blaðið - 14.09.2007, Blaðsíða 19

blaðið - 14.09.2007, Blaðsíða 19
Listapósturinn 9. tbl. • 12. órgangur • 14. september 200/ • 139 tbl. frá upphaf Af hverju eru Islendingar svona vondir við sjálfa sig? Góður gangur á uppboðunum Ýmislegt er notað til að meta á hvaða menn- ingarstigi þjóðir eru. Þar má til dæmis nefna hvernig þær varðveita menningararf sinn og koma honum á framfæri. Að dómi skrifara standa fslendingar sig frábærlega á sumum sviðum en hörmulega á öðrum. Til sérstakrar fyrirmyndar má nefna Þjóðminjasafnið, þó breytingar á því hafi tekið alltof Iangan tíma. Það sem er hreinlega til skammar er svo nátt- úrugripasafnið sem segja má að sé húsnæð- islaust. Annað sem hreint ekki er í lagi er Listasafn íslands. Þótt safnhúsið sé glæsilegt er það óumdeilanlega alltof lftið. Þar er úti- lokað að halda uppi eðlilegu sýningahaldi. Vfðast hvar í veröldinni keppast þjóðlista- söfn um að sýna gestum úrval af bestu verk- um safnanna. Sérstök áhersla er lögð á að kynna þessi verk fyrir ferðafólki sem sækir söfnin heim. Mörg þjóðlistasöfn eru meðal mestu aðdráttarafla viðkomandi landa. Þús- undir heimsækja þau daglega. Lítum á hvað ferðafólki var boðið upp á af Listasafni fslands í sumar. Frá 10. maí til 8. júlí stóð yfir sýning á Cobra verkum og þegar henni lauk tók við sýning sem ber nafnið Ó- náttúra, en henni lýkur um miðjan október. Þótt Cobra sýningin hafi verið ágæt og ým- islegt ágætt sé á yfirstandandi sýningu, þá átti hvorug sýningin heima í safninu á þessum árstíma að dómi skrifara. Heilt sumar leið án þess að ferðafólki gæfist kostur á að sjá yfirlit af bestu verkum safnsins. Þó ástandið hafi ekki verið jafn slæmt nú eins og sumarið góða þegar haldin var sýning á þjóðbúningum frá Jórdaníu í safninu, þá er þetta samt afleitt. Auðvitað er það ekki húsnæðinu að kenna að sýningum safnsins er raðað niður á þennan hátt. Það breytir þó engu um að húsnæðið er of lítið og býður til að mynda ekki upp á að hliðarsýningar séu settar upp jafnhliða stoð- sýningum. Stjórnvöld verða að koma sér upp úr hjól- farinu sem þau hafa verið svo föst í um ára- tugi. Það verður að taka upp nýja og framsýna hugsun þegar listir eru annars vegar. Eðlilegast er að einkavæða stóru söfnin og líta á þau sem viðskiptatækifæri jafnhliða því sem þau sinni auknu menningarhlutverki. Að dómi skrifara er engin ástæða til að ríki og sveitarfélög standi í safnarekstri. Best væri að fela einkaaðilum, sem vanir eru rekstri og vandir að virðingu sinni, þennan rekstur. Rikisforsjá í listum er alls ekki heppileg á 21. öldinni. Sem stendur er við völd menntamálaráð- herra sem að minnsta kosti í orði er hlynntur frelsi á sem flestum sviðum. Með hliðsjón af þeirri vitneskju er varla til of mikils mælst að þessi kostur verði kannaður. íslendingar eiga að setja sér það mark að vera ekki verri við sjálfa sig en nauðsynlegt er. TPF Listmunauppboð Gallerís Foldar síðastliðið sunnudagskvöld gekk ágætlega. Greinilegur uppgangur er á uppboðunum núna og sjá- anlegt að mikill áliugi er fyrir hendi. Súlna- salur Hótel Sögu var troðfullur af fólki og nánast öll verkin seldust, en boðin voru upp 139 verk. Eðli uppboðanna hefúr verið að breytast undanfarið. Nú eru myndir af öllum verk- um birtar á Netinu og heimsóknir á heima- síðu gallerísins, myndlist.is, skipta þúsund- um í kringum uppboðin. Fjöldi verka selst nú í gegnum síma til kaupenda um allt land og til útlanda. Verðin á uppboðunum hafa verið að hækka og nú er ljóst að besta verðið fyrir góð verk fæst yfirleitt á þeim vettvangi. Er það í samræmi við það sem gerist erlendis, þar sem bestu verkin rata iðulega á uppboð. Næsta uppboð verður haldið 14. október og erum við að taka á móti verkum á það uppboð. Uppboð 14. október Erum að taka á móti verkum á næsta listmunauppboð sem verður haldið 14. október. • Gallerí Fold • innrömmun við Rauðarárstíg Fullkomnasta rammaverkstæði landsins Mikið úrval af rammalistum BOÐSKORT Kjartan GuÖjónsson sýnir í Galleríi Fold Laugardaginn 15. september kl. 15 opnar Kjartan Guðjónsson málverkasýningu ! Baksal Gallen's Foldar. Kjartan GuSjónsson, fæddur 1921. Kjartan Guðjónsson stundaði myndlistarnám við Art Institute of Chicago. Hann er einn úr upphaflega Septemberhópnum svokallaða, sem sýndi fyrst saman 1947 í Listamannaskálanum. Sú sýning vakti gríðarlega at- hygli og hafði víðtæk áhrif á myndlist hér á landi um langt árabil. Kjartan kenndi við Myndlista- og handíðaskóla Islands í meira en aldar- fjórðung. Hann hefur haldið margar einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga bæði hérlendis og erlendis. Þá hefur hann löngum unnið við hönnun og myndskreytingar, myndskreytt bækur og rit og teiknað frímerki svo eitthvað sé nefnt. Kjartan Guðjónsson er án efa meðal virtustu núlif- andi listamanna þjóðarinnar. Allir velkomnir á opnunina Opið er í Galleríi Fold virka daga frá kl.10-1 8, laugardaga frá kl. 1 1-16 og sunnudaga frá kl. 14-16. Listapósturinn • Útgefandi: Gallerí Fold, listmunasala • Rauðarárstfg 14, 105 Reykjavík • Sími: 551 0400 • fax: 551 0660 • Netfang: fold@myndli$t.is • í Kringlunni, 103 Reykjavík • Sími: 568 0400 • Netfang: foldkringlan@myndlist.is • Heimasíða Gallerís Foldar og Listapóstsins er: www.myndlist.is • Ritstjóri: Tryggvi P. Fri&riksson • Abyrgðarmaður: Elínbjört Jónsdóttir • Umsjón heimasíðu: Jóhann A. Hansen • Upplag: 95.000 prentuð eintök fylgja Blaðinu og 2400 rafræn eintök, send ókeypis til áskrifenda.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.