blaðið - 14.09.2007, Blaðsíða 16
FOSTUDAGUR 14. SEPTEIVIBER 2007
blaöið
LÍFSSTÍLLBÍLAR
bilar@bladid.net
v: v v Hvar sem horft er á bílinn ber hann þess
merki að vera hannaður og smíðaður af
ástríðu, frekar en eftir reiknimódelum. Það er
eitthvað svo dásamlega ítalskt við hann.
ÚR BÍLSKÚRNUM
• Nýr Trabant
Á bílasýning- jHM/wm.
unni í Frank- '
furt, sem nu — f/'j y
stendur sem
hæst, geta gestir og gangandi
heilsað upp á gamlan vin í
nýjum klæðum. Það er leikfanga-
fyrirtækið Herpa sem sýnir þar
nýja útgáfu af draumabílnum
Trabant.
• X6 líka
tvinnbíll
BMW kynnti
nýjasta hug-
myndabíl sinn,
X6, á bílasýningunni í Frankfurt
með þeim orðum að „90% af því
sem þið sjáið mun fylgja bílnum í
framleiðslu". Tvinnbílaútgáfa er í
þróun og mun minnka eldsneyti-
snotkun um 20%.
• Uppseldur Lambó Þeir 20
Lamborghini Reventon-bílar
sem stendur til að framleiða eru
uppseldir. Þeir voru það meira
að segja áður en fyrstu myndir
láku út af bílnum. Bílskúrs-
menn muna eftir svipaðri sögu
hérlendis af Land Cruiser 200,
en munurinn er sá að Lambóinn
kostar um 70 milljónir króna.
Að vísu fylgir honum 640 hest-
afla mótor,
nokkuðsem
væri líka
gaman að sjá í
Land Cruiser.
• Babú í Dubai Það er einfaldlega
til of mikið af peningum í Dubai.
Hvar annars staðar í heiminum sér
maður svo sem slökkviliðið á Cor-
vettu? Hugmyndin er, samkvæmt
yfirmanni almannavarnaráðu-
ney tis Dubai, að bíllinn geti verið
fljótur á vettvang með slökkvitæki,
skyndihjálparbúnað og klippur.
Slökkviliðsbúningur og Corvetta að
auki? Sumir
eru bara
vinsælli hjá
stelpunum en
aðrir.
Gúmmfniiinustofen
SP dekk - Skipholti 35 -105 K
Sfmi:SS31055
Næsta námskeið byrjar 19. september
Upplýsingar og innritun í síma 567 0300
öryggí bilsins
byggist
ágóðum
KjóSbðrðum
Aukin ökuréttindi - Meirapróf
Nýlegir kennslubílar
••
OKU
SKOLINN
IMJODD
Glæsilegur Nærvera bílsins
er slík aö Kapelluhraunið
líkist ítölsku sveitahéraði.
Myndir/Baldur Crn Óskarsson
Reynsluakstur Alfa Romeo 1591,9 JTS
ítölsk ástríða
Sumir bílar eru danskir
viðskiptafræðingar.
Aðrir eru ítalskar rokk-
stjörnur sem eyðileggja
hótelherbergi.
Á pappír lítur Alfa Romeo 159 út
fyrir að vera mjög hentugur fjöl-
skyldubíll í millistærð. Og hann
er það. Hann rúmar fimm manns
ágætlega í sæti, hefur þokkalegt
farangursrými og er þægilegur í
umgengni, ef frá er talinn skortur á
litlum hólfum og flöskuhöldurum.
Bíllinn er líka mjög þægilegur
og þéttur í akstri og kemur manni
stöðugt á óvart, til dæmis með því
að halda sjálfur bremsunni í smá
stund ef maður er að taka af stað í
brekku og fyrir hvað það er erfitt að
drepa óvart á honum þegar maður
tekur af stað.
1,9 lítra vélin hefur svolítið óvenju-
lega togkúrfu og við fyrstu kynni
BRAGI BLÝFÓTUR SEGIR
„Lipur bíll,
þægileg aflkúrfa
og sæti halda vel við mann.“ -
Besti tími' Braga
á Alfa Romeo 159:
64,07 sek. ’Besti hringur af fimm á «#*
akstursbraut Mótorsport-
klúbbsins viö Krýsuvíkurveg.
AKSTURSBRAUT.IS
virkar hún næstum löt á lágum
snúningi.
Hinhliðin
En svo slysast maður til að slökkva
á spólvörninni, stíga bensínið í botn,
fara yfir 4000 snúninga og allt í einu
er maður kominn með litla frænda
Ferrari í hendurnar. Viðbragðið í vél-
inni eykst til muna og það er sama
hvað beygjan er kröpp, bíllinn sker
hana, ekki bara af nákvæmni eins
og þýskir bílar, heldur af öskrandi
ákafa líka.
Ég segi ekki að innyflin hafi sagt
skilið við mig vegna afls eða hraða,
en tilfinningin er til staðar. Hann er
nógu sprækur og sportlegur til að
vilja fara með hann á kappaksturs-
braut. Svo ég gerði akkúrat það og
hafði gaman af.
Það er erfitt að lýsa því, en þegar
stýrið, fjöðrunin og bensíngjöfin
svara nógu vel verður það næstum
Á rúntinum með Tinnu Hrafnsdóttur
Þægilegur og öruggur
Til að fá annað álit á bílnum
buðum við Tinnu Hrafnsdóttur
leikkonu að taka rúnt á honum.
„Ég var á heildina litið mjög sátt
við hann. Mér finnst hann þægi-
legur í akstri og mér finnst ég
örugg í honum. Hann er vel hljóð-
einangraður, sem er mikill kostur,
og þægilegur í stýri. Ég myndi
hiklaust mæla með þessum bíl.
Hins vegar var ég ekki sátt við
litinn. Eg myndi sjálf vilja fá mér
annað hvort rauðan, hvítan eða
svartan bíl.“
Lesendur kannast eflaust við
Tinnu úr kvikmyndinni Veðra-
mót, auk þess sem hún leikur í
söngleiknum Abbabbabb! eftir
Dr. Gunna. „Það verða allir að sjá
Veðramót og Abbababb! Ég hvet
fólk sem á ekki börn til að koma
að sjá Abbababb! vegna þess að
sýningin höfðar ekki síður til
fullorðinna."
í HNOTSKURN
Að utan
Líklega fallegasti bíllinn í sínum
flokki. Framendinn á engan sinn
líka. Mig langartil ítalfu þegarég
horfi á bílinn.
Að innan
Fimm fullorðnir hafa það gott, en
þeir verða að halda á símunum,
geisladiskunum og gosflöskunum
sínum.
Öryggi og búnaður
7-8 árekstrarpúðar (eftir valbúnaði),
spól- og skriðvörn. í hólfi á milli
sæta er hægt að halda einhverju
köldu með loftkælingunni.
Fjölskyldan
ISOFIX-barnabílstólafestingar,
þokkalegt farangursrými og þægi-
legur í daglegri umgengni.
fallegt að keyra bíl. Tja, kannski
ekki fallegt. En allavega gaman.
(tölsk hönnun
Hvar sem horft er á bílinn ber
hann þess merki að vera hannaður
og smíðaður af ástríðu, frekar en
eftir reiknimódelum. Það er eitt-
hvað svo dásamlega ítalskt við hann.
„Okkur er alveg sama hvað aðrir
segja, við ætlum að búa til bíl sem
lætur blóðið sjóða og konur kikna í
hnjánum. Ef við nennum að koma
heim frá Feneyjum."
Ávalar, stórgerðar og ákveðnar
línur ráða ferðinni að innan jafnt
sem utan, ásamt hringlaga mælum
sem dreift er um mælaborðið eins
og von er og vísa þegar Alfa Romeo
er annars vegar.
Á færi flestra
Grunnverð bílsins er 3.090.000
kr. sem er mjög þokkalegt fyrir
160 hestafla, fimm manna fjöl-
skyldubíl. Með metallic-lakki, 17”
álfelgum, tvískiptri tölvustýrðri
miðstöð og Alfatex-áklæði stóð
prufubíllinn í 3.448.000 kr. Alfa
Romeo 159 ætti því að vera á færi
flestra sem hann vilja.
NIÐURSTAÐA
Gott verð og góð smíð gera bílinn
eftirsóknarverðan fyrir fjölskyldu-
fólk. Þeir sem þurftu að selja
sportbílinn þegar fyrsta barnið
kom (heiminn geta tekið gleði
sína aftur.