þeir á eigin bílum. I
aðdraganda síðustu leiðabreytinga
var ennfremur sérstaklega auglýst
aukin tíðni ferða og færri skiptingar
viðskiptavina.
Enginn forgangur
Þetta eru stórar fullyrðingar sem
vart standast. Eins og sjá má á með-
fylgjandi dagbók er tímasparnaður
umrædds viðskiptavinar enginn.
Þvert á móti er ferðatíminn svo
langur að starfið geldur fyrir það og
ef ekki væri fyrir nokkurt umburðar-
lyndi yfirmanna væri viðkomandi
einn af þeim 0,9 prósentum sem
skráð eru atvinnulaus þessa dagana.
Að hluta til er leiðakerfinu um að
kenna en stærsta vandamálið er að
forgangur strætó í umferðinni er
lítill sem enginn og þegar umferð
er þung á morgnana eins og síðustu
dægrin heldur enginn strætisvagn
áætlun. Það er einmitt mergur máls-
ins fyrir þá viðskiptavini sem þurfa
að skipta um vagna. Þeir sitja alveg
jafnfastir í umferðinni og aðrir.
Hvað ef einn vagn er of seinn?
I dæminu hér að neðan er við-
komandi 40-50 mínútur á leið frá
Kársnesi í Kópavogi að Hádegis-
móum í Árbænum ef áætlun Strætó
stenst upp á mínútu. Sé aðeins einn
vagninn seinn eins og gerist flesta
morgna um þessar mundir sökum
umferðar lengist ferðatíminn strax
um hálftíma hið minnsta. Stræt-
ókerfið virkar - en aðeins á auðum
götum og svo virðist sem gleymst
hafi að gera ráð fyrir umferð ann-
arra bíla á sama tíma, hvað þá þeim
umferðarteppum sem eru daglegt
brauð í höfuðborginni á álagstímum,
a.m.k. á meðan skólar eru starfandi
og lítið um sumarleyfi.
Vissulega hefur ferðum vagnanna
fjölgað, en aðeins á fáum megin-
leiðum. Ætli fólk uppi í Árbæ, sem
ætla mætti að væri stofnleið með til-
liti til fjölda íbúa, líður enn hálftími
milli ferða þangað og er það óbreytt
frá sumaráætlun.
Þolinmæði þrautir vinnur allar
H
Það er líklegast engin tilviljun að
fækkað hefur til muna því fólki, sem
starfar í Hádegismóum og lét reyna
á almenningssamgöngur þangað
um nokkurt skeið. Nú er hending ef
kunnuglegt andlit sést í vögnunum
eða andlit yfirhöfuð.
Heilmikið vantar upp á að strætó
verði raunverulegur valkostur fyrir
nokkra aðra en þá sem búa beinlínis
við svokallaðar stofnbrautir því
aðrir sem sækja vinnu á eðlilegum
tímum munu lenda í eilífum vand-
ræðum. Hér er rétt að láta staðar
numið; greinarhöfundur er að missa
af strætó út á næstu bílasölu.
^3 aetlaðlbara aðfámérf iðl
iptirjriálLa
i
Vegmúla 2-108 Reykjavfk - 550 1310 - verdbref@spron.is - www.spronverdbref.is
•Nafnávöxtun miöast vlö 31. ágúst 2006 til 31. áúgst 2007, skv. s]odir.ís. Peningamarkaössjóöur SPRON er fjárfestingarsjóöur skv. lögum nr. 30/2003 um veröbréfasjóöí og fjárfestingarsjóði. Rekstrarfélag sjóðsins er Rekstrarfélag SPRON. Útboðslýsingu má nálgast á heimasiöu SPRON Verðbréfa, www.spronverdbref.is.