blaðið - 14.09.2007, Blaðsíða 18

blaðið - 14.09.2007, Blaðsíða 18
26 FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2007 blaðió KOLLAOGKÚLTÚRINN kolbrun@bladid.net Ég skil ekki af hverju fólk hræðist nýjar hugmyndir. Ég hræðist þær gömlu. John Cage Glæsileg myndaorðabók Stóra myndaorða- bókin er komin út hjá Máli og menningu. Bókin er sú fyrsta sinnar teg- undar á íslensku. Hún geymir myndir af öllu milli himins og jarðar, allt frá smæstu líffærum augans til ein- stakra hluta þotuhreyfils, frá mismunandi kryddtegundum til skíðastökkpalla. Hverri mynd fylgir íslenskt orð yfir viðkomandi fyrirbæri og hluta þess og einnig heiti þeirra á fjórum öðrum tungumálum: ensku, þýsku, frönsku og spænsku. Stóra myndaorðabókin geymir svar við nánast hverju sem er. Hvað kallast farsími á þýsku? Eða skjárinn á farsímanum, handfrjálsi búnaðurinn og loft- netið? Hvernig lítur ætiþistill út? Fyrirlestur um Maó í tengslum við Bókmenntahá- tíð í Reykja- vík heldur Jung Chang fyrirlesturinn „Hvernig ég öðl- aðist skilning á Maó” í sal í í Háskólabíói kl. 15.15 i dag, föstudaginn 14. september. Fyrirlesturinn er haldinn í samvinnu við Stofnun Vigdísar Finnboga- dóttur. Ennfremur verða þau Jon Halliday í hádegisspjalli í Norræna húsinu sama dag kl. 12.30. Jung Chang og Jon Halliday árita bók sína um Maó eftir fyrirlesturinn í Háskólabíói og í Bókaverslun Máls og menn- ingar, Laugavegi 18, kl. 11:00 laugardaginn 15. september. í tilefni af komu höfundanna til landsins fæst bókin á sérstöku tilboðsverði. AFMÆLI í DAG Ivan Pavlov lífeðlisfræðingur, 1849 Alexandervon Humboldt landkönnuður, 1769 Margaret Sanger baráttukona, 1879 JUNG CHANG |ON HALLIDAY £1 MAÓ Daniel Kehlmann er meðal gesta á Bókmenntahátíð Hló við skriftirnar Daniel Kehlmann er höf- undur skáldsögunnar Mæling heimsins, sem komin er út í íslenskri þýð- ingu. Bókin hefur vakið athygli og umtal víða um heim. Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@bladid.net Þýski rithöfundurinn Daniel Ke- hlmann er einn gesta Bókmenntahá- tíðar. Bók hans, Mæling heimsins, sem nú er komin út í íslenskri þýð- ingu, hefur vakið áhuga og umtal víða um heim og var næstmest selda skáldsaga heimsins árið 2006. Skáld- sagan fjallar um tvo þekkta þýska vísindamenn á 19. öld, Carl Friedrich Gauss stærðfræðing og Alexander von Humboldt landkönnuð. „Hugmyndin að bókinni spratt vegna vísindaáhuga míns,“ segir Ke- hlmann. „Ég eyddi tíma í Mexíkó árið 2000 og fékk vitanlega áhuga á landinu en líka á Humboldt sem hafði þar viðkomu. Ég fór að kynna mér líf og starf Humboldts og áttaði mig snemma á þvi að þrátt fyrir það hversu víðföruÚ hann var þá skildi hann lítið í menningu þeirra landa sem hann heimsótti. Þarna sá ég möguleika til að skapa fyndna skáld- sögu. Svo komst ég að því að Gauss gisti á heimili Humboldts árið 1828 og þá varð til hugmyndin að bók um tvo menn og líf þeirra: Einn ferðast um allt, annar fer ekkert. Sá sem fer ekkert hefur frjálsan huga en sá sem ferðast um allt burðast með menn- ingu lands síns í farteskinu. Báðir eru reknir áfram af áhuga á að skilja heiminn." Vildi skrifa gáskafulla skáldsögu Vhr mikil heimildaöflun sem fylgdi vinnslu bókarinnar? „Ég vann ýmsa heimildavinnu sem fólst að stærstum hluta í þvi að lesa mér til um þennan tíma og ég las mikið. Ég vildi ekki skrifa 800 blað- síðna skáldsögu sem byggði á gríðar- lega umfangsmikilli heimildavinnu. Frá byrjun vildi ég skrifa gáskafulla og leikandi létta skáldsögu.“ Það er mjög gaman að lesa bókina og við lesturinn finnst manni eins og þér hafi þótt skemmtilegt að skrifa hana. „Það var erfitt að skrifa hana og suma kafla hennar skrifaði ég í Daniel Kehlmann „Já, mér fannst gaman að skrifa þessa bók. í fyrsta sinn á ævinni hló ég upphátt meðan ég var að skrifa." níu mismunandi útgáfum. En ég skemmti mér við skriftirnar og það auðveldaði vinnuna. Stundum spurði ég sjálfan mig: „Er ég að ganga of langt? Ef mér finnst svona gaman að skrifa þessa bók, er ég þá kannski bara að skrifa hana sjálfum mér til skemmtunar?" En svo hugs- aði ég með mér að fyrst ég væri að skemmta mér svona vel þá gæti það bent til þess að einhverjum öðrum þætti gaman að lesa verkið. Já, mér fannst gaman að skrifa þessa bók. í fyrsta sinn á ævinni hló ég upphátt meðan ég var að skrifa." Sumir segja að bókin sé meist- araverk og að þú sért snillingur. Þú ert bara rúmlega þrítugur, skapar það ekki mikla pressu að fá slíkar umsagnir? „Velgengni bókar skapar óhjá- kvæmilega pressu en um leið skapar velgengin mikilvægt fjárhagslegt sjálfstæði. Pressan er mikil en frelsið verður meira. Ég er mjög ánægður með velgengni bókarinnar, en ég verð að takast á við pressuna og skriftirnar verða erfiðari ef maður veit að fólk er að bíða eftir því hvað maður geri í næstu bók.“ Um hvaðfjallar nœsta bók? „Ég er að skrifa bók en tala ekki um hana vegna þess að ég er hjátrúar- fullur. Ef maður segir frá næstu bók of snemma þá gengur hún ekki upp.“ Aðdáandi Coetzee Skipta bókmenntahátíðir höfunda máli, eins og sú sem núna er haldin í Reykjavík? „Já, bókmenntahátíðir eru svo skemmtilegar að maður verður að gæta sín á þvi að sækja ekki of margar þeirra því maður verður að vinna. Maður kynnist löndum og menningu sem maður þekkti ekld áður og hittir fólk sem sýnir manni nýja hluti. Mér finnst mjög gaman að vera á þessari hátíð.“ Mér er sagt að þú hafir orðið áber- andi snortinn afþví að hitta J.M. Co- etzee á þessari hátíð. „Ég er mikill aðdáandi Coetzee. Hann hefur haft mikil áhrif á mig MÆLING HEIMSINS Höfundurinn, Daniel Kehlmann, er fæddur i Múnchen árið 1975 og býr í Vínarborg. Hann hefur hlot- ið margvísleg verðlaun og viðurkenningar fyrir skáld- sögur sínar. Mæling heimsins hefur ver- ið seld til 37 landa og setið á toppi þýska metsöluiist- ans vel á annað ár. Mæling heimsins var næstmest selda skáldsaga heimsins árið 2006, sú sölu hæsta var Hringur Tankad- os eftir Dan Brown. og bækur hans hafa breytt hugsun- arhætti mínum. Það er heiður og ánægja að hafa hitt hann og fengið að þakka honum fyrir bækur hans. Ég er viss um að fólk er alltaf að segja honum hvað bækur hans hafi skipt það miklu máli en ég varð samt að segja honum það.“ ► ► ► GLIT Allt efni til skart- gripagerðar. Mikið úrval af perlum, leðurreimum og festingum. Einnig gjafaöskjur, standar og pokar. Tökum hópa eina kvöldstund í skartgripagerð. Golt verð. Allt til leir og glergerðar. Glit ehf. Heildverslun Krókhálsi 5,110 reykjavík Sími 587 5411 MENNINGARMOLINN Hándel lýkur við Messías Á þessum degi árið 1741 lauk tón- skáldið Georg Friedrich Hándel við óratoríuna Messías eftir að hafa unnið að henni samfleytt í 23 daga. Hándel fæddist í Þýskalandi en eyddi meginhluta starfsævi sinnar á Englandi. Hann er talinn vera, ásamt Jóhannesi Sebastian Bach, mesta tónskáld heims á fyrri hluta 18. aldar. Merkustu verk Hándels eru óperur hans og óratóríur. Messías er frægasta verk hans og var frumflutt árið 1742. Árið 1751 þegar Hándel var að vinna að óratoríunni Jephtha tók sjón hans mjög að daprast en hann lauk þó við verkið árið eftir. Hann Iést árið 1759 og var grafinn í Westm- inster Abbey.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.