blaðið - 14.09.2007, Blaðsíða 20
FOSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2007
blaöió
LÍFSSTÍLLVEIÐI
veidi@bladid.net
Við viljum minna veiðimenn á að
blesgæsin er friðuð og fer að birt-
ast á næstu vikum, menn verða því
að hafa varann á sér
Gljúfurá í Borgarfirði
140 laxar á
Gljúfurá í Borgarfirði hefur gefið
vel að undanförnu og hafa síðustu
holl veitt á bilinu 8o til 90 laxa. Óls-
arinn Jón Þorbergur Oliversson var
í holli sem lauk veiðum síðastliðinn
mánudag. I þeim hópi veiddust 15
laxar á tveimur dögum og Jón Þor-
bergur veiddi þá sinn fyrsta lax, svo-
kallaðan maríulax. Laxinn veiddi
Jón í Kerinu sem er veiðistaður neð-
arlega í ánni fyrir neðan þjóðveg og
reyndist hann vera silfraður glæsi-
legur 5 punda hængur. Mikið vatn
er í ánni þessa dagana og töluvert af
fiski en áin er komin í 140 laxa.
Veiðimenn sem voru að koma úr
Hvolsá og Staðarhólsá veiddu 6 laxa
og helling af bleikjum, töluvert var
af fiski á svæðinu.
land
Ljósmynd Þorsteinn Úlafs.
Mundar myndavélina Karl Lúð
I víksson var við Brynjudalsá í Hvalfirði
um síðustu helgi við tökur á þættinum
Veitt með vinum.
Veitt með vinum í Hvalfirði
Reynt við maríulaxinn
„Við erum að byrja að kvikmynda
en með mér á stönginni núna er
ung veiðikona, Eva María Kristjáns-
dóttir, og við erum að reyna að láta
hana veiða maríulaxinn,” sagði Karl
Lúðvíksson, en hann var að taka
upp þætti sína, Veitt með vinum, í
Brynjudalsá í Hvalfirði, um síðustu
helgi. Blaðið var á staðnum til að
fylgjast með framvindu mála en
þættirnir eru sýndir á sjónvarps-
stöðinni Sýn.
„Okkur hefur gengið ágætlega að
mynda eftir að rigna tók, höfum
m.a. myndað í Rangá og Tungufljóti.
Við höfum náð góðum skotum en í
Tungufljóti fengum við átta laxa,“
sagði Karl ennfremur.
Karl óð út í ána með Evu Maríu
með sér. Fiskurinn var ekki í töku-
stuði fyrir ofan Bárðarfossinn, enda
mikið vatn í ánni en öll skilyrði
fyrir hendi.
Veiðin hefur gengið vel í Brynju-
dalsá í sumar og mikið er af fiski víða
en líklega mest í Bárðarfossinum.
Áin hefur gefið yfir 100 laxa og
Eva María setti í tvo laxa en þeir
sluppu báðir af. Annan var hún
með á í 10 mínútur. Þrátt fyrir góð
tilþrif tókst veiðimanninum ekki að
fá fisk.
Laxveiðin
Allt á floti alls staðar
„Það er ekkert hægt að veiða hérna
fyrir vatni, áin er kollituð og ekkert
hægt að veiða þessa stundina. Við
erum að fara heim,“ sögðu veiði-
menn sem við hittum við Leirvogsá,
en áin var á floti í fyrradag.
Það sama er að segja um fleiri lax-
veiðiár, flestar voru þær litaðar eftir
miklar rigningar síðustu daga.
Margir veiðimenn hafa hætt
veiðum, aðstæður eru þannig að
það er erfitt að koma niður færi
þessa klukkutímana fyrir vatns-
magni í ánum.
Sérfræðingar
i fluguveiði
Nælum stangir.
splæsum línur
og setjurn upp.
»01
3ir. 1
lur Æ
Sportvörugerðin hf..
Skipholt S. s. 562 83B3.
„Laxá í Dölum er eins og stór-
fljót, lituð eftir miklar rigningar.
Það er erfitt að veiða núna,“ sagði
Sæmundur Kristjánsson við Laxá
í Dölum á miðvikudaginn, þegar
vatnið var sem mest á svæðinu.
Veiðimenn verða bara að bíða
eftir að vatnið minnki. Það er svaka-
lega mikið sums staðar og ekki hægt
að veiða.
Þegar vatnið minnkar gæti orðið
mikil veisla. Nýr fiskur er enn að
ganga í veiðiárnar.
ALLA DAGA
ÍÞRÓTTIR
Auglýsingasíminn er
510 3744
Róleg skotveiði
Gæsin heldur sig
enn á heiðum
Skotveiðitímabilið er
hafið en fer rólega af
stað að mati sérfræð-
inga. Gæsin heldur sig
enn á heiðum enda nóg
æti í berjum. Búast má
við að í lok mánaðarins
fari meira að gerast hjá
veiðimönnum.
Eftir Gunnar Bender
g.bender@bladid.net
„Gæsaveiðin fer rólega af stað, eins
og oft til að byrja með. Það er helst
heiðagæs sem ég verð var við í byrjun
tímabilsins og svo fer grágæsin að
koma inn þegar líður á september,"
sagði Arnór Þ. Sigfússon fuglafræð-
ingur þegar blaðamaður spurði
hann um gæsaveiðina undanfarið
og hvernig gengi að fá vængi frá skot-
veiðimönnum, en hann hefur óskað
eftir því að fá vængi af fuglunum sem
veiðast.
„Ég hef ekki heyrt mikið af gæsaveið-
inni enn, mest fengið fréttir úr Skaga-
firði og af húnvetnsku heiðunum.
Við viljum minna veiðimenn á að
blesgæsin er friðuð og fer að birtast á
næstu vikum, menn verða því að hafa
varann á sér,“ sagði Arnór ennfremur.
Þeir Arnór og Halldór W. Stef-
ánsson óska eftir því að fá að skoða
vængi frá veiðimönnum af öllum
tegundum gæsa. „Eins og undan-
farin ár leitum við til veiðimanna
um aðstoð við að útvega gæsavængi
sem eru notaðir til að meta hlutfall
unga frá síðasta sumri í veiðinni."
Annað hvort geta þeir mætt á stað-
inn ef því verður við komið og ald-
ursgreint fuglinn, eða veiðimenn
geta sent til þeirra annan vænginn
af þeim fuglum sem skotnir eru.
Veiðimenn ættu því að setja sig í
samband við Arnór í Reykjavík
eða Halldór sem staðsettur er á
Austurlandi.
Flott happdrætti
Skotveiðifélag Islands hefur
ákveðið að efna til happdrættis til
að hvetja veiðimenn til að senda inn
vængi. „Nöfn allra þeirra sem senda
til okkar vængi fara í pott og að lok-
inni gæsavertíðinni verður dregið
úr nöfnunum og einn heppinn veiði-
maður fær að launum haglabyssu."
Hvernigá aðgeyma vængina?
Ef vængir eru geymdir og veiði-
menn senda þá má ekki geyma
þá lengi í plasti því þannig úldna
þeir strax. Best er að leyfa þeim að
þorna og setja þá svo í pappakassa.
Ef vængir eru höggnir af skal alltaf
senda vængi sömum megin af öllum
fuglunum, t.d. hægri væng. Veiði-
menn eiga að láta fylgja með nafn,
síma, heimilisfang og/eða netfang,
hvenær gæsirnar voru veiddar og á
hvaða stað eða veiðisvæði, til dæmis
samkvæmt veiðidagbók veiðistjórn-
unarsviðs Umhverfisstofnunar.
Það eru ekki miklar fréttir af gæsa-
veiðinni enn sem komið er, en veiði-
menn voru vestur í Dölum og fengu
40 fugla, aðrir voru á Barðaströnd-
inni og fengu 55 fugla. Fuglinn er
enn þá á heiðum og hefur það fínt
þar í berjum.
SKOTVEIÐIFÉLAGIÐ
Skoðveiðimenn sem eru í
Skotveiðifélagi íslands sam-
þykkja siðareglur félagsins
og fara eftir þeim.
Hægt er að kynna sér reglur
félagsins á vefnum www.
skotvis.is.
Skotveiðifélag íslands var
stofnað árið 1978.
Núverandi formaður er Sig-
mar B. Hauksson.
Á vef félagsins má finna
ýmsar girnilegar uppskriftir
að villibráð.
Nú er nóg komið af rigmngunni
Haustið og miklar rigningar síð-
ustu daga ætla greinilega að bjarga
veiðisumrinu í sumar. Það hefur
verið mokveiði víða um land, t.d. í
Eystri-Rangá en þar eru komnir yfir
5000 laxar á land og lítið lát virðist
vera á veiðinni.
„Auðvitað er maður spenntur að
renna, það er mikið af fiski og áin
að hreinsa sig þessa dagana,” sagði
Marteinn Jónasson, en hann var leið-
inni í Eystri-Rangá í vikunni.
„Hollið var með 22 laxa á tveimur
dögum en við komum að ánni í
góðu flóði en svo sjatnaði aðeins
þegar á leið,“ sagði Bjarni Júlíusson
sem var við Hítará á Mýrum fyrir
nokkrum dögum en mjög góð veiði
hefur verið þar síðustu daga.
„Við fengum 10 fiska á stöngina
í Grettisbæli og Markarfljóti, hitt
var dreift um ána. Langidráttur gaf
sem og Grettisstiklur, Kverkin, Tún-
strengir og Steinabrot,“ sagði Bjarni
að lokum.
„Það var alltof mikið vatn og það
hafði rignt þegar við komum og
þegar við fórum heim líka. Hollið
fékk nokkra laxa og helling af
bleikju," sagði Eggert Jóhannesson
sem var í Viðidalsá í Húnvatnssýslu
fyrir fáum dögum. En Víðidalsá
hefur gefið innan við 600 laxa.
Sömu sögu var að segja af Vatns-
dalsánni, alltof mikið vatn og erfitt
að finna fiskinn. Það er að heyra á
veiðimönnum að þeir séu búnir að
fá nóg af regni í bili.