blaðið - 14.09.2007, Blaðsíða 14
14
FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2007
blaðiö
FÉOGFRAMI
vidskipti@bladid.net
7Úti í hinum stóra heimi eru til fyrirtæki sem sérhæfa sig
í því að kanna hvort einhverjum verði á mistök við skrán-
ingu einkaleyfa og vörumerkja, með það fyrir augum að
eigna sér þau ef ekki hefur verið staðið rétt að skráningu.
Hugverkaréttur
sífellt mikilvægari
I íslenskt viðskiptafólk þarf að kynna sér vel hugverkarétt áður en farið er í útrás ■ Geta
misst af miklum fjárhæðum vegna rangrar skráningar vörumerkja og einkaleyfa
Gunnar Guðmundsson
Segir erlend fyrirtæki mörg
hver sérhæfa sig í aö finna
vörumerki og einkaleyfi sem
ekki eru rétt skráó, meö þaö
fyrir augum að eigna sér þau.
Auknar tekjur
af ferðamönnum
Gjaldeyristekjur af ferða-
mönnum jukust verulega á
öðrum ársfjórðungi samanborið
við sama tímabil í fyrra, sam-
kvæmt tölum Seðlabankans.
Tekjur af innlendri neyslu hafa
hækkað úr n milljörðum í 14,4
milljarða eða um 31%. Fargjalda-
tekjur hafa hækkað minna eða úr
6,4 í rúma 6,6 milljarða eða sem
nemur 4,2%.
Magnús Oddsson ferðamála-
stjóri segir á vef Ferðamálastofu
að þessar niðurstöður séu afar
jákvæðar enda sjái menn það
þegar rýnt sé betur í þær að
neysla á hvern ferðamann hækki
úr 76.599 í 80.925 krónur eða um
5,6%. Þegar farið sé enn aftar, eða
til ársins 2000, þá komi í ljós að
neysla hvers gests hafi hækkað
um 20,1% að núvirði eða úr 67.359
krónum í 80.925 krónur.
Höskuldur
til Nýsis
Höskuldur Ásgeirsson, rekstr-
arhagfræðingur og fyrrverandi
forstjóri Flug-
stöðvar Leifs
Eiríkssonar,
hefur verið
ráðinn forstjóri
Nýsis hf. frá 1.
desember nk.
Á sama tíma
lætur Sigfús
Jónsson af
störfum sem framkvæmdastjóri
félagsins. Sigfús hefur verið fram-
kvæmdastjóri Nýsis síðastliðin 10
ár en mun nú stýra útrás Nýsis hf.
í Bretlandi og viðar, ásamt því að
sitja í stjórn félagsins.
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@bladid.net
„Sífellt meira mun reyna á hug-
verka- og samkeppnisrétt í íslensku
atvinnulífi, sér í lagi hjá fyrir-
tækjum í útrás,“ segir Gunnar Guð-
mundsson hdl., framkvæmdastjóri
Sambands flytjenda og hljómplötu-
framleiðenda. „Oti í hinum stóra
heimi eru til fyrirtæki sem sérhæfa
sig í því að kanna hvort einhverjum
verði á mistök við skráningu einka-
leyfa og vörumerkja, með það fyrir
augum að eigna sér þau ef ekki hefur
verið staðið rétt að skráningu.“
Gunnar segir að fyrirtæki þurfi
að hafa þessi mál þeim mun betur
á hreinu eftir því sem markaðurinn
stækkar. „Þegar íslensk fyrirtæki
RÁÐSTEFNA
og samkeppnisréttar" stend-
ur yfir í dag og á morgun á
Radisson SAS Hóteli Sögu.
Að sögn Gunnars Guð-
^ mundssonarer markmið ráð-
stefnunnar að kynna fyrir
íslendingum nýjustu straum-
ana í þessum fræðum.
► Framsögumenn verða
erlendir fræðimenn og sér-
fræðingar á þessum sviðum,
en upplýsingar um þá og
erindi þeirra má nálgast á
www.nomos.is.
fara út á mörg hundruð milljóna
markað, t.d. Evrópumarkað, þurfa
þau að gæta betur að sér því þar er
mikill fjöldi fólks að fylgjast með
skráningu einkaleyfa.“
í sífelldri þróun
Gunnar segir þessi mál í sífelldri
þróun og að mikilvægt sé fyrir ís-
lensk fyrirtæki og lögfræðinga að
fylgjast vel með nýjustu straumum
og dómum í þessum málum. „Meiri
viðskipti kalla á meiri kröfur um að
vera með bestu mögulegu þekkingu
á þessum efnum. Áður en fyrirtæki
ráðast í útrás á stórum mörkuðum á
borð við hinn evrópska, þarf að vita
nákvæmlega hvernig vernda eigi
einkaleyfi. Hvert skref þarf að vera
vel hugsað því um leið og mönnum
verða á mistök geta þeir lent í því að
missa einkaréttinn að þeirri vöru
eða verki sem skapað er, en í því
geta falist mjög miklir fjármunir."
Gunnar nefnir lyfjamarkaðinn
sem dæmi. „íslensk fyrirtæki hafa
verið að framleiða samheitalyf, en
mikil tækifæri og fjármunir leynast
á þeim markaði. Það er nauðsynlegt
að þessi fyrirtæki séu með hugverka-
rétt á hreinu, ætli þau ekki að verða
undir í samkeppninni."
iAvAllR
kaiica
ifltfAllA
ifllfAlXA
Espresso upplifun
ITALY'S FAVOURITE COFFEE
MARKAÐURINN í GÆR
Hlutabréfaviðskipti með skráð bréf hjá OMX á íslandi, 13. sept. 2007
Viðskipti í krónum Heildar-
ATH. = Athugunarlisti Viðskipta- Hlutfallsl. Dagsetning Fjöldi viðskipti Tilboð í lok dags:
verð breyting viösk.verös viðskipta dagsins Kaup Sala
Félög í úrvalsvísitölu
Atorka Group hf. 9,98 1,01% 13.9.2007 11 30.510.773 9,96 9,98
Bakkavör Group hf. 63,50 0,00% 13.9.2007 6 194.554.900 63,30 63,50
Exista hf. 30,70 0,00% 13.9.2007 27 169.271.152 30,60 30,70
FL Group hf. 25,05 0,40% 13.9.2007 16 120.524.225 25,00 25,10
Glitnir banki hf. 27,85 0,72% 13.9.2007 41 589.963.290 27,75 27,85
Hf. Eimskipafélag íslands 39,65 -0,63% 13.9.2007 4 10.049.055 39,55 39,85
lcelandair Group hf. 26,20 - 13.9.2007 2 1.100.007 25,95 26,20
Kaupþing banki hf. 1090,00 0,00% 13.9.2007 62 728.911.112 1087,00 1090,00
Landsbanki íslands hf. 40,00 0,50% 13.9.2007 23 671.204.857 39,75 40,00
Mosaic Fashions hf. 17,50 - 4.9.2007 1 2.123.415
Straumur-Burðarás Fjárf.b. hf. 19,30 0,26% 13.9.2007 35 225.002.556 19,20 19,30
leymi hf. 6,16 1,15% 13.9.2007 5 12.680.163 6,07 6,16
Össur hf. 99,60 -1,87% 13.9.2007 31 229.300.517 99,60 99,90
Onnur bréf á Aðallista
365 hf. 2,47 - 13.9.2007 3 1.235.000 2,45 2,47
Alfesca hf. 6,25 0,32% 13.9.2007 3 7.517.877 6,23 6,27
Atlantic Petroleum P/F 1314,00 2,26% 13.9.2007 29 21.203.902 1305,00 1315,00
Eik Banki 670,00 1,09% 13.9.2007 12 11.066.151 662,00 670,00
Flaga Group hf. 1,42 -2,07% 13.9.2007 3 1.427.000 1,40 1,42
Foroya Bank 226,00 3,20% 13.9.2007 22 9.426.488 225,00 235,00
lcelandic Group hf. 5,90 0,00% 12.9.2007 - - - 5,90 5,98
Marel hf. 98,50 ■0,10% 13.9.2007 6 24.389.424 98,30 98,90
Nýherji hf. 21,50 - 13.9.2007 1 645.000 21,50 21,90
Tryggingamiðstöðin hf. 46,00 1,77% 13.9.2007 1 915.216 45,80 46,00
Vmnslustöðin hf. 8,50 - 22.8.2007 - - 9,00
First Norfh á Islandi
Century Aluminium Co. 2930,00 -2,01% 13.9.2007 7 58.170.100 2890,00 2932,00
HB Grandi hf. 11,50 - 7.9.2007 - - 10,50 12,50
Hampiðjan hf. 6,50 - 5.9.2007 - 6,20 6,55
• Mest viðskipti í Kauphöll OMX í
gær voru með bréf Kaupþings, fyrir
um 730 milljónir króna. Næstmest
viðskipti voru með bréf Landsbank-
ans, fyrir 670 milljónir.
• Mesta hækkunin var á bréfum
Feroya Banka, eða 3,20%. Bréf
Atlantic Petroleum hækkuðu um
2,26% og bréf Tryggingamiðstöðv-
arinnar um 1,77%.
• Mesta lækkunin var á bréfum
Flögu, eða 2,07%. Bréf Century Al-
uminum lækkuðu um 2,01% og bréf
Össurar um 1,87%.
• Úrvalsvísitalan hækkaði um
0,25% í gær og stóð í 7.889 stigum
í lok dags.
• Islenska krónan styrktist um
0,10% í gær.
• Samnorræna OMX40-vísitalan
hækkaði um 0,95% í gær. Breska
FTSE-vísitalan hækkaði um 0,9%
og þýska DAX-vísitalan um 0,8%.