blaðið - 14.09.2007, Blaðsíða 11
b
blaóió
FOSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2007
FRETTIR 11
Farðu alla leið með Strætó!
Augiýsingaherferð
Strætó Ekkert mál aö
komast alla leið en það
getur tekið tímann sinn.
Kynntuþérmliðástra ttó.is
Formaður samgöngunefndar Reykjavíkur
Viljum auka forgang
strætisvagna
BP l Milda dóm hrotta-
fengins nauðgara
■ Kynfæri konunnar svo illa farin að ekki reyndist unnt að skoða
þau í hefðbundinni kvenskoðun ■ Alvarlegar andlegar afleiðingar
„Við höfum ákveðið
að auka forgang stræt-
isvagna á Miklubraut
um helming og höfum
óskað eftir frekari til-
lögum hvað forgang
varðar frá vagnstjórum
sjálfum,” segir Gísli
Marteinn Baldursson,
formaður samgöngu-
nefndar Reykjavíkurborgar,
hann telur mikilvægt að koma
í veg fyrir að strætisvagnar sitji
fastir í umferðarteppum eins og
þeim sem myndast hafa undan-
farna morgna. Fyrr gangi illa að
gera strætó að hagkvæmum og
samkeppnihæfum ferðamáta.
en
Gísli segir tillögurnar
hvað Miklubraut varðar
komnar langt á leið og
standa vonir til að strætis-
vagnar á vesturleið aki um
sérakrein frá Miklubraut
til móts við Hagkaup í
Skeifunni og alla leið að
Lönguhlíð ekki síðar en
næsta sumar. Ennfremur
hafa farið fram viðræður við bæjar-
stjóra Kópavogs um að bæta við ak-
rein fyrir strætó milli Kópavogs og
Reykjavíkur í Fossvogsdalnum og
gangi það eftir ættu viðskiptavinir
Strætó að losna að mestu við þær
miklu tafir sem verða á morgnana
og síðdegis.
Kuldi og vosbúð Eina fólkið
á leið um nýtt miðbæjartorg í
Kópavogi eru farþegar strætó.
Þar er engin skýli að finna.
I Blaöið/Frikki
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@þladid.net
Hæstiréttur dæmdi í gær portú-
galskan ríkisborgara, Americo Luis
Da Silva Concalves (Luis), í þriggja
og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun
og hrottalega líkamsárás sem átti
sér stað á heimili hins dæmda sl.
haust. Hinum dæmda var einnig
gert að greiða fórnarlambinu eina
milljón króna í skaðabætur.
Fóru saman heim úr bænum
Samkvæmt frumskýrslu lögregl-
unnar í Reykjavík hafði fórnar-
lambið farið á veitingahúsið Dubl-
iners ásamt systur sinni, þar sem
þær hittu Luis og félaga hans. Vel
fór á með systur fórnarlambsins og
vini Luis og ákváðu þau að fara yfir
á Kaffi Viktor og síðan öll saman
heim til hins ákærða.
Þegar heim var komið fóru Luis
og fórnarlambið inn í herbergi og
lokuðu á eftir sér, en þar létu þau
vel hvort að öðru og klæddu sig úr
fötunum. Það var ekki fyrr en þau
voru bæði orðin nakin sem Luis
gerðist ofbeldisfullur - beit fórnar-
lambið og kleip, og bað hún hann þá
um að hætta.
Við það gerðist Luis enn ofbeld-
isfyllri, lamdi fórnarlambið með
krepptum og flötum hnefa, sneri
upp á útlimi hennar og hafði við
hana harkaleg mök gegn vilja
hennar.
Andlegar og líkamlegar afleiðingar
í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur
Litla-Hraun Eftir dóm
Hæstaréttar þarf Luis að
dúsa hér hálfu ári skemur en
dómur Héraðsdóms Reykja-
víkur sagði til um.
aRHPWMB
kemur fram að fórnarlambið
hafi samkvæmt læknisskoðun
borið mikla áverka „ekki síst á við-
kvæmum líkamshlutum, svo sem
brjóstum og kynfærum, en kynfæri
hennar voru svo illa leikin að ekki
reyndist unnt að skoða þau í hefð-
bundinni kvenskoðun".
Enn fremur kemur fram að árásin
hafi haft alvarlegar andlegar afleið-
ingar fyrir fórnarlambið og taldi
dómurinn brotið sérstaklega hrotta-
legt. „Hann beitti brotaþola endur-
teknu ofbeldi á meðan á nauguninni
stóð og virti að vettugi óskir hennar
um að láta af háttseminni," segirþar.
Milda dóm héraðdóms
Hæstiréttur mildaði dóm hér-
aðsdóms, sem hljóðað hafði upp á
fjögurra ára fangelsi og 1,2 milljónir
króna í skaðabætur. Engu að síður
staðfesti Hæstiréttur að ákærði hefði
gerst brotlegur um þá háttsemi sem
REFSINGAR FYRIR NAUÐGUN
► Refsiramminn í nauðgunar-
málum er eins til sextán ára
fangelsisvist, samkvæmt
194. grein hegningarlaga.
w Þyngstu dómar í kynferðis-
brotamálum undanfarin ár
hafa verið 5-51/2 ár.
bk. Meðallengd fangelsisdóms
f^> í nauðgunarmáli er nú um
tvö ár, en var um eitt ár fyrir
áratug.
hann var sakfelldur fyrir í héraði og
dæmi hann auk þess fyrir að hafa
haft munnmök við konuna gegn
vilja hennar, en héraðsdómur hafði
sýknað Luis af þeirri háttsemi.
Hæstiréttur rökstuddi lengd refs-
ingarinnar með „vísan til forsendna
héraðsdóms um ákvörðun refsingar
og fordæma Hæstaréttar".
Formaður Fiúseigendafélagsins segir lög um húsaleigu vera skýr
Leigusalar mega hirða vexti
„Leigusalar hafa rétt til að hirða
vexti af tryggingum sem leigj-
endur þeirra reiða fram,“ segir Sig-
urður Helgi Guðjónsson, formaður
Húseigendafélagsins.
Sigurður Helgi tók þátt í að semja
frumvarp að lögum um húsaleigu,
en í þeim segir að tryggingarfé sem
leigusali varðveitir skuli vera „verð-
tryggt, en ber ekki vexti". Sigurður
Helgi segir alveg ljóst að túlka beri
þetta ákvæði þannig að leigusali
þurfi ekki að greiða trygginguna til
baka með vöxtum.
I Blaðinu í gær var rætt við Þóri
Karl Jónasson, formann Leigj-
endasamtakanna, sem segir að
leigusalar hafi ekki heimild til að
hirða vexti af þeim tryggingum
sem leigjendur þeirra reiða fram,
nema að fengnu samþykki leigjend-
anna. Sigurður Helgi segir það vera
kolrangt. „Leigjanda er í sjálfsvald
sett hvort hann ávaxtar tryggingar-
féð, en hann er enginn banki fyrir
leigjendur.“
hlynur@bladid.net
Sigurður Helgi Guðjónsson
Formaður Húseigendafélagsins
tók þátt (að semja frumvarp
lögum um húsaleigu.
n
sins I
J
Peningamarkaðssjóður SPRON hefur gefið langhæstu ávöxtun allra
peningamarkaðssjóða á íslandi síðustu 12 mánuði eða 1 5,4%*
spron
VERÐBRÉF