blaðið - 14.09.2007, Blaðsíða 17
blaðió
FOSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2007
25
Fyrsti Reva-Mlinn kominn til landsins
Enginn útblástur,
engin eyðsla
Rafmagnsbíllinn Reva hefur
notið töluverðra vinsælda í Bret-
landi, Noregi og nú síðast á Spáni,
enda alveg laus við útblástur og
mjög ódýr í rekstri.
„Við byrjuðum að skoða það fyrir
svona 3-4 mánuðum að vera fyrsta
fyrirtækið til að flytja inn rafmagns-
farartæki fyrir almenning af ein-
hverri alvöru,“ segir Bragi Þór Vals-
son hjá Perlukafaranum ehf. sem
flytur Reva til landsins.
„Við höfðum samband við fram-
leiðendur og komumst að því að
Reva-bíllinn er sá sem er kominn
hvað lengst og hann hefur selst vel
úti í heimi. Á tæpum tveimur árum
hafa 900 bílar selst í Bretlandi og
á Indlandi, þar sem hann er fram-
leiddur, er mjög mikið af honum.
Það fyrsta sem fólk segir þegar
það sér bílinn er hvað hann er lítill.
Kvenþjóðinni finnst hann lítill og
sætur,“ segir Bragi en bætir við að
það sé ekki bara útlitið sem er frá-
brugðið hefðbundnum bílum.
„Hann er með minnsta beygjur-
adíus í heimi og svo er engin vél
í honum. Hann líður áfram hljóð-
laust og rnengar ekki neitt.“
Bíllinn kostar frá 1.489.000
krónum en Bragi segir það kosta
um 1000 krónur í rafmagn á mán-
uði að nota hann í borgarakstri.
Bíllinn er frumsýndur um helg-
ina á bás Orkuveitu Reykjavíkur í
Perlunni og þar getur fólk pantað
reynsluakstur. „Ég hvet fólk til að
stökkva á það. Þessi fyrsti bíll er
seldur og verður afhentur í október.
Það er hægt að prófa hann út sept-
ember hjá Perlukafaranum. Það
er alveg sama hvað maður les og
skoðar mikið, maður veit það ekki
fyrr en maður prófar hvernig er að
keyra hann,“ segir Bragi að lokum.
einareli@bladid.net
Reynsluakstur í samstarfi við akstursbraut
Halldór Jóhannsson Segir
tímatöku segja mikiö til um
Blaðið/Eyþór
Góður tími þýðir
meira en bara hestöfl
Frá og með deginum í dag hefja
Blaðið og Mótorsportklúbburinn
með sér samstarf sem felur í sér
að hluti af reynsluakstri bíla fer
fram á akstursbraut klúbbsins við
Krýsuvíkurveg.
„Þetta bætir miklu við reynslu-
aksturinn því nú er loks hægt, við
öruggar aðstæður, að prófa aksturs-
eiginleika bíla til hins ýtrasta. Úti
í umferðinni væru svona æfingar
bæði stórhættulegar og kolóleg-
legar,“ segir Einar EH Magnússon
bílablaðamaður.
Auk þess sem eknir eru nokkrir
hringir á brautinni eru allir bílar tíma-
mældir, en sá hluti er í höndum Braga
blýfótar, eins best geymda leyndar-
málsins í bílaheiminum í dag.
„Tímatakan segir lesandanum
margt,“ segir Halldór Jóhannsson
hjá Mótorsportklúbbnum. „Fólk
setur alltaf samasemmerki á milli
hestafla og hraða, en til að komast
hratt í braut þarf líka góða aksturs-
eiginleika. Góður tími segir því
líka til um hvernig bíllinn liggur í
beygjum, hvernig hann bremsar og
þess háttar.“
Starfsemin á akstursbrautinni,
sem áður var rallýkrossbraut, hófst
í sumar og nú sækir almenningur
þangað til að æfa sig í að keyra og
hafa gaman af. „Við verðum með
opið á laugardögum og sunnu-
dögum í vetur, að minnsta kosti
meðan veður leyfir. Akstur á braut-
inni gengur ekki út á hraðakstur
eða fíflaskap, heldur að vera lun-
kinn við að höndla bílinn og læra á
hann,“ segir Halldór að lokum.
Ráðstefnan Driving Sustainability 07 fer fram í Reykjavík um helgina
Allir möguleikar á borðið
„Þetta er eins og risastórt nám-
skeið í þeim lausnum sem eru í boði
í dag þegar kemur að vistvænni
orku í samgöngum. Ekki bara ein-
hver halelújaráðstefna þar sem allir
eru að prédika um einn hlut,“ segir
Teitur Þorkelsson, framkvæmda-
stjóri Framtíðarorku, sem hefur veg
og vanda af ráðstefnunni.
„Þetta er vettvangur þar sem
menn geta tekist á um hvaða lausnir
séu bestar fyrir ísland. Við viljum
hafa svolítið líf og fjör í tuskunum.
Þeir sem eru á mælendaskrá eru
langt frá þvi að vera allir sammála
um hvaða lausnir og orkugjafar séu
bestir. Það verður því gaman að sjá
hvað kemur út úr þessu."
Teitur segir að hingað til hafi
verið ágætis framboð hérlendis af
ráðstefnum og fundum um þessi
mál, en í hvert sinn sé aðeins talað
um einn orkugjafa, án þess að skoða
hann í samhengi við aðra mögu-
leika. Því hafi verið tími til kominn
að leggja allar lausnirnar á borðið
sem til eru í dag og verða til í nán-
ustu framtíð.
„Fjöldinn allur af innlendum og
erlendum gestum sækir ráðstefn-
una, þar á meðal fólk frá orkufyrir-
tækjum, olíufélögunum, umhverf-
issérfræðingar, verkfræðingar, fólk
í stefnumótun - bæði hjá ráðu-
neytum og Reykjavíkurborg - og
þó nokkrir einstaklingar. Það er
svo vilji okkar að taka saman nið-
urstöður úr umræðum og erindum,
um það sem menn eru helst sam-
mála um. Því þó menn séu ósam-
mála um margt geta þeir líka verið
sammála um til dæmis þrjár megin-
niðurstöður,“ segir Teitur sem von-
ast til þess að ráðstefnan sé aðeins
sú fyrsta í röðinni.
„Það er vilji þeirra sem halda
ráðstefnuna að hún verði árlegur
viðburður í tengslum við samgöngu-
viku Reykjavíkurborgar, sem er svo
aftur hluti af European Mobility
Week. 1 framtíðinni gæti ráðstefnan
orðið alþjóðlegur vettvangur fyrir
vistvænar lausnir í samgöngum.
Við Islendingar erum að nota
hreina orku í iðnað, húsakyndingu
og til almennra nota. Það eina sem
stendur út af er orkugjafi fyrir sam-
göngur. Ef við förum að nota hreina
orku í þær erum við eina þjóðin í
heimi með raunhæfan möguleika
á því að nálgast að vera 100% sjáfl-
bært þjóðfélag í orkumálum,“ segir
Teitur að lokum.
Niðurstöður ráðstefnunnar verða
birtar nokkrum vikum eftir að
henni lýkur. einareli@bladid.net
ÚR BÍLSKÚRNUM
• Fornbílaspyrna Á morgun, 15.
september, verður haldin Forn-
bílaspyrna á Pattersonbrautinni
við Reykjanesbæ. Keppt verður
á fornbíium í götumílu og hefst
keppnin klukkan 14.00. Nánari
upplýsingar á www.fornbill.is.
• Umferðarstofa Þessa dagana er
verið að vinna að opnun þjónustu-
vers Umferðarstofu í Stykkishólmi.
Um er að ræða símaver sem mun
sinna almennri ráðgjöf og upplýs-
ingaveitu. Starfsmenn verða tveir í
fyrstu en fimm síðar.
• Sjóeldsneyti Sú uppgötvun að
útvarpsbylgjur geti framkallað
vetni úr sjó, er kannski ekki eins
hentug til framleiðslu eldsneytis
og í fyrstu var talið. Bent hefur
verið á að meiri orka fer i að búa
til bylgjurnar en fæst úr sjónum.
FÖSTUDAGAR
ORÐLAUSTÓNLIST
510 3744 blaðið=
Auglýsingasíminn er